Fréttablaðið - 09.02.2011, Side 8
8 9. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
1 Hvað er ráðlagt í baráttunni við
Candida-sveppasýkingu?
2 Með hvaða sænska liði spilar
Logi Gunnarsson körfubolta?
3 Hvenær var aðdáendahátíð CCP
fyrst haldin hér á landi?
SVÖR
1. Magnesíum. 2. Solna. 3. 2002.
TONN AF
TÆKIFÆRUM
EÐA EINTÓMAR
ÓGNANIR?
Í tilefni af aðalfundi 2011 stendur Félag atvinnurekenda fyrir opnum fundi um
10. febrúar 2011 kl. 16-17.30 og fer fram í veitingahúsinu Nauthól. Félagsmenn í FA
athugið að aðalfundur félagsins fer fram kl. 14.00 sama dag á sama stað.
DAGSKRÁ
1. Ávarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra
2. „Iceland's Platform for Growth from the U.S. Perspective“
Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi
3. „Það er fleira hagræðing en uppsagnir“
Guðný Rósa Þorvarðardóttir, framkvæmdastjóri Parlogis
4. „Er óstöðugt rekstrarumhverfi náttúrulögmál?“
Bogi Þór Siguroddsson, stjórnarformaður Johan Rönning
Fundarstjóri: Hanna Katrín Friðriksson, viðskiptaþróun lyfjasviðs Icepharma
Skráning á fundinn fer fram á bjarndis@atvinnurekendur.is
Luis E. Arreaga
sendiherra
Bandaríkjanna
á Íslandi
VIÐSKIPTI
Á ÍSLANDI:
SAMKEPPNI Flugmálastjórn vísar á bug aðdróttun-
um um að vera handbendi ákveðins flugrekanda
enda leitast stofnunin við að veita heimildir í takt
við alþjóðlegt verklag í flugréttindum, en veitir
hins vegar ekki heimildir á grundvelli samkeppnis-
laga.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu Flugmálastjórnar
í gær. Með henni er brugðist við nýbirtri ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins. Flugmálastjórn segist taka
til sín þau atriði í áliti Samkeppniseftirlitsins sem
að stofnuninni snúa og kveður verklagi hafa verið
breytt. Þannig sé ekki lengur leitað álits íslenskra
flugrekenda á umsóknum erlendra flugrekenda.
Athugasemdir Samkeppniseftirlitsins sneru að
afgreiðslu á umsókn breska flugfélagsins Astraeus
Airlines um flugréttindi á grundvelli loftferða-
samnings milli Íslands og Kanada. Flugmála-
stjórn bendir á að samningurinn leyfi ekki að
íslensk stjórnvöld heimili Kanadaflug erlendra
flug rekenda. Þá hafi Kanada hafnað því að gera
nýjan opnari samning við Ísland, líkt og gildi við
ríki Evrópusambandsins.
Loftferðasamningurinn við Kanada frá árinu
2007 er sagður hafa ákveðin lokunaráhrif á mark-
aði fyrir áætlunarflug þangað. Til dæmis sé skil-
yrði að íslenskur flugrekandi verði að bjóða upp á
áætlunarflug til Halifax þrisvar í viku yfir sumar-
tímann og tvisvar í viku yfir vetrartímann. Hingað
til hafi ekki aðrir en Icelandair viljað undirgangast
þessi skilyrði. - óká
BOEING 757 Icelandair er eina flugfélagið sem
hefur viljað undirgangast ströng skilyrði til
Kanadaflugs. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Loftferðasamningurinn við Kanada setur flugfélögum strangar skorður um flug:
Verklagi hefur þegar verið breytt
SAMGÖNGUR Umferðin í janúar
dróst saman um tæplega átta pró-
sent borin saman við umferðina í
janúar 2010, en mælt er á sextán
völdum talningarstöðum á hring-
veginum.
Þetta er gífurlegur samdráttur
en í ljós verður að koma hvort
hann eigi einungis við um jan-
úarmánuð eða muni halda áfram
eftir því sem á árið líður, segir á
vef Vegagerðarinnar. - shá
Ótrúlegar aksturstölur milli ára:
Akstur í janúar
snarminnkar
FRÁ HELLISHEIÐI Akstur landans drógst
saman um átta prósent í janúar.
DÓMSMÁL Tveir erlendir bræður
hafa verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 11. febrúar vegna
rannsóknar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu á tugum innbrota
og þjófnaðarmála.
Fyrir sitja í gæsluvarðhaldi tveir
sautján ára piltar og 23 ára maður
sem hafa játað á sig um sjötíu inn-
brot á höfuðborgarsvæðinu. Verð-
mæti þýfisins getur numið tugum
milljóna króna.
