Fréttablaðið - 07.02.2011, Qupperneq 40
7. febrúar 2011 MÁNUDAGUR24
sport@frettabladid.is
FRAMSTÚLKUR eru úr leik í Evrópukeppni bikahafa eftir tvö töp gegn þýska liðinu HSG Blomberg.
Leikirnir töpuðust með einu og tveimur mörkum. Niðurstaðan mikil vonbrigði fyrir Fram sem ætlaði sér
stærri hluti í þessari keppni og keypti meðal annars útileikinn af þýska liðinu
Viltu vita hvers virði eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga.
Hringdu núna
699 5008
Hannes Steindórsson
Sölufulltrúi
hannes@remax.is
Sími: 699 5008
Þórarinn
Jónsson hdl.
lögg. Fasteignasali
Poweradebikar karla:
KR-Tindastóll 81-69
KR: Marcus Walker 16/5 fráköst/6 stolnir, Finnur
Atli Magnússon 12/6 fráköst, Pavel Ermolinskij
11/14 fráköst/12 stoðsendingar/5 stolnir, Brynjar
Þór Björnsson 10/6 fráköst, Jón Orri Kristjáns-
son 10/4 fráköst, Fannar Ólafsson 8/9 fráköst,
Hreggviður Magnússon 8, Ólafur Már Ægisson
3, Skarphéðinn Freyr Ingason 2, Páll Fannar
Helgason 1.
Tindastóll: Hayward Fain 32/14 fráköst, Drag-
oljub Kitanovic 25, Sean Kingsley Cunningham
5/6 fráköst, Friðrik Hreinsson 4/5 stoðsendingar,
Helgi Rafn Viggósson 2, Helgi Freyr Margeirsson
1.
Haukar-Grindavík 70-82
Haukar: Semaj Inge 26/9 fráköst, Gerald Robin-
son 13/15 fráköst/3 varin skot, Haukur Óskarsson
12/4 fráköst/3 varin skot, Sveinn Ómar Sveinsson
10/7 fráköst, Örn Sigurðarson 7, Emil Barja 2/4
fráköst.
Grindavík: Kevin Sims 25/4 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Páll Axel Vilbergsson 21/4 fráköst, Þorleifur
Ólafsson 17/8 fráköst/5 stoðsendingar/6 stolnir,
Ólafur Ólafsson 7/9 fráköst/4 varin skot, Ryan
Pettinella 4/7 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 4,
Ármann Vilbergsson 3, Helgi Björn Einarsson
1/4 fráköst.
Poweradebikar kvenna:
KR-Hamar 65-60
KR: Margrét Kara Sturludóttir 25/12 fráköst,
Chazny Paige Morris 20/5 fráköst, Hildur
Sigurðardóttir 7/9 fráköst/6 stoðsendingar, Signý
Hermannsdóttir 5/6 fráköst, Helga Einarsdóttir
3/6 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 3/5 fráköst,
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 2/13 fráköst.
Hamar: Jaleesa Butler 23/12 fráköst/6 varin skot,
Kristrún Sigurjónsdóttir 11/5 fráköst/5 stolnir,
Slavica Dimovska 11/6 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir
7, Guðbjörg Sverrisdóttir 6/6 fráköst, Fanney Lind
Guðmundsdóttir 2/5 fráköst.
N1-deild kvenna:
Valur-Stjarnan 26-24
Valur: Kristín Guðmundsdóttir 6, Karólína Gunn-
arsdóttir 5, Hildigunnur Einarsdóttir 4, Ragnhildur
Guðmundsdóttir 3, Anna Úrsula Guðmundsdóttir
3, Hrafnhildur Skúladóttir 2, Dagný Skúladóttir 2,
Stjarnan: Hanna G. Stefánsdóttir 8, Elísabet
Gunnarsdóttir 3, Sólveig Lára Kjærnested 3,
Gunnur Sveinsdóttir 3, Esther Viktoría Ragnars-
dóttir 3, Kristín Clausen 2, Hildur Harðardóttir 1,
Haukar-ÍBV 21-27
Haukar: Erla Eiríksdóttir 5, Hekla Hannesdóttir
4, Karen Sigurjónsdóttir 3, Þórdís Helgadóttir 2,
Viktoría Valdimarsdóttir 2, Gunnhildur Pétursdótt-
ir 2, Katarína Baumruk 1, Agnes Ósk Egilsdóttir 1.
ÍBV: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 6, Aníta Elías-
dóttir 6, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Ester Ósk-
arsdóttir 4, Renata Horvath 4, Rakel Hlynsd. 2.
