Fréttablaðið - 09.02.2011, Blaðsíða 22
9. FEBRÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR2 ● ferðir
Laurence Sterne og Charles
Dickens fóru ólíkar leiðir við að
tjá upplifun sína af Ítalíu.
Allt frá áttundu öld fyrir Krists burð
hafa sögur af ferðalögum heillað og
kitlað ímyndunaraflið. Fjölmargir
frægir rithöfundar hafa fært upp-
lifun sína af fjarlægum löndum í
letur, þar á meðal Laurence Sterne
og Charles Dickens, sem nálguðust
Ítalíu hvor út frá sínu sjónarhorni og
gáfu tóninn fyrir ferðabókmennta-
skrif allt fram á þennan dag.
Orðabókarskýringin á ferðabók-
menntum er að um sé að ræða skrif
byggð á staðreyndum, sem þó lúti
lögmálum fagurbókmennta (það
sem á ensku kallast creative non-
fiction), og byggi yfirleitt á fyrstu
persónu lýsingum höfundar á upplif-
unum af erlendum löndum og þjóð-
um. Sumir höfundar hafa þó brugð-
ið á það ráð að skapa hliðarsjálf sem
þeir láta segja söguna og fjarlægja
þannig sjálfa sig úr jöfnunni.
Einna frægust slíkra ferða-
sagna er bók enska rithöfundar-
ins Laurence Sterne, A Sentimental
Journey Through France and Italy,
sem út kom árið 1768, mánuði fyrir
lát Sternes. Sagan segir frá ferða-
lagi Sternes um Frakkland og Ítalíu
árið 1765, en í stað þess að nota eigið
nafn skapar Sterne sögumanninn
séra Yorick og þar sem söguefnið
er aðallega ástarævintýri sérans á
ferðalaginu er tilgangurinn með því
að skapa þetta alter egó næsta ljós.
Sagan varð fádæma vinsæl og
hafði mikil áhrif, svo mikil að nærri
lætur að ferðasögur hafi verið ráð-
andi í bókaútgáfu á Englandi á
seinni hluta átjándu aldarinnar.
Ólíkt því sem áður hafði tíðkast var
persónuleg upplifun ferðamannsins
í forgrunni, smekkur hans og álit á
því sem fyrir augu og eyru bar, auk
lýsinga á ævintýrunum sem hann
tók sjálfur þátt í.
Charles Dickens ferðaðist líka
um Frakkland og Ítalíu í nokkra
mánuði árið 1844, ásamt fjölskyldu
sinni. Ferðabók hans heitir Pictures
from Italy og er í allt öðrum stíl en
bók Sternes. Í augum Dickens er
Ítalía „eins og kaótísk myndasýn-
ing“. Hann er heillaður af landinu,
einkum fjölskrúðugu götulífinu og
um leið heillaður af hlutverki sínu
sem áhorfandi sem ekki tekur bein-
an þátt í þeim atburðum sem hann
lýsir.
Bók Dickens varð ekki síður vin-
sæl en bók Sternes og með þessum
tveimur bókum má eiginlega segja
að tónninn hafi verið gefinn fyrir
skrif ferðabókmennta allt fram á
daginn í dag. Enn skiptast ferða-
bækur að megninu til í lýsingar á
eigin upplifunum og lýsingar á því
sem fyrir augu ferðamannsins ber
sem áhorfanda.
- fsb
Ólík sýn tveggja skálda á Ítalíu
Ítalía hefur heillað skáld á öllum tímaskeiðum. Tvö vinsæl bresk skáld upplifðu ferðir sínar þangað með afar ólíkum hætti á átjándu og nítjándu öldinni og færðu reynsluna í letur í tveimur afar ólíkum bókum.
Ferðaskrifstofan Vesturheimur
hefur síðustu fimm ár staðið fyrir
öðruvísi og spennandi ferðum
frá Íslandi til Kanada og Banda-
ríkjanna á slóðir íslensku vestur-
faranna.
Vesturheimur var stofnað
sumarið 2006 en eigandi þess er
Jónas Þór sagnfræðingur sem
hefur sérhæft sig í sögu vestur-
faranna. Jónas segir áhuga á vest-
urferðum Íslendinga mikinn, eins
konar vitundarvakning hafi orðið
um þennan þátt Íslandssögunnar
síðustu árin.
„Ferðirnar sem við stöndum
fyrir snúast ekki síður um per-
sónuleg tengsl en ferðalög og mark-
mið ferðaskrifstofunnar er að efla
tengsl Íslands og Íslendinga við af-
komendur íslenskra vesturfara í
Norður-Ameríku. Áhugi Íslendinga
er mikill fyrir þessum ferðum og
alltaf að aukast. Í sumar munu sex
til sjö hundruð manns ferðast vest-
ur á okkar vegum,“ segir Jónas.
Íslendingar taka því greinilega
fegins hendi að hægt sé að kynna
sér Íslendingaheiminn í vestri í
skipulögðum ferðum og þess má
geta að frá Egilsstöðum er einn-
ig flogið beint á Íslendingadaga,
þaðan munu um 200 manns fljúga
í sumar.
Ferðir Vesturheims í sumar eru
fjölbreyttar. „Nýlendur sértrúar-
hóps Amish-fólks verða heimsótt-
ar í Minnesota og Iowa, svo og ís-
lenska nýlendan í Minnesota sem
stofnuð var 1875. Íslendingar í
Vesturheimi reyndu mikið til að
mynda einhvers konar séríslenska
nýlendu, einangraða og afskekkta.
Þetta gerðu þeir af þjóðræknis-
legum hugsjónum, ekki trúarhita.
Amish-fólk, hins vegar, flúði of-
sóknir í Evrópu, nam lönd víðs
vegar í Norður-Ameríku og fékk
þar frið. Íslendingar aðlöguðust
norður-amerísku samfélagi smám
saman en Amish-fólkið ekki.“
Þá er ferð fyrirhuguð á vestur-
ströndina seint í ágúst. Flogið er
til Seattle og þaðan ekið um Íslend-
ingabyggðir í Washingtonríki, farið
á dvalarheimilið Stafholt í Blaine.
Áfram norður til Vancouver, upp í
fjöllin í Whistler og út í Vancouver-
eyju.
Stærsta ferð Vesturheims í
sumar er hins vegar svokölluð Ís-
lendingadagaferð þar sem tvær
merkustu Íslendingahátíðir fyrir
vestan verða heimsóttar, þjóðhá-
tíð í Mountain í Norður-Dakota
og Íslendingadagurinn í Gimli en
þjóðmenningarhátíðir Íslendinga
í Vestur heimi eiga rætur sínar
að rekja allt aftur til ársins 1874.
Flogið er til Winnipeg og farið
þaðan á ýmsa staði, til Gimli, Nýja-
Íslands, Árborgar, Ahern, Reykja-
víkur og fleiri en ferðin nýtur
meðal annars sérstöðu því skoðun-
arferðir verða farnar um íslenskar
sveitir í Manitoba á staði þar sem
enginn íslenskur hópur hefur áður
farið.
Meginmarkmið hverrar ferðar
er að hitta fólk af íslenskum ættum
og er ýmislegt gert til að stuðla að
nánum kynnum. „Íslendingar sem
hafa ferðast til Vesturheims og
hitt þar fyrir afkomendur vestur-
faranna upplifa ótrúlega tryggð
þessara afkomenda við Íslands og
ræturnar. Maður finnur það þegar
maður dvelur með þeim, snæðir
kvöldmat eða annað slíkt, að það
má ekki falla styggðaryrði um
landið, þeim er sko alls ekki sama
um gamla landið, og íslensku ferða-
mennirnir koma ekki samir heim
og þeir fóru út, upplifunin er mjög
sterk,“ segir Jónas.
Ferðir til Vesturheims
Jónas Þór, stofnandi Vesturferða, segir áhuga fyrir ferðum á slóðir Vestur-Íslendinga
mikinn. MYND/ÚR EINKASAFNI
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@frettabladid.is s. 512 5411
Íslendingadagar í Vesturheimi
Ferð á merkustu hátíðir Íslendinga í Vesturheimi á vegum
Þjóðræknisfélags Íslendinga og Vesturheims sf dagana
24. júlí-7. ágúst.
Ferðatilhögun: Flug til Winnipeg sunnudaginn 24. júlí
Skoðunarferð um Nýja Ísland
Nýjung: Skoðunarferð um Íslendingaslóðir í
vestanverðu Manitoba – farið um Voga og til
Reykjavíkur!!
Minnsta nýlenda Íslendinga í Norður Ameríku heimsótt
Hvað er Baldur í Manitoba?
Íslendingadagur í Mountain í Norður Dakota
Íslendingadagurinn á Gimli í Manitoba
Frjálsir dagar í Winnipeg – Gist í miðbænum
á Delta Winnipeg
Ferðalýsing á www.vesturheimur.is
Nánari upplýsingar veitir Jónas Þór í síma 861-1046
eða jonas.thor1@gmail.com