Fréttablaðið - 20.01.2011, Page 30
20. JANÚAR 2011 FIMMTUDAGUR
TÖKUM HÖNDUM SAMAN
OG STYÐJUM STRÁKANA OKKAR
TIL SIGURS!
Hringdu núna í síma 907 1020
og þú styrkir HM liðið okkar
um 2.000 kr.
Hugmyndaflugi uppfinningamanna virðast engin takmörk sett.
Eftir örlítinn rúnt um hið víða internet fundust eftirfarandi græjur
sem fá tæknilúða líklega til að hoppa hæð sína í loft upp af kæti.
Töfrasproti sem skipt-
ir um sjónvarpsstöð
ScentScape er ný græja frá fyrirtækinu
Scent Sciences. Hana er hægt að tengja
við leikjatölvur og gefur hún frá sér lykt
sem tengist því sem gerist í leiknum.
Ef leikurinn berst inn í skóg gefur tækið
frá sér ilm af greni, en sjávarlykt ef tölvu-
leikurinn gerist í sjó. Frá þessu er greint á
vefsíðu Daily Mail.
Á vefsíðunni www.boysstuff er að
finna ýmis furðutæki. Til dæmis er þar
hægt að festa kaup á SAS-njósnara-
penna. Í pennanum er örsmá mynda-
tökuvél. Hverjum slík vél kæmi að
notum, fyrir utan njósnara hennar
hátignar, er ekki gott að segja, en
skemmtilegur er hann. Penninn getur
tekið upp allt að 15 klukkustundir af
efni. Inni í pennanum er USB-tengi og
því auðvelt að hlaða efni inn á tölvu.
Á sömu vefsíðu má kaupa nýstár-
legan kodda með innbyggðum há-
tölurum og tengi fyrir iPod, MP3,
geislaspilara og fleira. Með þessari
nýju lausn losna menn við hin
óþægilegu heyrnatól sem oft geta
verið þreytandi en fá í stað þess
mjúka höfuðhvílu með uppáhalds-
tónlistinni sinni. Ekki þarf rafhlöður
í púðann en hátalararnir virka í raun
eins og heyrnartól.
Þó að Transformer-myndin sé nokkurra ára
gömul má minnast á græjur sem komu fram á
svipuðum tíma. Þær kallast The Real Gear Trans-
formers series en þar er að finna farsíma, mynda-
vélar, leikjatölvur og minnislykla sem geta
breyst í vélmenni á borð við þau sem sjást í
myndinni Transformers. Þessar græjur fund-
ust á vefsíðunni technabob.com.
Vefsíðan coolquirks.com er bráðskemmtileg en þar er bent á ýmsar græjur. Til
dæmis „Air Hogs Hawk Eye“ sem er fjarstýrð þyrla með innbyggðri myndavél.
Einnig er á síðunni bent á „The Magic Wand Remote Control“ sem er töfrasproti
með tæknibrellu. Hægt er að kenna sprotanum allt að þrettán skipanir og þannig
hægt að hækka og lækka hljóðið í sjónvarpinu, skipta um stöð og slökkva. Eigandi
sprotans verður mikilvægasti maður heimilisins og líklega sá svalasti.