Fréttablaðið - 09.02.2011, Side 25

Fréttablaðið - 09.02.2011, Side 25
ferðir ●MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 5 Kínverjar fögnuðu nýju ári hinn 3. febrúar en kínverska nýárið ber upp á ólíkum degi ár hvert, þó ávallt á tímabilinu 21. janúar til 20. febrúar. Nýárstíminn er mesti ferða- mannatími ársins í Kína enda nota milljónir manna fríið til að fara og heimsækja ættingja og vini. Oft er um farand- verkamenn að ræða sem vinna fjarri heimkynnum sínum og hitta fjölskyldur sínar aðeins einu sinni á ári. Gert er ráð fyrir því að yfir tvö hundruð milljónir farþega muni nýta sér lestarsamgöngur í kring- um nýárið og fram undir miðj- an mars og eru jafnvel dæmi um að fólk þurfi að bíða dögum saman eftir fari. Í ár er ár kaninunnar sam- kvæmt kínverska tímatalinu og tekur það við af ári tígris- dýrsins sem var í fyrra. Öfugt við tígrisdýrið boðar kanínan rólegheit og þægindi. Sam- kvæmt kínverskri speki er þó sagt að tígurinn elti kanín- una inn í árið og að eitthvað af því ófyrirsjáanlega sem fylgi tígris dýrinu fylgi inn í ár kan- ínunnar. Kanínuár boða þó þvert á tígurár rólega, skapandi og jákvæða tíma. - ve Þegar áfangastaður hefur verið valinn og flugmiðinn er í höfn taka margir næsta skref og verða sér úti um ferðahandbók sem tekur til alls sem máli skiptir á staðn- um þangað sem ferðinni er heitið. Hefðbundn- ar ferðahand- bækur fara y f i r s ö g u staðarins, s e g j a f r á helstu kennileitum og tína til ólík hótel og veitingastaði. Þó eru til sértækari bækur og mætti nefna handbókina Watching the English – The hidden rules of English behaviour eftir Kate Fox sem gæti komið sér vel ef ætlunin er að dvelja lengi á meðal Breta, enda eru þeir þekktir fyrir allt aðrar kurteisisvenjur en við Íslendingar. Þá nýtur bókin The Good Pub Guide 2011 sérstakra vinsælda og þykir ekki slæmt að fá krána sína skráða í hana enda næsta víst að ferðalangar noti hana til að vísa veginn. Á amazon. com er svo að finna ógrynni ferðabóka sem taka til flestra heimshorna. Vísar veginn á bestu krárnar Ferðamannastraumurinn hófst fyrir alvöru í lok síðasta mánaðar og víða þarf fólk að bíða í löngum röðum til að geta keypt sér lestarmiða. Mesti ferðatími ársins í Kína Á löngum flugferðum er nauðsyn- legt að reyna að hreyfa sig, jafn- vel þótt plássið sé af skornum skammti enda eru dæmi um að fólk með háan blóðþrýsting og önnur heilsufarsvandamál lendi í vand- ræðum ef það situr hreyfingar- laust í sætum sínum svo tímunum skipti. Hér eru nokkur ráð: ● Kreistið bolta eða sokkapar í lófunum þar til þið finnið fyrir þreytu í höndunum. ● Lyftið fótunum upp og snúið ökklunum í nokkra hringi. ● Setjið hælana í gólf og kreppið fæturna í átt að sköflungnum. Endurtakið nokkrum sinnum. ● Setjið hendurnar á stólarminn, lyftið lærunum upp úr sætinu nokkrum sinnum. ● Teygið á og liðkið hálsinn. Hallið höfðinu til beggja hliða, aftur á bak og áfram og í hring. ● Lyftið öxlum upp að eyrum og slakið á. Endurtakið nokkrum sinnum. ● Teygið hendurnar fram. Kross- leggið fingur og teygið eins langt fram og mögulegt er. Höfuð, herðar, hné og tær NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT. ÞÚ KEMST ÞANGAÐ MEÐ OKKUR! Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll. BSÍ - Umferðarmið 101 Reykjavík 580 5400 O Áætlun Flugrútunnar frá BSÍ til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Lau. Sun.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.