Fréttablaðið - 09.02.2011, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 9. febrúar 2011 11
DÓMSMÁL Bæjarráð Hveragerðis
hefur ákveðið að taka að sér
að reka dómsmál fyrir húseig-
anda í bænum gegn Orkuveitu
Reykjavíkur. Bæjarráðið telur
að Orkuveitan, sem keypti Hita-
veitu Hveragerðis fyrir nokkrum
árum, eigi að kosta sérstakan
búnað sem húseigendur á vissu
svæði í bænum þurfa til að tengj-
ast hitaveitunni.
Kostnaður þessara húseigenda
verður umtalsvert meiri en
annarra íbúa segir bæjarráðið
sem vill láta reyna á bótarétt
þessa hóps með því að höfða próf-
mál með því að reka mál eins hús-
eigandans. - gar
Hvergerðingar stefna OR:
Fái bætur fyrir
tengiskostnað
HVERAGERÐI Bæjaryfirvöld ætla í próf-
mál fyrir hönd húseigenda.
Ólafur áfram formaður FG
Ólafur Loftsson er sjálfkjörinn
formaður Félags grunnskólakennara
til ársins 2014. Framboðsfrestur er
nýlega útrunninn og var Ólafur einn
í kjöri.
FÉLAGSMÁL
Kosið í öll embætti hjá FÍA
Tveir gefa kost á sér í embætti
formanns Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna: Hafsteinn Pálsson og
Örnólfur Jónsson. Tveir sækjast eftir
varaformannsembættinu: G. Birnir
Ásgeirsson og Jón Þór Þorvaldsson,
og sjö gefa kost á sér í fimm manna
meðstjórn. Kosið verður á aðalfundi
15. febrúar.
HEILBRIGÐISMÁL Allt of fá níu og fimmtán ára
börn hér á landi hreyfa sig nægjanlega lengi
af meðalerfiðri og erfiðri ákefð dag hvern.
Drengir virðast hreyfa sig meira en stúlkur
og það mælast neikvæð tengsl milli hreyfing-
ar og holdafars íslenskra barna.
Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem gerð
var á tímabilinu september árið 2003 til jan-
úar árið 2004 í átján skólum á höfuðborgar-
svæðinu og í þéttbýlis- og dreifbýliskjörnum
á Norðausturlandi. Alls skiluðu 176 níu ára
krakkar nothæfum gögnum til rannsóknar-
innar og 162 fimmtán ára krakkar.
Meginniðurstöðurnar voru þær að mik-
ilvægt sé að auka meðalerfiða og erfiða
hreyfingu barna á skólaaldri og nauðsynlegt
sé að rannsaka hvaða leiðir séu færar í þeim
efnum.
Strákar hreyfðu sig að jafnaði meira en
stelpur og þeir sem voru níu ára hreyfðu sig
meira en þeir sem voru fimmtán ára. Niður-
stöðurnar sýndu einnig fram á að þeir þátt-
takendur sem voru með meiri fitu undir húð,
hreyfðu sig minna samanborið við jafnaldra
sína.
Rannsóknin er birt í 2. tölublaði Lækna-
blaðsins 2011. Hún styður niðurstöður fjölda
erlendra rannsókna um sama efni, hvað
varðar muninn á meðalerfiðri og erfiðri
hreyfingu milli kynja. - sv
Nauðsynlegt að auka hreyfingu barna á skólaaldri, samkvæmt nýrri rannsókn:
Strákar hreyfa sig meira en stelpur
BÖRN AÐ LEIK Talið er að mikill meirihluti barna hér á
landi hreyfi sig allt of lítið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Opnir fundir
með nýjum
stjórnendum
Landsbankans
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans,
á opnum fundi á Akureyri 3. febrúar.
Nýir stjórnendur kynna nýja stefnu
bankans og framtíðarsýn, breytingar
sem orðið hafa og aðgerðalista
næstu mánaða. Við viljum hlusta
eir skoðunum og viðbrögðum ykkar,
eigenda bankans, til að efla bankann
enn frekar. Við ætlum að vera
Landsbankinn þinn.
Reykjanesbær Duushús
Mánudagur 14. febrúar kl. 20.00
Skráning á landsbankinn.is
og í 410 4000 – allir velkomnir!
Akranes Bíóhöllin
Fimmtudagur 10. febrúar kl. 20.00
Höfn í Hornafirði Nýheimar
Fimmtudagur 17. febrúar kl. 20.00
Hafnarfjörður Bæjarbíó
Miðvikudagur 9. febrúar kl. 20.00
Reykjavík Grand Hótel
Þriðjudagur 15. febrúar kl. 17.00
LÖGREGLUMÁL Átta ökumenn voru
teknir undir áhrifum fíkniefna
í höfuðborginni um liðna helgi.
Þetta voru fimm karlar á aldrin-
um 17 til 49 ára og þrjár konur,
allar um tvítugt.
Þá stöðvuðu lögreglumenn
tíu ökumenn sem allir reyndust
undir áhrifum áfengis á sama
tímabili. Þetta voru níu karlar
á aldrinum 21 til 67 ára og ein
kona, 45 ára.
Tveir þessara ökumanna höfðu
þegar verið sviptir ökuleyfi og
einn var á stolnum bíl. - jss
Hættuleg í umferðinni:
Átján teknir
undir áhrifum