Fréttablaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 2
2 20. janúar 2011 FIMMTUDAGUR
SVEITARSTJÓRNIR Hafsteinn Karls-
son, forseti bæjarstjórnar Kópa-
vogs, hafnar gagnrýni Gunnars
I. Birgissonar, bæjarfulltrúa og
fyrrverandi bæjarstjóra, vegna
veislu sem bæjarfulltrúar og
nokkrir yfirmenn hjá bænum
ásamt mökum sátu fyrir jól.
„Það er kannski dálítið sér-
kennilegt að gera athuga-
semdir við svona eftir að
hafa eytt gríðarlega þegar
hann var við völd. Margt af
því var ekki nauðsynlegt,“
segir Hafsteinn.
Veislan var í menningar-
miðstöðinni Molanum hinn
21. desember – en ekki
á Þorláksmessu eins og
kom fram í fundargerð
bæjarráðs og í Frétta-
blaðinu í gær.
Hafsteinn segir kvöld-
verðinn hafa verið hald-
inn í litlum sal eftir að
bæjarstjórnin afgreiddi
fjárhagsáætlun næsta
árs. Ákveðið hafi verið
að bæjarfulltrúar
myndu greiða fimm
þúsund krónur fyrir
sig og einnig fyrir
maka sem mættu.
Kostnaðurinn á mann
hafi verið 6.363 krón-
ur á mann og bæjar-
sjóður greitt mis-
muninn.
Auk bæjarfull-
trúanna voru fjór-
ir starfsmenn í
kvöldverðinum.
Það voru bæjarlög-
maður, fjármála-
stjóri, deildarstjóri
menningarmála
og deildarstjóri íþrótta- og tóm-
stundamála og þrír makar þeirra.
Bæjarsjóður greiddi allan veislu-
kostnaðinn vegna þessa hóps.
Gunnar gagnýndi að veislan
skyldi haldin á sama tíma og jóla-
gjafir til starfsmenn væru skorn-
ar niður. „Það er verið að segja
upp fólki og við vildum heldur
halda einu starfi en
að gefa öllum einhverja jólagjöf,“
útskýrir Hafsteinn, sem hafnar
því að komið hafi verið illa fram
við aðra starfsmenn bæjarins
en þá sem sátu veisluna í Molan-
um. Á flestum vinnustöðum geri
menn sér dagamun í desember og
stofnanirnar sjái um það sjálfar.
„Það var margt grand þegar
Gunnar var bæjarstjóri og það
kostaði sitt. Við erum kannski
að borga brús-
ann fyrir
það núna,“
segir Haf-
steinn.
Forseti
bæjar-
stjórnar
upplýsir að
áðu r h a f i
ofast verið
hangikjöt
á borðum í
bæjar fulltrúa-
veislunni. „En
í fyrra og hitt-
iðfyrra ákváð-
um að hafa eitt-
hvað ódýrara
og vorum með
létt hlaðborð
með pinnamat
og kjúklinga-
rétti. Og í fyrra
ákváðum við að
borga fyrir þetta
sjálfir bæjarfull-
trúarnir og gerð-
um það eins núna.
Þannig að bæjar-
fulltrúarnir hafa
borgað sjálfir frá
því Gunnar hætti
sem bæjarstjóri.“
gar@frettabladid.is
Segir það sérkennilegt
að Gunnar gagnrýni
Eftir hrunið hafa pinnamatur og kjúklingaréttir leyst af hangikjöt í kvöldverði
sem bæjarstjórn Kópavogs heldur sér í desember. Forseti bæjarstjórnar segir sér-
kennilegt að fyrrverandi bæjarstjóri geri athugasemdir um ráðstöfun fjármuna.
l
a
a
a
a
tu
lé
í s
ein
og
Bri
frá
Bri
sinn
Sjón
og e
kepp
Eig
konan
Sigur
fjögu
til fim
SVÍÞJÓÐ F
telur sæn
gegn lögu
að heimila
árið í röð.
