Fréttablaðið - 26.01.2011, Qupperneq 22
26. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR6
Gísli Jónsson er nýkominn heim úr
rúmlega mánaðarlangri ferð á suð-
urpólinn. Þangað hélt hann ásamt
sex öðrum Íslendingum á vegum
Arctic Trucks til að aka 6x6 Hilux-
bílum sem eru nýjasta afurð fyrir-
tækisins.
„Við smíðuðum tvo sex hjóla bíla
og tvo fjögurra hjóla fyrir fyrir-
tæki sem heitir Extreme World
Races. Það stendur fyrir ýmis
konar ofurkeppnum og fór ein
þeirra fram í lok nóvember,“ segir
Gísli sem hélt utan 25. nóvember.
„Þetta var gönguskíðakeppni milli
þýsks og austurrísks liðs og voru
í liðunum frægir menn á borð við
austurríska skíðagarpinn Hermann
Maier og þýska sjón-
varpsmanninn Mar-
cus Lanz,“ útskýrir
Gísli en úrslitin má
hann ekki ræða
enda verið
að búa til
sjónvarps-
þætti um
keppnina.
„Við Íslend-
ingarn-
ir sáum um
leiðavalið og undirbúningsvinnu
við bíla og farartæki og fylgdum
keppendum eftir á vel útbúnum bíl-
unum,“ segir Gísli sem sneri heim
þann 15. janúar.
Að sögn Gísla eru Arctic Trucks
að fara æ meira út í meiri hátt-
ar breytingar og smíði á bílum.
„Þessir sex hjóla bílar eru í raun
að stærstum hluta Arctic Trucks-
bílar byggðir á grunni Toyotu
Hilux,“ útskýrir hann en bílarnir
eru sérhannaðir til notkunar á póls-
væðunum. „Sexhjólabíllinn gefur
okkur meiri burð sem er mjög mik-
ilvægur eiginleiki á pólnum. Vega-
lengdirnar eru gríðarlegar og mikið
eldsneyti og farangur sem þarf að
flytja,“ segir Gísli. Eiginþyngd bíl-
anna er 2,6 tonn en hægt er að lesta
þá í kringum 3 til 3,5 tonn.
Bílarnir frá Arctic Trucks hafa
vakið mikla athygli enda
bjóða þeir upp á lausnir
sem ekki hafa þekkst
áður. „Við
fórum yfir hásléttu Suðurskauts-
landsins frá Novo, á pólinn, og til
baka, alls 5.000 km, á tíu dögum.
Meðaleyðsla á eldsneyti var 45
lítrar á hundraðið sem er nánast
óþekkt á þessu svæði enda eyða
snjóbílar um 250 til 500 lítrum á
hundraðið,“ segir Gísli og bend-
ir á að bílarnir séu þannig mun
umhverfisvænni kostur en önnur
farartæki.
Bílarnir fjórir verða áfram á
Suðurskautslandinu. en þeir eru nú
eigu rússnesks fyrirtækis, ALCI,
sem sér um flug frá Höfðaborg til
Novo . „Við sjáum hins vegar um
allt viðhald á bílunum og sköffum
bílstjóra,“ segir Gísli en aðeins er
hægt að vera með svona starfsemi á
Suðurskautslandinu í þrjá mánuði á
ári, frá nóvember og fram í janúar.
„Hina mánuðina er allt of kalt.“
Hann segir augu manna að opn-
ast fyrir kostum bílanna frá Arctic
Trucks. „Suðurskautsheimurinn er
lítill og öruggt að allir sem koma að
honum vita af okkur,“ segir hann.
Fjórir til sex bílar eru í farvatninu
og verða fluttir á pólinn á næsta
og þarnæsta ári og því nóg um að
vera hjá Arctic Trucks á næstunni.
solveig@frettabladid.is
Á sex hjólum á Suðurpól
Arctic Trucks hefur farið æ meira út í meiri háttar breytingar á bílum. Nýjasta afurðin er sex hjóla Hilux
sérsmíðaður til notkunar á pólsvæðunum. Tveir slíkir voru fluttir til Suðurskautslandsins í lok nóvember.
Aron Reynisson, Gísli Jónsson og Guðmundur Guðjónsson frá Arctic Trucks fylgdu eftir gönguskíðagörpum frá Þýskalandi og
Austurríki sem kepptu í skíðagöngu á Suðurskautslandinu.
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is
Þegar þú vilt fá það besta út úr lífinu!
Faxafeni 14 www.heilsuborg.is
„Fylltu á tankinn“
Fimmtudaginn 27. janúar, kl. 19.30-22.00
• Fjallað verður á hvetjandi hátt um samskipta-
færni og hvað við getum gert til að hlaða okkur
orku og halda í sjálfstraust og kraft á krefjandi
tímum!
• Fyrirlestur, óskaspjöld og happdrættisvinningar
• Gómsætir heilsudrykkir frá Arka
• Frjáls aðgangur að heilsurækt Heilsuborgar í
eina viku
• Verð aðeins kr. 3.000.-
(20% afsl. fyrir korthafa Heilsuborgar)
• Skráning í síma 560 1010 eða á
mottaka@heilsuborg.is
Létt og uppbyggileg kvöldstund með félags- og
fjölmiðlafræðingnum Sirry í Heilsuborg
Síðast var uppselt.
Aðeins 50 manns komast að
í þetta skipti. Skráðu þig núna!
Hringdu núna í síma 907 1020
og þú styrkir HM liðið okkar
um 2.000 kr.
TÖKUM HÖNDUM SAMAN
OG STYÐJUM STRÁKANA OKKAR
TIL SIGURS!
Uppruna íshokkís
má rekja til knattleiks
sem Micmac-indíanar
stunduðu snemma á
19. öld í Nova Scotia á
austurströnd Kanada.
Hann virðist skyldur
írska leiknum hurling,
en þar er notuð kylfa
til að slá viðarkubb.
Skoskir og írskir inn-
flytjendur breiddu
hann út um Kanada
ásamt breskum her-
mönnum, og bættu
þeir við hann þáttum
úr hokkí.
visindavefur.is