Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 25
fréttablaðið ● híbýli og viðhald ●ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 2010 3 Japönsku arkitektarnir Kazuyo Sejima og Ryue Nishizawa, hjá arkitektastof- unni SANAA, hlutu Pritzker- verðlaunin árið 2010. Verð- launin eru þau æðstu í heimi arkitekta. Þetta var í þriðja sinn í þrjátíu ára sögu verðlaunanna sem tveir arkitektar hlutu verðlaunin. Fyrst var það árið 1988 þegar Oscar Niemeyer og Gordon Bunshaft hlutu þau og síðan árið 2001 þegar Jacques Herzog and Pierre de Meuron hlutu verðlaunin. Japanskir arkitektar hafa hlotið verðlaunin þrisvar í þrjátíu ára sögu verðlaunanna. Fyrst Kenzo Tange 1987, Fumihiko Maki árið 1993 og Tadao Ando 1995. Um verk þeirra Kazuyo Sej- ima og Ryue Nishizawa var sagt: Verk þeirra eru bæði viðkvæm og kröftug, nákvæm og fljót- andi, hugvitsamleg en á yfirveg- aðan máta. Flest verka þeirra er að finna í Japan, en Sejima and Nishizawa hafa einnig hannað byggingar í Þýskalandi, Bret- landi, á Spáni, Frakklandi, Hol- landi og Bandaríkjunum undir nafni SANAA. Bæði viðkvæm og kröftug DeKunstlinie – leikhúsið og menningarmiðstöðin í Almere í Hollandi. The Rolex lærdómssetrið, eða École Polytechnique Federale, í Lausanne í Sviss. Zollverein Designschule í Essen í Þýskalandi. Nýja samtímalistasafnið (New Museum of Contemporary Art) í New York. Sejima og Nishizawa hlutu hin eftirsótt- ur Pritzker verðlaun sem afhent voru í vor. ● VIÐHALDSKOSTNAÐUR FRÁDRÁTTARBÆR Kostnaður vegna viðhalds fasteigna er nú frádráttarbær frá skatti einstaklinga. Þetta er nýjung sem kemur til við- bótar 100% endurgreiðslu VSK af vinnu á bygginga- stað. Endurgreiðslurnar eru tímabundnar og er ætlað að hvetja fólk til framkvæmda. Heimilt er að draga fjárhæð sem varið er til vinnu við endurbætur eða viðhald á íbúðarhúsnæði til eigin nota og frístundahúsnæði frá tekjuskattsstofni að ákveðnu hámarki. Auk viðhalds fasteigna nær heim- ildin líka til vinnu vegna lóðaframkvæmda. Heimild þessi mun koma til frádráttar tekjuskattsstofni við álagningu opinberra gjalda á árunum 2011 og 2012 vegna tekjuáranna 2010 og 2011, að hámarki kr. 200.000 hjá einhleypingi eða kr. 300.000 hjá hjónum og sambúðarfólki. Heimild si.is ●STOFAN MÁLUÐ FYRIR JÓLIN Aðventuna notar fólk gjarnan til að hressa upp á heimilið. Í málningarvörubúðum er hægt að fá góðar ráðleggingar en ef verkið sýnist óyfirstíganlegt skal fá fagmann til verks- ins. Ætli fólk að ráðast í stórræðin sjálft er gott að hafa nokkur atriði í huga áður en hafist er handa. ● Loft skal mála á undan veggjum og gjarnan í ljósari lit. ● Gljástig loftmálningar skal vera í kringum 5 en á veggi er notað gljástig 10-20. Í eldhúsi og bað- herbergi er mælt með enn hærra gljástigi ● Athugið að aukinn gljái gerir misfellur á yfirborði sýnilegri. ● Litir virðast sterkari ef flöturinn er stór. Ágæt þumalputtaregla er því að velja daufari liti á stóra fleti en sterkari á litla. Eins skal hafa í huga að lýsing hefur áhrif á liti. ● Byrjið ekki á nýrri málningardós þegar flöturinn er hálfnaður. ● Rétt hitastig (15-20°C) og rakastig (40-70%) skipta máli. ● Yfirborð flata sem mála á skal vera hreint og þurrt, sérstaklega þar sem fita gæti hafa sest á fletina til dæmis í eldhúsi. heimild: www.slipp.is Lýsing hefur áhrif hvernig litur á veggj- um skilar sér. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN STÝRÐU UMRÆÐUNNI Í ÁTT TIL ÞÍN m.visir.is Fáðu Vísi í símannog iPad! Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku. Borgardekk

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.