Fréttablaðið - 20.01.2011, Side 12
20. janúar 2011 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Séu farþegar í Leifsstöð
með óleyfilega hluti í
handfarangri við öryggis-
skoðun er gefinn kostur á
því að fara til baka í inn-
ritun til að senda þá staka
með vélinni, gefist tími til.
Um 120 manns vinna við
öryggis gæslu á Keflavíkur-
flugvelli.
„Reglurnar hafa breyst alveg ótrú-
lega mikið á þeim tuttugu árum
sem ég hef unnið á flugvellinum.
Þær voru aðeins örlítið brot af því
sem þær eru í dag,“ segir Lúðvík
Rúnarsson, aðalvarðstjóri flug-
verndargæslu á Keflavíkurflug-
velli. Um 120 manns vinna nú við
öryggisgæslu í Leifsstöð og segir
Lúðvík starfsreglur breytast að
einhverju leyti á ári hverju.
Eftir hryðjuverkaárásirnar í
Bandaríkjunum 11. september
2001 voru settar strangar reglur
hvað varðar leyfilegt magn vökva
í handfarangri. Lúðvík segir
það vera það helsta sem farþeg-
ar flaski á þegar kemur að hand-
farangri í vélunum.
„Við leggjum þó aldrei hald á
neitt, nema varningurinn sé ólög-
legur, og þá er kallað til lögreglu,“
segir Lúðvík.
Kveikjarar, naglaklippur, skæri
og vasahnífar eru meðal þeirra
hluta sem eru bannaðir í hand-
farangri og losa farþegar sig
gjarnan við þá í glæran kassa sem
stendur við öryggishliðið. Inni-
haldi kassans er fargað nokkrum
sinnum á ári.
„Þetta er orðið miklu minna vanda-
mál en áður,“ segir Lúðvík. „Fólk
er orðið mun meðvitaðra og skiln-
ingsríkara eftir því sem það venst
þessum hertu reglum.“
Ef farþegar ætla um borð með
meira en 100 millilítra af vökva,
að undanskildum lyfjum, barna-
mat eða matvælum vegna sérstaks
mataræðis, bjóða öryggisverðir
farþegum að farga vökvanum eða
fara með hann til baka í innritun.
Það sama gildir um óleyfilega smá-
hluti. Guðjón Arngrímsson, upp-
lýsingafulltrúi Icelandair, segir að
mál hafi komið upp þar sem far-
þegar innriti stakan hlut með vél-
inni og sé það vel mögulegt.
„Algengast er að fólk nýti sér
þetta ef hluturinn er ómissandi, og
er hann þá settur í poka eða kassa
og fluttur stakur um borð í vélina,“
segir Guðjón. sunna@frettabladid.is
Hægt að innrita stakan
smáhlut sem farangur
INNRITUN Í LEIFSSTÖÐ Farþegum er gefinn kostur á því að setja varning sem
stöðvaður er við öryggisskoðun í töskur sínar eftir innritun. MYND/RÓBERT
Hvað er skilgreint sem leyfilegur vökvi?
Handfarangur er farangur sem
farþega er heimilt að taka með
sér um borð í flugvélar.
Frá og með 6. maí 2007
takmarkast leyfileg stærð
handtösku við 56x45x25 senti-
metra.
Athugið að flugrekandinn
getur takmarkað þessa stærð
enn frekar, þyki ástæða til.
Handfarangur
Hver eining umbúða má að hámarki rúma 100 millilítra af vökva.
Magn er ákveðið samkvæmt reglugerð frá Evrópusambandinu. Reiknað út
frá mögulegu magni sem þarf til þess að blanda fljótandi sprengiefni til
þess að búa til sprengju.
Hvað er vökvi?
Allur vökvi, gel, krem, smyrsl, úðaefni og fleira. Hvort sem er í flöskum,
þrýstibrúsum, túpum eða öðrum umbúðum.
■ Allar umbúðirnar verða að rúmast í gegnsæjum 1 lítra
plastpoka sem hægt er að loka með plastrennilás.
Hverjum farþega er heimilt að fara með einn poka
um borð.
■ Með umbúðum er átt við flöskur, túpur, hylki og
annað sem getur innihaldið vökva.
■ Athugið að gosflöskur, fernur og dósir eru flestar
stærri en 100 millilítrar og eru því ekki leyfðar.
Farþegar mega hafa meðferðis aðrar nauð-
synjar til persónulegra nota meðan á flugi
stendur ef öryggisverðir telja ekki ógn stafa
af þeim:
■ Lyf merkt notanda í magni sem dugir á
meðan flugferð stendur
■ Barnamatur (brjóstamjólk, krukkumatur og
annað)
■ Matvæli vegna sérstaks mataræðis.
Chevrolet Spark, 5 dyra - 5 sæta
L - beinskiptur Kr. 1.695 þús.
LS - beinskiptur Kr. 1.895 þús.
Chevrolet á enn betra verði !
Sérfræðingar í bílum
Bílabúð Benna - Chevrolet sýningarsalur - Tangarhöfða 8-12 - Reykjavík - sími 590 2000
Bílabúð Benna - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - sími 420 3300
Bílaríki - Glerárgötu 36 - Akureyri - sími 461 3636
www.benni.is
Vegna nýrra laga um vörugjöld sem tóku gildi um áramótin eru umhverfisvænir
bílar á betra verði. Allir bílar frá Chevrolet hafa lækkað í verði.
Gæði í 100 ár
Ár slaufunnar
B
íll
á
m
yn
d:
S
pa
rk
L
T
m
eð
á
lf
el
gu
m
.
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
ORATORS
- félag laganema við
Háskóla Ísland
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja.
Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
FJÖLNOTAPAPPÍR25
afsláttur
í janúar
með 25% afslætti 2.996kr5x500 blöð A4 3.995kr