Fréttablaðið - 23.11.2010, Qupperneq 22
23. nóvember 2010 2
eykst möguleikinn á velgengni
til langtíma,“ segir Rakel.
„Það er mjög misjafnt með
hvaða vandamál fólk leitar til
mín, allt frá fólki sem er í yfir-
þyngd, með nokkur aukakíló,
fólk með meltingarsjúkdóma eða
hvers kyns fæðuvandamál, óþol
eða ofnæmi og svo einfaldlega
fólk sem er að leita að einföldum
ráðleggingum um það hvernig
það getur tileinkað sér hollari
lífsstíl,“ segir Rakel og bætir
við að þar snúist vandamálið
oftar en ekki um tímaskort, hug-
mynda- og skipulagsleysi.
„Fólk skipuleggur sig ekki fyr-
irfram, kemur heim eftir vinnu
og klukkan korter í sjö, þegar það
á að fara að útbúa kvöldmatinn er
ísskápurinn tómur og allir orðnir
glorsoltnir. Þá er oft á tíðum lík-
legra að maður velji sér fæðu
sem er óhollari en þá sem er holl.
Á þessum tímapunkti finnst fólki
oft erfiður hjalli að ætla að fara
að útbúa holla og næringarríka
fæðu, sem er mjög skiljanlegt því
fólk er þá yfirleitt fallið í blóð-
sykri og vantar einfaldlega orku.“
Rakel segir að Íslendingar og
þjóðir almennt borði allt öðru-
vísi í dag en fyrir tuttugu árum
og einkum sé magnið mun meira
en áður. „Skammtarnir eru
orðnir miklu stærri. Sem dæmi
má nefna að fyrir tuttugu árum
var matardiskurinn 24 senti-
metrar í þvermál en er nú 27
sentimetrar. Það eru alls kyns
atriði sem plata og hvetja til þess
að fólk fái sér stærri skammta.
Sú hugsun að fá meira fyrir pen-
inginn, með því að þiggja stærri
skammt af frönskum, stærra
kók, stóran Ópalpakka og súkku-
laði sem inniheldur kannski 33%
meira magn en áður, þýðir að
fólk tapar mögulega á því heilsu-
farslega. Þú fékkst kannski
meira fyrir peninginn en
umframkaloríurnar setjast beint
á buxnastrenginn og hafa áhrif á
heilsu, vellíðan og lífsgæði.“
Það er mat Rakelar að hinn
almenni neytandi sé orðinn
þreyttur á tali um hvað hann eigi
að borða enda ekkert skrýtið þar
sem ráð frá alls kyns sérfræð-
ingum eigi ekki saman. „Það
eru tískubylgjur í þessu eins og
öllu öðru. Eitt misserið snýst allt
um að borða meira prótín, það
næsta er það meiri fita, eða bara
hrá fæði, glútenfrítt, þetta kemur
í bylgjum. Ég tek heilbrigðu
skynsemina á þetta, enda þarf að
taka tillit til forsendna hvers og
eins.“ juliam@frettabladid.is
„Ég tek heilbrigðu skynsemina á þetta, enda þarf að taka tillit til forsenda hvers og eins,“ segir Rakel Sif Sigurðardóttir næringar-
ráðgjafi. MYND/NÍNA BJÖRK
Borðaðu mat sem rotn-
ar er ein af 64 reglum
í bók Michael Pollan;
Mataræði Handbók
um hollustu. Að matur
skuli skemmast þýðir að
sveppir, bakteríur, skor-
dýr og nagdýr sem við
keppum við um nær-
ingu hafi komist í hann
á undan. Matvinnsla
hefur þróast til að lengja
geymslutímann með því
að fjarlægja það sem
keppinautarnir vilja eins
og omega-3 fitusýrur.
Unninn matur er því
næringarsnauðari en
hefðbundinn matur.
Gen og holdafar hafa áhrif á
snemmbúinn kynþroska.
Að minnsta kosti þrjátíu gen virð-
ast hafa áhrif á það hvenær stelpur
verða kynþoska samkvæmt rann-
sókn sem náði til 100.000 kvenna
og var birt í tímaritinu Nature
Genetics á dögunum.
Í Bretlandi byrja yngstu stelp-
urnar að sýna merki um kynþroska
strax við tíu ára aldur en snemm-
búinn kynþroski hefur verið tengd-
ur hættu á krabbameini hjá konum
síðar á ævinni. Sérfræðingar eru
ekki á eitt sáttir um ástæður þess
að stúlkur verða fyrr kynþroska
nú en áður en sumir hafa tengt
það við offitu. Nýleg rannsókn á
vegum Reprogen Consotium ýtir
undir þá tilgátu. Á meðal þeirra 30
gena sem komu fram í genarann-
sókninni voru einmitt mörg þeirra
tengd efnaskiptum og þyngdar-
stjórnun.
Þrjátíu gen hafa
áhrif á kynþroska
Stelpur verða fyrr kynþroska nú en áður.
Heimild: Matar-
æði Handbók um
hollustu
NÝ SENDING AF
KULDASKÓM MEÐ
MANNBRODDUM
FYRIR DÖMU OG HERRA
Í JÓLAPAKKANN ÞINN
Heilsusetur Þórgunnu
552 1850 / 896 9653 · www.heilsusetur.is
Viðurkenndur sérmenntaður
kennari með 20 ára reynslu
NÁMSKEIÐ Í
ANDLITSNUDDI
& INDVERSKU
HÖFUÐNUDDI
27 nóvember frá kl. 11.00 til 15.00
Upplýsingar í síma 896-9653
og á www.heilsusetur.is.
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10-18.
Laug. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
úr leðri, fóðraðir með
lambsgæru.
Góður sóli.
Hágæða
herra-kuldaskór
Teg:53802 482
Stærðir: 40 - 47
Litir: brúnt og svart
Verð: 24.775.-
Ungabarnanuddnnámskeið fyrir foreldra 1-10 mánaða
fimmtudaginn 25.11 nk. Kl 14.00
ATH 2000 kr afsláttur af þessu síðasta námskeiði ársins.
Skoðaðu Heilsusetur.is eða hringdu í síma 552 1850 eða 896 9653
www.madurlifandi.is
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Hæðarsmára 6
201 Kópavogur
Sími: 585 8710
Hafnarborg strandgötu
220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720
Goji hamingjusafinn
sem slegið hefur í gegn
afsláttur
Safinn inniheldur náttúruleg andoxunarefni sem hægja á öldrun,
eru styrkjandi og fyrirbyggja meðal annars hjarta- og æðasjúkdóma.
Komdu við í næstu verslun Maður lifandi og kynntu þér málið.
Salt þykir ekki gott fyrir heilsuna og forðast ætti vörur sem innihalda 1,25 grömm af salti
eða 0,5 g af natríum eða meira í 100 grömmum. Það er mikilvægt að lesa næringarefna-
töflunar séu þær til staðar. Dæmi um saltríka vöru eru bjúgu en í 100 grömmum eru á
bilinu 1,25 til 2,75 g salt í 100 grömmum. Heimild: www.lydheilsustod.is
Framhald af forsíðu