Sænskir20 úlfa í árfjórtán. Í fyveiddir, en veiðar veriðöld, að því e
Talið er aðSvíþjóð Ótta
Úlfavei
Stjór
stjór
ræmdri launa-
stefnu.
- þj
g SA und-ð viðræðuáætlun um sameiginleg
mál. Samtökin bíða viðbragða stjórn-
valda.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KÓPAVOGUR Kostnaður vegna veislu
sem bæjarstjórn Kópavogs hélt á
Þorláksmessu fæst ekki uppgef-
inn á bæjarskrifstofnum. Að sögn
Örnu Schram upplýsingafulltrúa
liggja þessar upplýsingar enn ekki
fyrir.
Gunnar I. Birgisson, bæjar-
fullrúi minnihluta Sjálfstæðis-
flokks og fyrrverandi bæjarstjóri,
bað um sundurliðaðan kostnað
vegna veislunnar á fundi bæjar-
ráðs 6. janúar. Sagði hann um að
ræða veislu sem bæjarstjórnin
hefði haldið sjálfri sér í Molanum,
menningarmiðstöð bæjarins fyrir
ungt fólk.
„Mér fannst þetta óþarfi í ljósi
þess að starfsmenn fengu ekki einu
sinni jólakveðju frá bæjarstjórn og
bæjarstjóra nema í gegn um tölvu-
póst,“ segir Gunnar. „Með minni
fyrirspurn er ég bara að mótmæla
þessu bulli. Þetta er bara algjör-
lega úr takti við tímann.“Hinn 7. janúar ósk-aði Fréttablaðið eftir upplýsing-um frá Kópavogs-bæ um veisluna. Meðal annars var spurt um reikn-inga og gestalista. Sem fyrr segir er engin svör að fá um
málið á bæjarskrifstofum Kópa-
vogs og Gunnari hefur heldur
ekki verið svarað. Hann segir að
gestir hafi verið bæjarfulltrúar og
helstu yfirmenn og makar þeirra. Í
ljósi efnahagsástandsins hafi hver
veislugestur borgað 2.500 krónur
upp í kostnaðinn.„Menn geta ímyndað sér að
veisla sem stendur frá klukkan
sjö til eitt um nótt kostar nú örugg-
lega meira en það,“ bendir Gunn-
ar á og ítrekar að þegar vel árar
sé ekkert að því að launa framlag
bæjarfulltrúa og maka þeirra sem
mikið mæði á.Gunnar segir að á árunum 1990
til 1996 hafi hver bæjarfulltrúi
komið með sitt eigið vín ef haldin
var veisla. Þegar hann var bæjar-
stjóri árið 2008 hafi hann boðið
bæjarfulltrúunum í mat og drykk
eftir gerð fjárhagsáætlunar.„Svo snöpuðum við nú hvítvín
sem við áttum þarna en ég keypti
rauðvínið í veisluna. Það gerði ég
úr eigin vasa því það hefur alltaf
farið mikið í taugarnar á mér að
drekka á kostnað skattborgaranna.
Menn geta borgað það sjálfir og
sérstaklega þegar herðir að,“ undir-
strikar Gunnar, sem ekki mætti í
veisluna á Þorláksmessu:„Þegar við erum að skera allt
niður þá passar þetta ekki gagn-
vart starfsfólkinu okkar. Það hefur alltaf fengið jólakort og litla gjöf til að sýna því þakk-læti fyrir vel unnin störf. En þetta var haldið í stað-inn. Ég bara mæti ekki í svona rugl.“
gar@frettabladid.is
Toppar í jólaveislu en tölvuskeyti á óbreyttaBæjarfulltrúum í Kópavogi og yfirmönnum var boðið ásamt mökum til kvöld-
verðar á Þorláksmessu. Aðrir bæjarstarfsmenn fengu ekki hefðbundna jólagjöf
frá bænum heldur aðeins tölvuskeyti. Veislukostnaðurinn liggur enn ekki fyrir.
GUÐRÚN
Á
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR
...það hefur alltaf farið í taugarnar á mér að drekka á kostnað skattborg-aranna.
GUNNAR I. BIRGISSON
BÆJARFULLTRÚI SJÁLFSTÆÐISMANNA
igurðar-
ra sagði á gær að það u réttar-
hrunið, sem um sinn,
ganna svo-
níumenn-
dómi
amt á síðu
ð þetta
hverju
a ástandi
unsins
ógnað
á Facebook:
ldin
tað-
Þ.
fyrr-
nka-
ds-
ann
ðað-
arð-
dag
r
na
l
rskurð:
ður
i
SPURNING DAGSINS
Árni, er sögu bæjarins þar
með lokið?
„Ja, það yrði nú saga til næsta
bæjar!“
Árni Múli Jónasson er bæjarstjóri á Akra-
nesi. Í fyrradag tók hann við handriti að
Sögu Akraness frá landnámi til nútímans.
Verkið hefur verið meira en áratug í
smíðum.
MENNING Mennta- og menningar-
málaráðherra hefur friðað fjöl-
býlishús við Hringbraut 35 til 41
og 43 til 49 í Reykjavík að tillögu
Húsafriðunarnefndar.
Húsin voru teiknuð af Einari
Sveinssyni og Ágústi Pálssyni á
árin 1942 til 1944 og teljast fyrstu
íbúðarblokkir í Reykjavík, að
því er segir í frétt Húsafriðun-
arnefndar. Með þeim kom fram
nýtt byggingarlag, með lágreistu
valma þaki og steyptum þakrenn-
um. Meðal annars vegna þess
telur nefndin húsin vera tíma-
mótaverk og mjög mikilvæg í
byggingarlistasögu Íslands. - sh
Tímamótaverk í byggingarlist:
Fyrstu blokk-
irnar friðaðar
BLOKKIRNAR VIÐ HRINGBRAUT Í annarri
blokkinni er Björnsbakarí meðal annars
til húsa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ALÞINGI „Það verður einfaldlega
að taka þetta mál til gagngerrar
endurskoðunar, sagði Ásmundur
Einar Daðason, þingmaður VG, í
umræðum um styrki frá Evrópu-
sambandinu á Alþingi í gær.
Ásmundur sagðist hafa heyrt að
stjórnvöld væru að búa sig undir
að sækja um styrki frá Evrópu-
sambandinu eftir hjáleiðum til að
laga íslenskt stjórnkerfi að kerfi
ESB meðan á aðildarviðræðum
stendur. Það sé í andstöðu við það
að Alþingi samþykkti að sækja
um aðild að ESB en ekki að hefja
aðlögunarviðræður við samband-
ið. - pg
Ásmundur Einar um ESB:
Sækja styrki
eftir hjáleið
LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir sautján ára pilti sem er grun-
aður um innbrot og þjófnað á tölu-
verðum verðmætum í Reykjavík.
Hann var handtekinn síðustu
helgi og daginn eftir úrskurðaður
í varðhald til föstudags.
Óheimilt er að úrskurða ung-
menni undir átján ára aldri í
gæsluvarðhald nema sérstaklega
standi á. Í gæsluvarðhalds-
úrskurðinum yfir piltinum segir
að það sé mat lögreglu að engin
önnur úrræði komi til greina
eins og rannsóknarhagsmunum
sé háttað. Veruleg hætta sé á að
piltur inn torveldi rannsókn máls-
ins gangi hann laus. - sh
Grunaður um innbrot:
17 ára piltur í
einangrun
VANDLEGA SKRÁSETT Þeir sem mættu voru mældir og myndaðir í bak og fyrir.
Tuttugu til þrjátíu heppnir hljóta hlutverk að lokum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MENNING Um fjögur þúsund börn
og unglingar mættu í Borgar-
leikhúsið í gær til að skrá sig í
áheyrnarprufur fyrir væntan-
lega uppsetningu á söngleiknum
Galdrakarlinum í Oz.
Leitað var að krökkum í tuttugu
til þrjátíu aukahlutverk, til dæmis
apa, barna og smáfólks sem aðal-
persónan Dórótea kemst í kynni
við á ferðalagi sínu um undra-
veröldina Oz.
Í tilkynningu frá Borgarleikhús-
inu segir að á næstu þremur vikum
muni allir sem skráðu sig fá tæki-
færi til að láta ljós sitt skína á sviði
leikhússins undir handleiðslu leik-
ara. Valið verður úr hópnum í lok
mars.
Leikstjóri verksins er Berg-
ur Þór Ingólfsson og með hlut-
verk Dóróteu fer leikkonan Lára
Jóhanna Jónsdóttir. - sh
Börn og unglingar hafa mikinn áhuga á að leika í Galdrakarlinum í Oz:
Um 4.000 mættu í áheyrnarprufur
VIÐSKIPTI Verðbréfasjóður á vegum
Arion banka hefur keypt meirihluta
í tryggingafélaginu Sjóvá af Seðla-
banka Íslands.
Sjóðurinn kallast SF 1 og er rek-
inn af Stefni, verðbréfasjóði Arion
banka. Kaupverðið fyrir 52,4 pró-
senta hlut í félaginu er tæpir 4,9
milljarðar króna, sem þýðir að félag-
ið er metið á tæpa 9,4 milljarða.
Íslenska ríkið lagði Sjóvá til tólf
milljarða um hálfu ári eftir banka-
hrun og síðan hefur Seðlabankinn
farið með 73 prósenta eignarhlut
í fyrirtækinu. Með hliðsjón af því
hefur félagið rýrnað í verði um 43
prósent á þessum tíma og 52,4 pró-
senta hlutur orðinn sjö milljörðum
verðminni.
Sjóvá hefur verið í söluferli í
meira en ár. Litlu munaði að fjár-
festahópur með Heiðar Má Guðjóns-
son í fararbroddi eignaðist félagið í
haust en þær viðræður fóru út um
þúfur.
Að því er segir í tilkynningu frá
Seðlabankanum var það tilboð óhag-
stæðara en það sem nú hefur verið
gengið að.
Eignasafn Seðlabankans mun
halda eftir rúmlega tuttugu pró-
senta hlut í félaginu. - sh
Virði Sjóvár rýrnað um tugi prósenta síðan ríkið lagði félaginu til tólf milljarða:
Meirihluti Sjóvár seldur Arion banka
SJÓVÁ Rúmur helmingur í félaginu kost-
aði tæpa fimm milljarða.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
VÍSINDI Hákarlar virðast vera lit-
blindir samkvæmt rannsókn ástr-
alskra vísindamanna. Þeir vonast
til þess að upplýsingarnar nýtist
til að verjast árásum hákarla á
sundfólk og til að forða hákörlum
frá því að festast í netum.
Hákarlarnir skynja birtu en
ekki liti, og þess vegna sjá þeir
betur það sem er í skærum litum.
„Kannski væri best að forðast
flúorgular sundbuxur þegar
fólk fær sér sundsprett,“ segir
dr. Nathan Scott Hart, forsvars-
maður rannsóknarinnar. - bj
Hákarlar virðast vera litblindir:
Ætti að forðast
skærlituð föt
LITLAUS Hákarlar hafa ekki mikla þörf
fyrir augu sem greina liti, segja ástralskir
vísindamenn. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi
leitaði í gærkvöldi fimmtán ára
gamals pilts sem talinn var hafa
framið vopnað rán í verslun Sam-
kaupa á sjötta tímanum.
Pilturinn kom í verslunina,
sýndi afgreiðslustúlku hníf og
heimtaði peninga. Stúlkan neitaði
og greip hann þá með sér vörur
og lét sig hverfa. Pilturinn þekkt-
ist á myndbandsupptökum.
Pilturinn fannst skömmu fyrir
klukkan tíu á Eyrarbakka og
sagðist þá hafa losað sig við hníf-
inn. - sh
Rændi vörum á Selfossi:
Lögregla leitaði
15 ára ræningja