Fréttablaðið - 09.02.2011, Blaðsíða 18
9. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Okkur hefur lengi fundist skorta tengingu við þessa
einu alíslensku hefð og ákváðum að bæta úr því,“ segir
Steinunn Þorvaldsdóttir, sem ásamt Ragnhildi Gísla-
dóttur hefur sent frá sér geisladiskinn Þorralögin, sem
inniheldur fjögur ný lög eftir Ragnhildi við texta Stein-
unnar. „Við sendum frá okkur bókina Velkominn þorri í
fyrra,“ segir Steinunn, „og nú kemur diskurinn sem við-
bót við þorrastemninguna.“ Þær Steinunn og Ragnhildur
ganga reyndar skrefinu lengra en flestir í þorra-
fögnuðinum því þær hafa hannað ýmislegt þorraskraut
sem þær skreyta hús sín með hátt og lágt. „Við vildum
bjóða þorranum inn til okkar,“ segir Steinunn.
Lögin á diskinum eru fyrstu sérsömdu þorralögin
sem vitað er um, því textar sem tengjast þorranum
hafa yfirleitt verið samdir við alþekkt lög sem auðvelt
er að fá fólk til að taka þátt í að syngja á þorrablótum.
Ragnhildur segir lögin á diskinum líka vera hugsuð
til fjöldasöngs og þau séu þannig í laginu að flestallir
ættu að geta sungið þau með smáæfingu. „Laglínan er
einföld, ekki nema fjögur grip og ætti að vera auðvelt
fyrir hvaða gítarleikara sem er að læra. Það er reyndar
aðeins haldið í fimmundarhefðirnar gömlu og migið utan
í íslensku þjóðlögin, en þessi fjögur lög eru mismunandi
og reyna að fylgja efni textans í hverju lagi fyrir sig.“
Fyrsta lagið á diskinum ber heitið „Velkominn þorri“
en það byggir á þeirri hefð sem tíðkaðist hér áður fyrr
að húsfreyja færi út kvöldið fyrir bóndadag og biðlaði
til þorra um að vera ekki of grimmur. Því næst er lag
um hið stórskemmtilega og furðulega „Bóndadagshopp“
en sagan segir að húsbændur hafi haft þann sið að fara
fyrstir á fætur að morgni fyrsta dags í þorra og hoppa
kringum húsið í annarri buxnaskálminni.
Þriðja lagið er óður til nútímaþorrablóta þar sem farið
er að bera á „grænmetisgikkjum“ og öðrum skringileg-
heitum á fyrri tíma mælikvarða. Að lokum er svo lagið
„Þorrinn er kominn“ þar sem vetrarvætturinn mætir á
svæðið, en það tíðkaðist á þorrablótum að einhver færi í
gervi þorra og héldi haldgóða ræðu.
Textinn byggist á lýsingu sem þær stöllur fundu
í þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins þar sem þorra-
búningnum er lýst í smáatriðum.
Í bókinni Velkominn þorri er að finna nótur og texta
að tveimur laganna og Ragnhildur segist gera ráð fyrir
því að hin lögin tvö verði aðgengileg fljótlega á sama
formi, á netinu eða annars staðar.
Flytjendur ásamt Ragnhildi eru tónlistarmennirnir
Sigurður Guðmundsson, Helgi Svavar Helgason, Ómar
Guðjónsson, Davíð Þór Jónsson og Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson. Ragnhildur segir aldrei að vita nema þau
troði upp saman í tilefni útkomunnar, en það sé þó ekki
frágengið. fridrikab@frettabladid.is
VELKOMINN ÞORRI: DISKUR MEÐ NÝJUM ÍSLENSKUM ÞORRALÖGUM KEMUR ÚT Í DAG
Bóndadagshopp, vetrarvætt-
ur, bænir og grænmetisgikkir
ÞORRAVINKONUR Ragnhildur Gísladóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir
eru miklar áhugamanneskjur um þorrann og hafa hannað sérstakt
þorraskraut til viðbótar við geisladisk og bók. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Merkisatburðir 9. febrúar
1827 Kambsránið. Brotist er inn og peningum rænt á Kambi í
flóa. Ránsmennirnir eru síðan handteknir og dæmdir að
loknum umfangsmiklum réttarhöldum.
1832 Baldvin Einarsson lögfræðingur deyr, 31 árs að aldri. Hann
gaf út ársritið Ármann á Alþingi. Í erfiljóði um hann segir
Bjarni Thorarensen: „Ísalands óhamingju verður allt að
vopni!“
1946 Maður hrapar í djúpa gjá í Aðaldalshrauni í Þingeyjarsýslu.
Hann finnst eftir þrjá daga „heill og hress“.
1959 Togarinn Júlí frá Hafnarfirði ferst við Nýfundnaland og með
honum þrjátíu manns.
1984 Iðnaðarbankaránið. Maður með lambhúshettu rænir á
fjórða hundrað þúsund krónum í útibúi Iðnaðarbankans í
Breiðholti að starfsfólki viðstöddu. Málið upplýsist ekki.
Bítlarnir komu í fyrsta sinn fram í skemmti-
þætti Eds Sullivan á CBS-sjónvarpsstöðinni í
Bandaríkjunum hinn 9. febrúar 1964. Sjötíu
og þrjár milljónir áhorfenda fylgdust með
þættinum, sem þá var met í bandarísku
sjónvarpsáhorfi, og hefur hann síðan verið
álitinn marka tímamót í sögu popptónlistar
vestra sem upphaf bresku innrásarinnar í
tónlist.
Áhorfendur í sjónvarpssal voru aðallega
ungar stúlkur sem slepptu sér gjörsamlega,
veinuðu og grétu á meðan goðin fluttu lögin
„All My Loving“, „Till There Was You“ og „She
Loves You“. Nöfn þeirra birtust á skjánum
með nærmyndum af andlitunum og Sullivan
skaut að hinni frægu setningu: „Mér þykir
það leitt stelpur, en hann er giftur“, þegar
John var kynntur til sögunnar.
Seinna í þættinum komu Bítlarnir aftur á
svið og fluttu þá lögin „I Saw Her Standing
There“ og „I Want to Hold Your Hand“.
Heimild: wikipedia.org
ÞETTA GERÐIST: 9. FEBRÚAR 1964
Bítlarnir hjá Ed Sullivan
67 ALICE WALKER RITHÖFUNDUR er 67 ára.
„Enginn er eins valdamikill og við teljum
hann vera.“
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma
Aðalheiður
Samsonardóttir
Hofteigi 18 Reykjavík,
lést 4. febrúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 14. febrúar
kl. 15.00.
Hörður Sigurjónsson
Haraldur Heimir Harðarson
Samson Bjarnar Harðarson
Sigurjón Harðarson
og fjölskyldur
Móðursystir okkar og mágkona,
Þorbjörg Andrésdóttir
Bólstaðarhlíð 44,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir 31. janúar síðast-
liðinn, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 10. febrúar kl. 13.00.
Andrés Svavarsson
Kristín Svava Svavarsdóttir
Guðni Birgir Svavarsson
Rannveig Beiter
Svavar Guðnason
og fjölskyldur
MOSAIK
Óp-hópurinn verður með tónleika í Salnum í Kópavogi í
kvöld klukkan 18 þar sem flutt verða atriði úr þekktum
óperum.
Hópurinn samanstendur af sjö söngvurum sem hafa
haslað sér völl í íslensku tónlistarlífi með nærri tuttugu
tónleikum á aðeins einu og hálfu ári. Á tónleikunum
leitast hópurinn við að færa tónleikaformið eins nærri
óperuforminu og auðið er með leikrænum flutningi atriða
úr óperum.
Efnisskrá tónleikanna samanstendur af atriðum
úr óperum eftir Mozart, atriðum úr Carmen eftir
Bizet, Normu eftir Bellini, Spaðadrottningunni eftir
Tsjaíkovsky, La Favorita eftir Donizetti og úr Porgy og
Bess eftur Gershwin.
Tónleikarnir hefjast eins og áður sagði klukkan 18 og
standa í um það bil klukkustund án hlés.
Miðaverð er 1.500 krónur.
Óp-hópurinn í
Salnum í kvöld
ÓPERUTÓNLEIKAR Óp-hópurinn er skipaður sjö söngvurum sem
hafa haslað sér völl í íslensku tónlistarlífi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON