Fréttablaðið - 09.02.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 09.02.2011, Blaðsíða 38
26 9. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is Tónlist ★★★ Fall Rúnar Þórisson Metnaðarfullt og margslungið Rúnar Þórisson er sennilega þekktastur sem gítarleikari hljómsveitarinnar Grafíkur, þó að hann hafi komið víða við og verið virkur bæði sem rafmagns- og kassagítar- leikari um árabil. Rúnar sendi frá sér fína sólóplötu, Ósögð orð og ekkert meir, árið 2005 og í vetrar byrjun kom Fall. Rúnar samdi öll lögin, útsetti þau og stjórnaði upptökum og sá að auki um hljóðfæraleik að stærstum hluta, en kallaði til aðra hljóðfæraleikara og söngvara eins og þurfa þótti. Arnar Þór Gíslason trommuleikari og bassaleikararnir Jakob Smári Magnússon og Gunnar Hrafnsson koma við sögu og söngvararnir Hjörvar Hjörleifsson og Gísli Kristjánsson. Þá syngja Eliza Numan og Lára og Margrét Rúnars- dætur bakraddir meðal annarra. Auk þess eru blásarar og strengjasveit í nokkrum lögum. Mikill metnaður og natni einkennir Fall. Tónlistin er útpæld og minnir á þróað og framsækið popp áttunda og níunda áratugarins. Sums staðar má heyra áhrif frá djassrokkbræðing. Lagasmíðarnar eru ekkert mjög flóknar, en þeim mun meira er lagt í útsetningarnar. Lögin eru misgóð, en þau bestu, t.d. When I Was, My Life, Stand Up og All I‘m After eru afbragð. Upphafs lagið Time, sem er án texta, er líka frábært. Það einkennist af flottum stíganda og skemmtilegum hljóðheimi. Mitt uppáhaldslag á plötunni. Á heildina litið er þetta fín plata sem sýnir að Rúnar fer sínar eigin leiðir í tónlistarsköpuninni. Aðdáendur metnaðarfullrar popptónlistar ættu að leggja við hlustir. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Gítarleikarinn úr Grafík með vandaða og útpælda sólóplötu. 270 Sin Fang rennir sér um á hjólabretti með heklað skegg í sínu nýjasta tónlistar- myndbandi. Fjölskylda hans hefur veitt honum dygga aðstoð undanfarið. Tónlistarmaðurinn Sin Fang, eða Sindri úr Seabear, rennir sér um á hjólabretti með heklað, hvítt skegg í nýju myndbandi við lagið Because of the Blood. Það er fyrsta smáskífulagið af annarri sólóplötu hans, Summer Echoes, sem kemur út hér heima og erlendis 15. mars á vegum Kimi Records og þýsku útgáfunnar Morr Music. „Þetta er hugmynd sem ég og bróðir minn unnum saman. Hann gerði vídeóið og mamma og kær- astan mín gerðu skeggið,“ segir Sindri, sem er líka með skeggið á umslagi plötunnar. „Þær hafa verið að búa til blúndukraga fyrir konur og okkur datt í hug að gera svona skegg. Ég var með litað skegg á fyrstu plöt- unni sem ég bjó til úr pappa. Þá var „koverið“ litríkt en þetta er meira hvítt og einfaldara.“ Af hverju safnarðu ekki bara eigin skeggi? „Það er alveg á mörkunum að ég geti það. Kannski geri ég þetta bara af því að ég er með svo lélega skegg- rót,“ segir Sindri léttur. Bróðir hans, Máni, hefur áður gert myndbönd fyrir Seabear, Sóleyju Stefánsdóttur úr Seabear og Snorra Helgason. Sindra finnst gott að vinna með honum. „Við erum með mjög svipaða fagur- fræði.“ Sindri er gam- all hjólabretta- kappi en hefur lítið komið nálægt íþróttinni undanfarin ár, eða síðan hann fór í þriðja sinn úr olnbogalið eftir að hafa dottið á hausinn. „Ég hef alveg stigið á hjólabretti síðan en ekkert alvarlega. Ég horfi líka á hjólabrettamyndir og lag af fyrri plötunni minni var í hjólabretta- mynd um daginn.“ Næsta myndband hans verður lagið Two Boys og því leikstýrði kærastan hans sem heitir Ingi- björg Birgisdóttir. Hún hannaði líka umslag nýju plötunnar, auk þess sem pabbi Sindra tók ljós- myndarnar í umslaginu. freyr@frettabladid.is Fjölskyldan með Sin Fang SKEGGJAÐUR Tónlistar- maðurinn Sin Fang er með heklað, hvítt skegg í sínu nýjasta myndbandi. SIN FANG Sin Fang, öðru nafni Sindri Már Sigfússon, gefur út sína aðra sólóplötu í næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR METRAR VERÐA AÐ SKILJA AÐ Mark Zuckerberg, stofnanda Facebook, og eltihrellinn Pradeep Manukonda. Hann er búinn að fá á hana nálgunarbann eftir að hún elti hann á Facebook og í raunveruleikanum. E N N E M M / S ÍA / N M 4 5 2 3 2 Þú færð meira hjá Pssst! færðu Netið í símanumá 0 kr. í dag. Ef þú ert með GSM hjá Símanum 100 MB innan dagsins. Gildir ekki erlendis. Þá getur þú t.d. skoðað m.visir.is 4000 sinnum í símanum. Þú getur sótt forrit til að skanna kóðann á t.d. Android Market. Skannaðu og þú gætir unnið! getur þú fengið magnaðan síma með 40% afslætti í dag. Panasonic 8012 er frábær stafrænn sími með auka handtæki. Ef þú ert með heimasíma hjá Símanum Skannaðu hérna til að sækja B arcode Scanner

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.