Fréttablaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 48
20. janúar 2011 FIMMTUDAGUR32
sport@frettabladid.is
ALEXANDER PETERSSON fór í gær í myndatöku vegna meiðsla á hné sem hann varð fyrir í Austurríkisleiknum en niðurstaðan úr
henni kemur ekki í ljós fyrr í dag. Óheppnin heldur áfram að elta örvhentu skytturnar í íslenska landsliðinu því Ólafur Stefánsson meiddist
líka á hné í opnunarleiknum en meiðslin reyndust lítilvæg og Alexander sjálfur var nokkuð bjartsýnn í gær á að geta klárað keppnina.
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
HANDBOLTI Íslenska landsliðið
hefur fengið 53 mörk frá hægri
vængnum í fjórum fyrstu leikj-
unum á HM í Svíþjóð en 18 þeirra
hafa komið úr óvæntri átt. Þórir
Ólafsson hefur heldur betur
stimplað sig inn í hugi og hjörtu
íslensku þjóðarinnar fyrstu fimm
daga heimsmeistarakeppninnar
því hann hefur öðrum fremur
séð til þess að íslenska liðið hefur
ekki fundið eins mikið fyrir því
að missa landsliðsfyrirliðann
Ólaf Stefánsson í meiðsli. Þórir
hefur nýtt 90 prósent skota sinna
á mótinu (18 mörk í 20 skotum) og
hefur skorað 4,5 mörk að meðal-
tali í leik.
Fór til Þýskalands árið 2005
Þórir kemur frá Selfossi en lék
þrjú tímabil með Haukum áður
en hann fór í atvinnumennsku
til Þýskalands árið 2005. Þórir
hefur spilað öll árin sín í atvinnu-
mennskunni með TuS N-Lübbecke
og sýndi liðinu tryggð þegar það
féll úr úrvalsdeildinni. Þórir
hjálpaði liðinu síðan upp í
deildina aftur og hefur
verið fyrirliði liðsins
síðustu tvö tímabil.
Þórir er að eiga sitt
besta tímabil í þýsku deildinni í
vetur en hann hefur skorað 4,9
mörk að meðaltali í leik en hann
skoraði 3,9 mörk að meðaltali í
fyrravetur.
Þegar kemur að landsliðinu
þá eru margar ástæður fyrir því
að Þórir hefur „aðeins“ náð að
spila 57 landsleiki á tíu árum og
að hann sé bara á sínu öðru stór-
móti. Ísland hefur tekið þátt í ell-
efu stórmótum síðan hann lék sinn
fyrsta landsleik fyrir tíu árum.
Þorbjörn Jensson valdi Þóri í
æfingahóp sinn fyrir HM í Frakk-
landi 2001. Þórir fékk að spila sinn
fyrsta leik í lokaleik Íslands fyrir
keppnina sem var á móti Banda-
ríkjamönnum á Selfossi. Þórir átti
frábæra innkomu í seinni hálfleik
og skoraði fimm mörk við gríðar-
legan fögnuð áhorfenda. Hann var
þó ekki valinn í HM-hópinn og
átti ekki eftir að spila aftur fyrir
lands liðið í 40 mánuði eða þang-
að til Guðmundur Guðmundsson
valdi hann í hópinn fyrir æfinga-
mót í Belgíu í maí 2004.
Fyrsta stórmótið var EM í Sviss
Viggó Sigurðsson valdi hann í
hópinn fyrir heimsbikarinn 2004
þar sem hann skoraði 7 mörk í
4 leikjum en Þórir komst ekki í
HM-hópinn í Túnis 2005. Þórir
var hins vegar með í fyrsta leik
eftir HM og fékk síðan sitt fyrsta
tækifæri á stórmóti á EM í Sviss
2006. Hann fékk samt ekki mikið
að spreyta sig hjá Viggó í Sviss.
Þórir datt síðan aftur út mynd-
inni þegar Alfreð Gíslason tók við
landsliðinu og hann var ekki val-
inn í landsliðið fyrr en Guðmund-
ur Guðmundsson kallaði á hann
fyrir undankeppni EM 2010. Hér
spiluðu líka meiðsli inn í enn hann
var mikið meiddur tímabilið 2007
til 2008, lenti í því fyrst að við-
beinsbrotna og meiddist síðan
aftur á öxl undir lok tímabilsins.
Þórir kom hins vegar sterk-
ur inn í undankeppni EM 2010.
Ólafur Stefánsson hafði tekið sér
frí frá landsliðinu og Þórir fékk
því strax mikilvægt hlutverk.
Hann skoraði 25 mörk í 8 leikjum
í undankeppninni og var einn
af markahæstu leikmönnum
íslenska liðsins.
Þórir var því að
sjálfsögðu valinn í
hópinn fyrir EM í
Austur ríki og virt-
ist öruggur með
sitt sæti þegar áfallið dundi
yfir nokkrum dögum fyrir mót.
Þórir hafði þá verið á batavegi
eftir meiðsli á vinstri kálfavöðva
en meiðslin tóku sig upp á ný á
æfingu með landsliðinu og svo fór
að hann gat ekki verið með.
Þórir spilaði fyrstu landsleikina
eftir EM og var með á móti Lett-
landi í undankeppni EM í október.
Hann meiddist hins vegar í þeim
leik og gat ekki verið með á móti
Austurríki nokkrum dögum síðar.
Þórir var síðan ekki með í heims-
bikarnum og fékk ekki mikið að
spreyta sig í leikjunum á móti
Þýskalandi eða í fyrsta leiknum
á HM á móti Ungverjum. Það leit
því ekki út fyrir það að hann fengi
stórt hlutverk í Svíþjóð.
Þegar Ólafur Stefánsson meidd-
ist opnuðust hins vegar dyrnar
fyrir Þóri og hann nýtti tæki-
færið frábærlega. Þórir skoraði 5
mörk úr 6 skotum á móti Brasilíu,
7 mörk úr 7 skotum á móti Japan
og loks 5 mörk úr 6 skotum á móti
Austurríki, allt í seinni hálfleikn-
um. Frábær skottækni nýtist einn-
ig í vítunum sem hann hefur nýtt
hundrað prósent í keppninni.
Eftir öll vonbrigðin og meiðsla-
vandræðin þá er með sanni hægt
að segja að fáir hafa átt það jafn-
mikið inni að blómstra og einmitt
Þórir Ólafsson sem vonandi held-
ur áfram að nýta færin sín jafn
vel það sem eftir lifir af HM í Sví-
þjóð.
ooj@frettabladid.is
Þórir hefur slegið í gegn
Þórir Ólafsson lék sinn fyrsta landsleik fyrir áratug en er nú að fá sitt fyrsta
alvöru tækifæri á stórmóti á HM í handbolta. Þessi 31 árs Selfyssingur hefur
verið óheppinn með meiðsli á ferlinum en nýtir nú færin og tækifærið vel.
18 MÖRK ÚR 20 SKOTUM Þórir Ólafsson
er með langbestu skotnýtinguna af
leikmönnum íslenska landsliðsins á HM
í Svíþjóð. Hér skorar hann eitt marka
sinn á móti Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þórir Ólafsson
31 árs hægri hornamaður
Fæddur: 28.11.1979
Hæð/Þyngd: 189 cm / 84 kg
Félag: TuS Nettelstedt-Lübbecke
Landsleikir/mörk: 57/130
Hver valdi hann fyrst: Þorbjörn Jens-
son, 2001
Stórmót númer: Annað (fyrsta HM)
Fyrsta stórmót: EM í Sviss 2006
Leikir/mörk á stórmótum: 9/19
ÓLÝSANLEG LÝSING Á STÖÐ 2 SPORT 4
ICELANDAIR STYÐUR LANDSLIÐIN
ÍSLAND – NOREGUR
Í DAG KL. 18:10
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
32
51
0
1/
11
UPPLIFÐU LEIKINN Á NÝJAN HÁTT ÞEGAR AUDDI STJÓRNAR
BEINNI LÝSINGU Á IBS.IS OG STÖÐ 2 SPORT 4.
GESTUR: LOGI GEIRSSON
VERTU VINUR
ÍBS Á FACEBOOK
FÓTBOLTI Íslands og bikarmeist-
arar Vals halda áfram að missa
leikmenn því landsliðsfyrirliðinn
Katrín Jónsdóttir hefur gert
samning við sænska úrvals-
deildar liðið Djurgården.
Áður höfðu leikmaður ársins,
Dóra María Lárusdóttir, og mark-
vörðurinn María B. Ágústsdóttir
yfirgefið Val. Katrín hefur leikið
með Valsliðinu frá 2006 en var í
sjö ár í Noregi þar sem hún spil-
aði með Kolbotn og Grimstad.
Katrín, sem er 33 ára gömul,
mun líka halda áfram með
íslenska landsliðinu en hún
hefur spilað 102 landsleiki fyrir
íslenska kvennalandsliðið. - óój
Katrín Jónsdóttir fer frá Val:
Búin að semja
við Djurgården HM í handbolta:
A-RIÐILL
Barein-Túnis 21-28
Þýskaland-Frakkland 23-30
Spánn-Egyptaland 31-18
STAÐAN
Frakkland 4 4 0 0 131-78 8
Spánn 4 4 0 0 111-82 8
Þýskaland 4 2 0 2 115-99 4
Túnis 4 1 0 3 88-101 2
Egyptaland 4 1 0 3 89-112 2
Barein 4 0 0 4 78-140 0
C-RIÐILL
Serbía-Króatía 24-24
Danmörk-Alsír 26-19
Ástralía-Rúmenía 14-29
STAÐAN
Danmörk 4 4 0 0 147-88 8
Króatía 4 3 1 0 119-75 7
Serbía 4 2 1 1 111-101 5
Rúmenía 4 1 0 3 94-95 2
Alsír 4 1 0 3 73-91 2
Ástralía 4 0 0 4 59-153 0
Frekari umfjöllun um leiki dagsins og mögu-
leika liðanna má finna á Vísir.is
Eimskipsbikar kvenna
HK-Stjarnan 30-29
Elísa Ósk Viðarsdóttir 9, Brynja Magnúsdóttir 9
- Hanna Guðrúnn Stefánsdóttir 9, Jóna Margrét
Ragnarsdóttir 6.
Valur2-Fram 12-46
Valur, Fylkir, HK og Fram verða í pottinum þegar
dregið verið í undanúrslitin.
ÚRSLITN Í GÆR
FÓTBOLTI Arsenal tryggði sér leik
á móti Huddersfield Town í 4.
umferð enska bikarsins með 3-
1 sigri á Leeds á Elland Road í
gær. Þetta var endurtekinn leikur
eftir að liðin gerðu 1-1 jafntefli á
Emirates fyrir ellefu dögum.
Samir Nasri og Bacary Sagna
komu Arsenal í 2-0 eftir 35 mín-
útur en það tók Leeds aðeins
tvær mínútur að minnka muninn
þegar Bradley Johnson skoraði
með glæsilegu langskoti.
Robin van Persie innsiglaði
sigur Arsenal á 76. mínútu með
skalla eftir fyrirgjöf frá Danan-
um Nicklas Bendtner. - óój
Enski bikarinn í gærkvöldi:
Arsenal sló
Leeds-liðið út
BACARY SAGNA Skoraði frábært mark
fyrir Arsenal í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP