Fréttablaðið - 20.01.2011, Síða 50
34 20. janúar 2011 FIMMTUDAGUR
Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is
Baráttukveðjur
frá VÍS!
Strákarnir okkar eru svo skemmtilega
ólíkir og okkur þykir óskaplega vænt
um þá alla. VÍS er stoltur styrktaraðili
íslenska landsliðsins á HM í Svíþjóð.
HM 2011 Íþróttamaður ársins,
Alexander Petersson, hefur farið
algjörlega á kostum með íslenska
landsliðinu á HM. Skorað frábær
mörk, tekið af skarið, staðið vakt-
ina í vörninni með eindæmum vel
og stolið fjölda bolta.
„Ég er mjög ánægður með mína
frammistöðu hérna. Ég reyni að
gefa allt sem ég á. Það geri ég allt-
af. Það hefur bara gengið vel.“
Þetta hefur einnig verið tíðinda-
mikið mót fyrir hann að því leyti
að hann hefur gengið frá samn-
ingi við Rhein-Neckar Löwen, sem
hann reyndar spilar ekki með fyrr
en eftir eitt og hálft ár. Hann fer
því ekki strax frá Berlin.
„Það er svolítið skrítið að semja
við félag sem maður fer ekki til
fyrr en eftir langan tíma. Það er
samt mjög gott að vera öruggur
með góðan samning næstu fjögur
árin. Það veitir ákveðið öryggi sem
er gott að hafa,“ sagði Alexander,
sem hefur farið mikinn með Berl-
in í þýska handboltanum í vetur og
telur sig hafa unnið fyrir góðum
samningi hjá Löwen. Held að það
séu flestir sammála honum um
það.
„Ég er mjög ánægður með samn-
inginn. Þetta er alvöru samning-
ur og ég er búinn að vinna fyrir
honum lengi. Ég get því ekki annað
en brosað,“ sagði Alexander en for-
ráðamenn Berlin sögðust ekki hafa
getað keppt við peninga Jespers
Nielsen, eiganda Löwen.
Það vakti nokkra athygli að
Dagur Sigurðsson, þjálfari Berlin,
vandaði Alexander ekki kveðjurn-
ar í viðtali við Stöð 2 þegar frétt-
irnar bárust af nýja samningnum.
Hann gaf jafnvel í skyn að Alex-
ander myndi eyða næstu 18 mán-
uðum í stúkunni.
„Ég var líka í viðræðum við
Berlin og þeir vissu vel af samn-
ingaviðræðunum við Löwen. Dagur
vissi líka af þeim. Auðvitað finnst
þeim leiðinlegt að missa mig en
svona er þetta. Ég talaði við Dag
eftir Austurríkisleikinn og hann
sagðist hafa verið með gálgahúm-
or í viðtalinu. Það stæði því ekki til
að setja mig í stúkuna næsta eina
og hálfa árið,“ sagði Alexander og
bætti við að það hefði nánast verið
búið að ganga frá þessum samn-
ingi áður en hann kom til Svíþjóð-
ar með landsliðinu.
Í dag er lokaleikur íslenska liðs-
ins í riðlakeppninni og í raun má
líta á þann leik sem leik í milliriðli.
Bæði Ísland og Noregur eru komin
áfram og það lið sem vinnur tekur
með sér stigin úr leiknum í milli-
riðilinn.
„Við fengum alvöruleik gegn
Austurríki og þetta verður örugg-
lega líka hörkuleikur. Við erum í
góðri stöðu og við getum vel lagt
Norðmenn. Það væri vissulega
mjög gott að fara með fjögur stig
í milliriðilinn. Við erum enn
að hugsa bara um einn leik
í einu,“ sagði Alexander,
sem er sáttur við leik liðs-
ins hingað til og sérstak-
lega varnarleikinn.
„Það er erfitt að eiga
við þessa vörn hjá okkur.
Það er mikil vinnsla og við
erum aðeins þreyttir sem
stöndum mest í vörninni. Sverre
og Diddi fá reyndar að hvíla í
sókninni þannig að þeir geta ekki
kvartað yfir þreytu,“ sagði Alex-
ander léttur.
Ég reyni að gefa allt sem ég á
Alexander Petersson hefur verið besti maður Íslands á HM hingað til. Það gengur mikið á í hans lífi þessa
dagana enda búinn að semja við nýtt félag. Hann býst ekki við að enda í stúkunni vegna félagaskiptanna.
FÓRNAR ÖLLU Í VARNARLEIKINN Alexander Petersson hefur spilað frábærlega í vörn
og sókn með íslenska handboltalandsliðinu á HM í Svíþjóð. Hér sést hann í baráttu
við Austurríkismann í sigurleiknum í fyrrakvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Henry Birgir
Gunnarsson
og Valgarður
Gíslason
fjalla um HM í Svíþjóð
henry@frettabladid.is - valgard.gislason@365.is
HM 2011 Dagarnir eru langir hjá
Guðmundi Guðmundssyni og þjálf-
arateyminu hans í Svíþjóð. Hann
undirbjó lið sitt af kostgæfni í gær
fyrir leikinn gegn Noreg í dag. Það
var myndbandsfundur, æfing og
svo annar fundur.
„Það verða þrír myndbandsfund-
ir fyrir þennan leik og við erum
aðallega að fara yfir okkar sóknar-
leik. Við þurfum að bæta hann.
Hann er of hikandi og við erum að
taka of mikla áhættu í sóknarleikn-
um. Við erum að gefa slakar send-
ingar sem okkur er refsað fyrir.
Það er allt of dýrt að fá öll þessi
hraðaupphlaup á okkur. Það býr
meira í okkur en við sýndum gegn
Austurríki og stefnan er að laga
það fyrir Noregsleikinn,“ sagði
Guðmundur en hann segir alltaf
þurfa að gera ákveðnar áherslu-
breytingar fyrir hvern leik.
„Það sem við þurfum að var-
ast hjá Norðmönnum er samvinna
Borge Lund og Bjarte Myrhol í
sókninni. Við þurfum að bregðast
rétt við leikkerfunum þeirra og
svo eru þeir með hættuleg hraða-
upphlaup sem þeir munu klár-
lega reyna að keyra þétt í bakið á
okkur þar sem við skiptum tveim-
ur mönnum úr sókn í vörn,“ sagði
Guðmundur sem ætti að eiga ein-
hver svör enda þjálfar hann bæði
Lund og Myrhol.
„Það eru veikleikar í þeirra
varnarleik og við ætlum að nýta
okkur þá. Við munum koma með
tvo til þrjá nýja hluti í okkar
sóknar leik. Norðmenn hafa reynst
okkur erfiðir síðustu ár og því
myndi ég segja að það væri helm-
ingsmöguleiki á sigri.“ - hbg
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir Norðmenn vera afar hættulega andstæðinga:
Verðum að nýta okkur þeirra veikleika
SNORRI STEINN Hvetur hér félaga sína í
íslensku vörninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Íslendingar geta náð
einstökum árangri í sögu sinni á
HM vinni þeir Norðmenn í kvöld.
Það yrði þá í fyrsta sinn sem
strákarnir okkar vinna fyrstu
fimm leiki sína á heimsmeistara-
móti.
Íslenska liðið jafnaði metið
með sigri á Austurríki í fyrra-
kvöld en Ísland vann einnig fjóra
fyrstu leiki sína á HM í Portúgal
2003 þegar liðið var einnig undir
stjórn Guðmundar Guðmunds-
sonar. Íslenska liðið tapaði 29-34
fyrir Þýskalandi í fimmta leikn-
um fyrir sjö árum og endaði í 7.
sæti.
Ísland tapaði ekki í fyrstu sex
leikjum sínum á HM í Kumamoto
1997 en gerði þá jafntefli við
Alsír í leik tvö. - óój
Ísland á HM í handbolta:
Hefur aldrei
unnið fyrstu 5
ARNÓR Hefur skorað 17 mörk í síðustu
tveim leikjum við Noreg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HM 2011 Norðmenn hafa verið án
stórskyttunnar Kristians Kjell-
ing í síðustu tveim leikjum og
það hefur ekki leynt sér að þeir
hafa saknað hans mikið. Hann
hefur verið veikur en það mátti
sjá í gær að hann er á batavegi
og Norðmenn stefna á að tefla
honum fram í leiknum.
Það eru ekki góð tíðindi fyrir
Ísland enda er Kjelling mikil
skytta sem erfitt getur verið að
ráða við. Svo þarf Ísland líka að
hafa góðar gætur á Kjetil Strand
sem skaut liðið í kaf með 19
mörkum á EM í Sviss 2006. – hbg
Kristian Kjelling hjá Noregi:
Spilar í dag
KRISTIAN KJELLING Skoraði 6 mörk á
moti Íslandi á EM 2010. MYND/AFP