Fréttablaðið - 20.01.2011, Page 22
20. 2
„Viðtökurnar fóru fram úr
björtustu vonum, við erum
enn í skýjunum yfir þessu öllu
saman,“ segir Helga Viðars-
dóttir, markaðsstjóri 66°Norð-
ur, sem efndi á dögunum til
tískusýningar í New York
þar sem haust- og vetrar lína
fyrirtækisins árið 2011 var
sýnd. Fullt var út úr dyrum
meðan á tískusýningunni
stóð og varð að vísa mörg-
um frá.
Þetta er í fyrsta sinn sem
66°Norður stendur fyrir
tískusýningu af þessu tagi
utan landsteinanna. „Við
tjölduðum þarna öllu til,
sýndum línuna eins og hún
leggur sig, allt frá kuldaúlpum
niður í ullarklæðnað,“ segir Helga
og bendir á að undanfarið hafi verið birt-
ast jákvæðar umsagnir um fatalínuna í
fjölmiðlum og á tískubloggsíðum ytra.
„Einn tók svo skemmtilega til orða að
nú væri loks hægt að taka á móti vetrin-
um vel búinn og flottur til fara, í hátísku-
fatnaði frá 66°Norður,“ segir Helga, en
fjöldi blaðamanna lét sjá sig á sýning-
unni þar á meðal frá The Huffington
Post og tímaritinu W, sem og stjörnur á
borð við Josh Strickland, úr raunveru-
leikaþættinum Holly´s World og stórir
endursöluaðilar.
Fleira íslenskt var þó á sýningunni
en klæðnaður. Boðið var upp á drykki
frá Reyka Vodka og mat frá Lava, veit-
ingastað Bláa lónsins og íslenska tónlist.
„Þetta var ekki aðeins verið tískusýning
heldur allsherjar landkynning,“ bendir
Helga á og segir stefnt að því að endur-
taka leikinn að ári. roald@frettabladid.is
Útsölustaðir:
Apótekið, Árbæjarapótek, Lyfjaval, Lyfjaver,
Lyfja, Rima Apótek, Reykjavíkur ap., HNLFÍ,
ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
5.000 KR. DAGAR Í FLASH
Tískuvikan í Berlín stendur nú sem hæst og að vanda kennir þar
ýmissa grasa. Á meðfylgjandi mynd má sjá sýnishorn frá umfangsmikilli
undirfatasýningu sem var einn af þeim fjölmörgu spennandi viðburðum
sem boðið var upp á í ár.
ALLSHERJAR
landkynning
Fyrirtækið 66°Norður stóð fyrir umfangsmikilli sýningu á haust- og
vetrarlínu sinni 2011 í New York á dögunum. Fjöldi blaðamanna mætti
og eru jákvæðar umsagnir um fatalínuna farnar að birtast víða.
Tíska er siður, venja,
breytileg eftir breyti-
legum smekk, ríkjandi
um skemmri eða lengri
tíma, einkum í klæða-
burði og snyrtingu.
Íslenska orðabókin.