Fréttablaðið - 23.11.2010, Page 46
38 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
MORGUNMATURINN
Breski tenórinn Paul Potts treður upp með
Björgvini Halldórssyni í Laugardalshöll nú
í byrjun desember ásamt aragrúa söngvara,
meðal annars norsku Eurovision-stjörnunni
Alexander Rybak. Potts, sem er fyrrverandi
símasölumaður í Bridgend, er greinilega ekki
þjakaður af stjörnustælum því hann gerir ekki
miklar kröfur um aðbúnað baksviðs – og þó.
Listi yfir það sem Potts fer fram á þegar hann
kemur fram á tónleikum, svokallaður „rider“,
er fremur hófsamur miðað við lista margra kol-
lega hans sem sótt hafa landið heim síðustu ár.
Mesta athygli vekur að Potts gerir kröfu um að
tveir kaldir bjórar séu tilbúnir þegar hann stíg-
ur niður af sviðinu. Þeir bjórar mega ekki vera
frá erlendum framleiðanda heldur íslenskum og
því bíður tónleikahaldaranna ærið verkefni að
velja úr þeim íslensku tegundum sem í boði eru.
Annars eru kröfurnar fremur lágstemmdar
og tónleikahaldarar verða ekki í miklum erf-
iðleikum með að uppfylla þær, Potts vill hafa
allt klárt fyrir teið sem hann drekkur, vatnið
má ekki vera ískalt og þá verður að vera beittur
hnífur baksviðs svo hann geti skorið sítrónur út
í teið sitt. Reyndar verða tónleikahaldarar að
sjá til þess að ostabakki sé fyrir hendi, ef
ske kynni að Potts yrði svangur milli hljóð-
prufunnar og tónleikanna sjálfra. - fgg
Hógvær Paul Potts vill íslenskan bjór
HÓFSAMAR KRÖFUR Paul Potts fer fram á að fá tvo
kalda íslenska bjóra til að svolgra í sig þegar hann
stígur niður af sviðinu í Laugardalshöll. Tónleikahald-
ara bíður það vandasama verk að velja rétta bjórinn.
„Mér finnst mjög fínt að fá mér
hafragraut með smá mjólk út
á og tek svo lýsi. Þetta tvennt
vekur mig algjörlega. Svo fæ ég
mér einn kaffibolla.“
Ísak Freyr Helgason förðunarfræðingur.
„Þetta hljóta að vera einhverj-
ar lengstu kvikmyndatökur sem
hafa farið fram uppi á jökli hér á
Íslandi,“ segir Kristinn Þórðarson
hjá Saga Film.
Um helgina lauk fjórtán daga
tökumaraþoni fjörutíu manna
tökuliðs frá Þýskalandi og Íslandi
uppi á Langjökli. Jökullinn leikur
stórt hlutverk í nýrri þýskri sjón-
varpsmynd sem fjallar um frægt
kapphlaup Roalds Amundsen og
Roberts Scott á Suðurskautsland-
inu árið 1911 en hún verður frum-
sýnd í mars á næsta ári á þýsku
stöðinni ZDF.
Að sögn Kristins nutu þeir
aðstoðar frá Flugbjörgunarsveit-
inni sem sá um að gæta fyllsta
öryggis á tökustað en þar að auki
komu nokkrir íslenskir leikarar
við sögu, meðal annars Davíð Guð-
brandsson og Ívar Örn Sverrisson.
Á tímabili voru um þrjátíu sleða-
hundar uppi á jökli og fjórir hest-
ar, svo eitthvað sé nefnt. Þá hafði
tökuliðið greiðan aðgang að Einari
Sveinbjörnssyni veðurfræðingi,
sem kom þýskum kvikmyndagerð-
armönnum stöðugt í opna skjöldu
með ótrúlegri nákvæmni í veður-
spám.
„Hann var alveg ótrúlegur og í
95 prósent tilvika var þetta rétt hjá
honum. Hann sá meðal annars fyrir
hvenær stormur upp á 25 metra á
sekúndu myndi ganga niður, upp
á mínútu.“ Eins og gefur að skilja
geta veður verið ansi válynd uppi
á jökli og breyst skyndilega. „Við
fengum alls kyns veður, stundum
var blankalogn og heiðskírt en og
svo brast á með 25 stiga gaddi. Til
allrar hamingju fyrir okkur og
þýska tökuliðið voru það einmitt
þannig aðstæður sem þeir vildu í
myndina.“
Tökuliðið hélt af landi brott
í gærmorgun og Kristinn segir
Þjóðverjana hafa verið gríðarlega
ánægða með hvernig til tókst. „Þeir
vildu ólmir koma aftur og gera eitt-
hvað meira seinna,“ segir Kristinn.
Hann kann ekki skýringu á því
hvers vegna Langjökull sé svona
vinsæll hjá kvikmyndagerðarfólki
sem vill ná fram suðurskautsáhrif-
um en eins og Fréttablaðið greindi
frá fyrir stuttu var tekin upp aug-
lýsing á jöklinum með austurrísku
skíðakempunni Hermann Maier.
„Valið stóð á milli Langjökuls og
Vatnajökuls en aðgengið upp á
Langjökul er einfaldlega miklu
betra, hann er styttra frá höfuð-
borginni og þess vegna varð hann
fyrir valinu.“ freyrgigja@frettabladid.is
KRISTINN ÞÓRÐARSON: ÞETTA VORU MARAÞONTÖKUR UPPI Á JÖKLI
Þýsk mynd um landkönn-
uði tekin upp á Langjökli
MARAÞONTÖKUR Á
LANGJÖKLI
Fjörutíu manna tökulið frá Þýskalandi
og Íslandi tók upp sjónvarpsmynd á
Langjökli. Myndin fjallar um kapphlaup
tveggja landkönnuða á suðurpólinn
árið 1911 og verður frumsýnd á ZDF á
næsta ári. Leikstjórinn Oliver Halm-
burger er klæddur í appelsínugula úlpu.
„Við erum búin að spara daginn og reyndum að bóka
ekki mikið svo hægt væri að fá sem flesta í heim-
sókn,“ segir Kristján Aage Hilmarsson, hárgreiðslu-
maður á Sjoppunni. Á morgun stendur stofan fyrir
góðgerðadegi til styrktar Krabbameinsfélaginu þar
sem starfsmenn Sjoppunnar bjóða upp á klippingu
allan daginn, gegn frjálsu framlagi. „Fólk kemur í
klippingu, borgar það sem það vill og allur peningur-
inn fer beint í Krabbameinsfélagið,“ segir Kristján.
Hinn 24. nóvember í fyrra lést móðir Kristjáns úr
krabbameini en hún hafði barist við sjúkdóminn í
tvö ár. Á miðvikudaginn er því ár síðan móðir hans
lést. „Ég er elstur af fjórum systkinum og þó að þetta
sé búið að vera erfitt fyrir mig er þetta búið að vera
enn erfiðara fyrir yngri systkini mín. Þetta er búið
að vera átakanlegt ár,“ segir Kristján, sem telur að
annar hver Íslendingur þekki krabbamein að ein-
hverju leyti. „Þetta er mjög útbreiddur sjúkdómur og
snertir marga. Okkur á stofunni langaði að gera eitt-
hvað gott fyrir hátíðirnar,“ segir Kristján.
En hvað gerir þá fólk sem vill koma í klippingu og
leggja málefninu lið? „Við mælum með því að fólk
hringi og panti tíma á undan. Við erum níu að vinna
hérna svo við ættum að geta klippt vel yfir daginn. En
annars er öllum velkomið að koma í heimsókn og fá
kaffi,“ segir Kristján og bætir við að fólki sé að sjálf-
sögðu frjálst að styrkja sjóðinn þó að það þiggi ekki
klippingu.
Hægt er að panta tíma hjá Sjoppunni í síma 511
1221, en stofan er í Bankastræti 14. - ka
Klippa fyrir Krabbameinsfélagið
Jólahlaðborð á Lækjarbrekku
Bókið tímanlega í síma 551 4430, hópabókanir í síma 665-0555
www.laekjarbrekka.is
„… innihaldsrík,
afskaplega vönduð
og sögð á leikandi
léttan hátt.“
Ingveldur Geirsdóttir /
Morgunblaðið
„… merkileg bók …
falleg og óvenjuleg.“
Kolbrún Bergþórsdóttir /
Kiljan, RÚV
VINSÆL
VERÐLAUNABÓK
„Höfundi er mikið niðri fyrir en höndlar
efnið af næmleik og stillingu.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
BARNABÆKUR, 17. NÓVEMBER
FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA
1.
sæti
MINNIST MÓÐUR SINNAR Kristinn Aage missti móður sína úr
krabbameini fyrir ári. Hann og félagar hans á hársnyrtistofunni
Sjoppunni klippa til styrktar Krabbameinsfélaginu á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN