Fréttablaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Þriðjudagur
skoðun 14
veðrið í dag
30. nóvember 2010
281. tölublað 10. árgangur
30. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Dechen Thurman, bróðir leikkonunnar Umu Thurman, kennir í Yoga Shala.
Samruni hugar, líkam
Snemmbúin starfslok geta verið jákvæð fyrir andlega
heilsu samkvæmt nýlegri rannsókn sem sagt er frá í lækna-
tímaritinu British Medical Journal. Ekki fundust þó sérstök
jákvæð áhrif á líkamlega heilsu. Málið virðist flókið því aðrar
rannsóknir hafa sýnt fram á öfuga þróun, að snemmbúin
starfslok geti haft neikvæð áhrif á almenna heilsu. bbc.co.uk
Laugavegur 55
Sími 55
1-10
40
Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Borðstofustólar - Verð frá 12.900 kr
199.900
kr
Chester
field
3ja sæta
sófi
Kynngimögnuð tónlist
Blásarakvintett Reykjavíkur
leikur Kvöldlokk á jólaföstu
í 30. sinn.
tímamót 18
FÓLK Slegist var um athygli þeirra
Penn Badgley og Shawn Pyfrom,
stjarnanna úr Gossip Girl og
Aðþrengdum eiginkonum, þegar
þeir skemmtu sér í miðborg
Reykjavíkur um helgina.
Penn og Shawn deildu með sér
hamborgara á Vegamótum þar
sem fjöldi stúlkna gerði sér far
um að hitta þá.
Margir kvenkyns aðdáendur
gengu ansi langt í að fanga
athygli þeirra og sumir biðu
í þrjá tíma í röð fyrir utan
skemmtistaðinn Austur í þeirri
von um að fá að njóta nærveru
leikaranna. Penn er nú farinn af
landi brott en Shawn var yfir sig
hrifinn af landi og þjóð og ákvað
að dvelja hér aðeins lengur. - fgg, ka
Penn Badgley:
Vinsæll hjá
kvenfólkinu
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Penn Badgley
og Shawn Pyfrom í góðum félagsskap í
miðborg Reykjavíkur.
TÓNLIST Hugsanlegt er að ísfirska
tónlistarhátíðin Aldrei fór ég
suður hafi sungið sitt síðasta
og verði ekki haldin um næstu
páska. Ástæðan er þreyta sem er
komin í mannskapinn sem hefur
staðið að undirbúningnum undan-
farin ár.
„Það er komin mjög mikil
þreyta í stóran hóp. Menn eru
búnir að vinna í átta ár ókeypis,“
segir tónlistarmaðurinn Mugi-
son, einn af skipuleggjendunum
sem eru um sjö talsins. „Marga
langar að eiga stund með fjöl-
skyldunni og vinum í fyrsta sinn
bráðum í áratug.“ - fb / sjá síðu 30
Þreyta í skipuleggjendum:
Aldrei fór ég
suður í óvissu
Lokaátök seinni
heimsstyrjaldarinnar!
Innrásin í Normandí
er framundan.
ÖLDIN ÖLL
ÖLDIN OKKAR
1996–2000
Ný bók í geysivinsælli ritröð
BJART OG KALT EYSTRA Í dag
verður víðast fremur hæg vestanátt
en 8-13 m/s NV- og V-lands. Skýjað
og lítils háttar væta SV- og V-til en
annars víða bjart. Hiti 0-7 stig en
vægt frost eystra.
-2
2
4
5
2
Úr íslenskum jurtum
Framleiða kryddsultur,
te og sýróp.
allt 4
SKÓLAMÁL Hugmyndir eru uppi um
að sameina leikskóla, grunnskóla
og frístundaheimili innan hverfa
Reykjavíkurborgar og hefur borgar-
stjóri skipað starfshóp til að greina
tækifæri til endurskipulagningar.
Litið verður bæði til fjárhagslegra
og faglegra sjónarmiða, en meðal
þess sem kemur til greina er að
breyta mörkum skólahverfa til að
jafna nemendafjölda milli skóla.
Starfshópurinn, sem er undir for-
ustu Oddnýjar Sturludóttur, for-
manns menntaráðs Reykjavíkur,
mun skila af sér tillögum 1. febrúar
næstkomandi. Oddný segir í sam-
tali við Fréttablaðið að þó að hún
sjái mörg tækifæri til að hagræða
og gera betur í þjónustu við börnin
sé rétt að taka fram að ekki standi
til að sameina alla skóla og öll frí-
stundaheimili innan hvers hverfis.
„Við gætum ef til vill sameinað
tvo litla leikskóla í einu hverfi, leik-
skóla og grunnskóla í öðru og frí-
stundaheimili og grunnskóla í enn
öðru. Það er ekkert algilt því að
þetta sameinaða form hentar alls
ekki hvar sem er.“ Þessi leið hefur
verið farin víða um land auk þess
sem Reykjavík rekur þegar einn
skóla, Dalskóla, þar sem öll stigin
eru undir sömu stjórn.
Oddný leggur áherslu á að hvergi
sé gert ráð fyrir að leggja af starf-
semi. „Með meira samstarfi og sam-
rekstri reynum við allt til að þurfa
ekki að þjarma að starfi skólanna.“
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
fulltrúi Sjálfstæðisflokks í starfs-
hópnum, segist hlynnt hugmynd-
unum. „Við erum ánægð með að
þessi tækifæri séu skoðuð í kjölinn
áður en gengið er lengra í að skerða
þjónustu við börn.“ - þj
Meta á sameiningu
skóla í Reykjavík
Reykjavíkurborg myndar starfshóp um endurskoðun skólamála. Metur kosti
sameiningar grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila í hverfum borgarinnar.
VEÐUR 4
TALIÐ Í ALLA NÓTT Vafaatkvæði í þúsundatali töfðu talningu eftir stjórnlagaþingskosningarnar og
verður ekki ljóst fyrr en í dag hvenær úrslit verða ljós. Starfsfólk kjörstjórnar gerði í gærkvöldi ráð fyrir að sitja í alla
nótt til að fara yfir þau 10 þúsund atkvæði sem þurfti að skoða betur. Sjá síðu 2 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun
hefur þegar hafið athugun á samn-
ingum hins opinbera við meðferð-
arheimili og starfslokum þeirra.
Tilefnið er umfjöllun Frétta-
blaðsins síðastliðna viku um þrjá-
tíu milljóna króna uppgjör vegna
starfsloka heimilisins Árbótar í
Þingeyjarsýslu.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra segist ekki hafa sett
sig inn í málið. „Miðað við þann
blástur sem var í kringum þetta
held ég að það sé affarasælast
fyrir alla aðila að Ríkisendurskoð-
un fari ofan í þetta og klári það
sem allra fyrst,“ segir Jóhanna.
Ríkisendurskoðun hefur óskað
eftir öllum gögnum, þar á meðal
bréfa- og tölvupóstsamskiptum,
um samninga við meðferðarheim-
ili frá árinu 1996. Sveinn Arason
ríkisendurskoðandi segir algjör-
lega óvíst hversu langan tíma
athugunin muni taka. Hann vilji
því ekki slá á neinn tíma á þessari
stundu.
Félagsmálanefnd fundaði um
málaflokkinn í gær. Á fund-
inn komu fulltrúar félagsmála-
ráðuneytisins, Árbótar og Götu-
smiðjunnar. Til stendur að Bragi
Guðbrandsson, forstjóri Barna-
verndarstofu, komi á fund
nefndarinnar seinna í vikunni.
sh, th /sjá síðu 4
Ríkisendurskoðun óskar eftir öllum gögnum um meðferðarheimili frá 1996:
Jóhanna vill klára málið sem fyrst
Real slátrað á Nývangi
Barcelona vann 5-0 sigur
á Real Madrid í El Clasico-
leiknum í gærkvöldi.
sport 26