Bræðurnir voru handteknir á
föstudagsmorguninn síðastliðinn
og úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Fram kemur í greinargerð lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
vegna kröfu um gæsluvarðhald
yfir þeim að annar þeirra hafi
tekið við þýfinu og að hann hafi
staðgreitt fyrir það með reiðufé.
Fyrir liggi símagögn sem stað-
festa samskipti á milli þremenn-
inganna sem sátu fyrir í gæslu-
varðhaldi og bróðurins og beri
gögnin það með sér að þeir hafi
verið að eiga viðskipti með þýfi.
Við húsleit hjá bræðrunum
hafi lögregla fundið ýmsa muni
sem grunur er um að sé þýfi þar
á meðal tölvur, sjónvarp og pen-
inga. Þá hafi lögregla einnig fund-
ið á heimili þeirra bræðra kvitt-
anir sem bendi til útflutnings á
peningum og séu flestar kvittan-
irnar stílaðar á nafn hins bróður-
ins. - jss
HÚSLEIT Lögregla gerði húsleit hjá
bræðrunum.
Fimm í gæsluvarðhald vegna stóra innbrotamálsins:
Bræður grunaðir
um að kaupa þýfi
EGYPTALAND, AP „Við munum ekki
gefa upp á bátinn kröfu okkar, sem
er sú að stjórnin fari frá,“ sagði
Wael Ghonim, þrítugur markaðs-
stjóri Google í Egyptalandi, þegar
hann ávarpaði mannfjöldann á
Tahrir-torgi í Kaíró í gær.
Ghonim var látinn laus á mánu-
dag eftir tólf daga í fangelsi. Hann
er einn þeirra sem skipulögðu upp-
haf mótmælanna í Egyptalandi
fyrir hálfum mánuði og var ákaft
fagnað af mannfjöldanum þegar
hann birtist á torginu í gær.
Um 130 þúsund manns skráðu
sig í gær á Facebook-síðu sem lýsir
yfir stuðningi við hann sem tals-
mann mótmælendanna. Hann tal-
aði stutt og af yfirvegun, en virðist
hafa náð vel til fjöldans.
Mótmælin á torginu í gær voru
þau fjölmennustu frá upphafi og
er talið að hundruð þúsunda hafi
komið þar saman til að krefjast
afsagnar Hosni Mubarak forseta
og stjórnar hans. Góð stemmning
var í mannfjöldanum og ekki sjáan-
legt að fólkið ætlaði að sætta sig
við neinar málamiðlanir.
Fáum erlendum fréttamönnum
var leyft að fara inn á torgið. Þeim
var gert að verða sér úti um leyfi
frá upplýsingaráðuneyti landsins,
en afgreiðsla umsókna um slík
leyfi er tímafrek og tekur nokkra
daga. Einungis þeir sem þegar
voru búnir að fá leyfi fengu að fara
inn á torgið.
Víðar í arabaheiminum virð-
ist vera jarðvegur fyrir mótmæli
áþekk þeim sem nú standa yfir í
Egyptalandi og þeim sem hröktu
forseta Túnis frá völdum í síðasta
mánuði.
Nokkrir tugir kvenna komu
saman á laugardag í Ríad, höf-
uðborg Sádi-Arabíu, að krefjast
þess að fangar yrðu látnir lausir
sem þær segja með röngu sakaða
um að tengjast herskáum samtök-
um. Þar í landi hefur hópur manna
einnig stofnað Facebook-síðu, þar
sem gerðar eru kröfur um meiri
atvinnu og ábyrgari stjórnmál í
þessu auðuga olíuríki.
Í Kúvæt hafa verið boðuð mót-
mæli í næstu viku en í Barein í
næsta mánuði. Ekkert er þó víst
að af þeim verði. Í Sýrlandi tókst
stjórnvöldum að koma í veg fyrir
að mannfjöldi safnaðist saman til
mótmæla í síðustu viku, þrátt fyrir
að boðað hafi verið til þeirra.
gudsteinn@frettabladid.is
Vilja enga
málamiðlun
Mótmælendur í Egyptalandi ætla ekki að sætta sig
við neinar málamiðlanir. Þrítugur markaðsstjóri
óðum að verða talsmaður mótmælendanna í Kaíró.
METFJÖLDI Á TORGINU Talið er að hundruð þúsunda manna hafi komið saman á
Tahrir-torgi í Kaíró í gær. NORDICPHOTOS/AFP
VEISTU SVARIÐ?