Grótta-HK 16-25
Grótta: Sigrún Birna Arnardóttir 4, Eva Björk Dav-
íðsdóttir 3, Björg Fenger 2, Lovía Jóhannsdóttir
2, Ásrún Birgisdóttir 2, Fríða Jónsdóttir 1, Guðný
Halldórsdóttir 1, Ásgerður Jóhannesdóttir 1.
HK: Brynja Magnúsdóttir 8, Tinna Rögnvaldsdóttir
4, Elín Anna Baldursdóttir 4, Auður Ómarsdóttir 2,
Harpa Baldursdóttir 2, Gerður Arinbjarnar 1, Elísa
Ósk Viðarsdóttir 1, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1.
FH-ÍR 29-17
FH: Margrét Ósk Aronsdóttir 6, Heiðdís Guð-
mundsdóttir 5, Steinunn Snorradóttir 5, Sigrún
Jóhannsdóttir 3, Aníta Ægisdóttir 2, Berglind
Björgvinsdóttir 2, Hafdís Kristinsdóttir 2, Sigrún
Gilsdóttir 1, Birna Íris Helgadóttir 1, Hind Hannes-
dóttir 1, Ingibjörg Pálmadóttir 1.
ÍR: Sif Jónsdóttir 6, Elizabeta Kowal 4, Þorbjörg
Steinarsdóttir 3, Silja Ísberg 3, Steinunn Svein-
björnsdóttir 1.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI „Maður er að skríða
saman hægt og rólega. Þetta er
bara eintóm hamingja,“ sagði
körfuboltaþjálfarinn Hrafn Kristj-
ánsson þegar undirritaður heyrði í
honum hljóðið í gær. Hrafn þjálfar
bæði karla- og kvennalið KR sem
unnu um helgina undanúrslitaleiki
sína í Powerade-bikarnum.
Kvennaliðið byrjaði á því að vera
fyrst liða til að leggja Hamar að
velli, vann 65-60 sigur í spenn-
andi leik. „Við höfðum spilað mjög
grimma og jafna leiki við þær í
deildinni. Við vissum að við yrðum
aftur í þannig leik og ættum alla
möguleika á að klára hann með
sigri,“ sagði Hrafn.
„Það er alltaf þannig að maður
reynir hitt og þetta yfir leikinn
og það gengur ekki allt upp. Við
fórum í svæðisvarnarafbrigði
í fyrri hálfleik sem var ekki að
ganga upp og við urðum að vinna
upp í einhvern tíma. Það gekk hins
vegar frábærlega upp gegn þeim
síðast. Heilt yfir þá var ákafinn og
andinn sem við ætluðum að koma
með inn í leikinn til staðar. það
var kannski það sem skilaði þessu
í lokin.“
Lítill tími til þess að fagna fyrri
sigrinum
Mikil gleði braust út hjá KR-
konum eftir leik.
„Þær voru í skýjunum. Í byrj-
un tímabils vissum við að það yrði
annar gangur á þessu frá síðasta
tímabili. Það voru ansi margar
frá meistaraliðinu farnar og það
var eiginlega alltaf okkar plan að
toppa með þetta lið einmitt á þess-
ari dagsetningu, þegar í undanúr-
slit bikarsins væri komið. Þá væri
liðið farið að gera sig gildandi sem
eitt af toppliðunum,“ sagði Hrafn.
Hann fékk ekki mikinn tíma
til að fagna sigri kvennaliðsins
því strax í kjölfarið var komið að
karlaliðinu að mæta Tindastóli.
Hrafn hrósaði Sauðkrækingum
fyrir þeirra nálgun.
„Þeir komu mjög vel undirbún-
ir til leiks og voru greinilega að
reyna að halda hraðanum niðri og
ná þannig að hanga á því að spila
á færri mönnum en við. Þeim
tókst það mjög vel fram eftir leik
en lenda svo í því að þurfa að nota
leikhléin örar en við og áttu bara
eitt leikhlé eftir.
Þá fórum við að pressa og þeir
kláruðu sitt síðasta leikhlé og þá
opnuðum við smá mun,“ sagði
Hrafn sem mun hafa í nægu að
snúast á sjálfan bikarúrslitadaginn
enda báðir úrslitaleikirnir leiknir
samdægurs.
„Ég fékk generalprufu í Lengju-
bikarnum. Það fór ekki eins og
lagt var upp með en var ákveðin
generalprufa fyrir það sem koma
skal. Það er ekkert nema gaman
að klæða sig upp í fínni fötin og
taka þátt í körfuboltaveislu í fjóra
til fimm tíma,“ sagði Hrafn en KR
var einnig í úrslitum hjá báðum
kynjum í Lengjubikarnum í byrjun
vetrar og þá var leikið í Höllinni.
Hrafn byrjar fljótlega að búa sig
undir daginn stóra.
„Undirbúningur hjá mér byrjar í
og með fljótlega en fókusinn á lið-
inu verður að vera á næsta leik;“
sagði Hrafn. elvargeir@frettabladid.is
Gaman að fara í fínni fötin
Hrafn Kristjánsson er á leið í Laugardalshöllina með bæði karla- og kvennalið
KR en lið hans báru sigur úr býtum í undanúrslitaleikjum sínum á laugardag
sem var stór dagur hjá honum. Hrafn var enn að skríða saman í gær.
SPARIKLÆDDUR Hrafn Kristjánsson verður í jakkafötunum í Laugardalshöllinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FRJÁLSAR Meistaramót Íslands
fór fram í Laugardalshöll um
helgina. ÍR varð Íslandsmeistari
fjórða árið í röð en félagið fékk
30.696 stig. HSK/Selfoss varð í
öðru sæti með 14.102 stig og FH
varð að sætta sig við þriðja sæti
með 13.951 stig.
ÍR vann kvennakeppnina með
gríðarlegum yfirburðum en ÍR-
stelpur fengu 19.305 stig en HSK/
Selfoss var með 8.456. UFA varð
í þriðja sæti með 6.887 stig. ÍR
vann einnig karlakeppnina með
11.391 stig en Breiðablik var ekki
langt á eftir með 9.190 stig. FH
þar rétt á eftir í þriðja sæti með
9.131 stig.
Búist var við því að metin
myndu falla á þessu móti en af
því varð alls ekki. Óhætt er að
segja að árangurinn á mótinu
hafi valdið vonbrigðum.
Aðeins eitt Íslandsmet var sett
og það kom í 4x400 metra boð-
hlaupi. Það met setti ÍR og bætti
met Breiðabliks sem hafði staðið
frá árinu 2008. - hbg
MÍ í frjálsíþróttum:
ÍR varð Íslands-
meistari
Á FLUGI Bjarni Malmquist Jónsson úr
Fjölni varð annar í langstökkinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HANDBOLTI Örvhenti hornamað-
urinn Ragnar Hjaltested hélt í
morgun til Noregs þar sem hann
mun spila með Kristiansund til
loka tímabilsins.
Þar hittir Ragnar fyrir fyrr-
um þjálfara sinn hjá HK, Gunnar
Magnússon.
Ragnar hefur ekkert leikið
handbolta í vetur og var orðað-
ur við nokkur lið fyrir áramót en
allt kom fyrir ekki. - hbg
Ragnar Hjaltested:
Samdi við
Kristiansund
KÖRFUBOLTI Það varð ljóst í gær að
Grindvíkingar verða mótherjar
KR í bikarúrslitunum þann 19.
febrúar. Grindavík vann sigur á
Haukum á útivelli 82-70. Leikur-
inn var jafn og spennandi allan
tímann en í síðasta fjórðungnum
voru þeir gulu mun sterkari.
„Grindavík er með reynslu-
mikið lið og þeir vita nákvæm-
lega hvað þeir eru að gera,“ sagði
Haukur Óskarsson, leikmaður
Hauka, eftir leikinn.
„Þeir tóku þennan leik ekkert á
meiri baráttu eða meiri hæfileik-
um heldur bara reynslunni.“
Það sást strax í byrjun leiks að
mikið var í húfi og hart var bar-
ist. Liðin skiptust á að hafa for-
ystuna í fyrsta leikhluta en gest-
irnir voru stigi yfir að honum
loknum.
Haukar leiddu þó í hálfleik með
tveggja stiga mun 35-33. Jafn-
ræðið hélt áfram þar til í síðasta
fjórðungnum er leiðir fór loks að
skilja.
Þegar liðin mættust í Grinda-
vík í deildarleik á dögunum unnu
Haukar sannfærandi sigur.
„Við vorum mjög slakir í síð-
ustu tveimur leikjum en núna var
miklu meiri karakter í liðinu. Við
mættum tilbúnir og kláruðum
dæmið.
Við erum alltaf að læra, svona
er bara boltinn. Svo lengi sem
menn átta sig á að það þarf að
laga eitthvað þá er þetta í lagi.
Það kemur niðursveifla hjá öllum
liðum,“ sagði Páll Axel Vilbergs-
son, leikmaður Grindavíkur. - egm
Haukar stóðu lengi vel í Grindavík í undanúrslitum Powerade-bikarsins í gær:
Reynslusigur hjá Grindvíkingum
GRIMMUR Semaj Inge og
félagar börðust vel fyrir
sínu í gær en það dugði
ekki til. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR