Fréttablaðið - 09.02.2011, Side 42
9. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR30
sport@frettabladid.is
SVERRE JAKOBSSON fékk ekki sigur í 34 ára afmælisgjöf þegar lið hans Grosswallstadt tapaði með 6 marka mun á
heimavelli á móti Magdeburg, 25-31, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Sverre spilaði allan leikinn i vörnini og fékk tvo
brottrekstra frá bræðrunum Bernd Methe og Reiner Methe en kláraði seinni hálfleikinn án þess að fá tveggja mínútna brottvísun.
AKUREYRARBÆR
Deiliskipulag.
Hlíðarfjall, skíðasvæði við Akureyri
Tillaga að deiliskipulagi
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 41. gr. skipu-
lagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi ásamt umhverfi sskýrslu
skv. 7. gr. laga um umhverfi smat áætlana nr. 105/2006.
Deiliskipulagið nær til skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. Tillagan gerir m.a.
ráð fyrir nýjum skíðalyftum, þjónustumiðstöð, gistiskálum og hótelum.
Nýjar skíðaleiðir eru skilgreindar og gert ráð fyrir nýju vatnssöfnunar-
lóni til snjóframleiðslu.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuand-
dyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun
frá 9. febrúar til 23. mars 2011, svo að þeir sem þess óska geti kynnt
sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á
heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfi ð /
Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16.00
miðvikudaginn 23. mars 2011 og skal athugasemdum skilað skrifl ega
til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá
sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera
henni samþykkur.
9. febrúar 2011
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar
Ef þú ert með Netið
í símanum getur þú
fylgst með íþróttum
á 0 kr. í dag.
Magnaðir
miðvikudagar!
Pssst!
*N
otkun á Íslandi, 100 MB innan dagsins. Nánar á sim
inn.
is
KÖRFUBOLTI Haukur Helgi Páls-
son, 18 ára Fjölnisstrákur, komst
að hjá einu þekktasta körfubolta-
skólaliði Bandaríkjanna og er
nú á fullu á sínu fyrsta tímabili
með Maryland-skólanum. Hauk-
ur Páll er með 2,4 stig og 2,0 frá-
köst á meðaltali á 9,0 mínútum í
22 leikjum en hann hefur komið
við sögu í öllum leikjunum nema
einum og hefur fengið fleiri og
fleiri tækifæri eftir því sem liðið
hefur á veturinn.
„Mér líst bara vel á þetta. Mín-
úturnar eru að fara upp og þetta
er allt að koma,“ segir Hauk-
ur. Það er þekkt í bandaríska
háskólaboltanum að nýliðarnir
fá oft lítið að vera með á fyrsta
vetrinum.
„Ég tók mig bara til og fór að
æfa enn meira og enn ákafar. Ég
fór á aukaæfingar með þjálfurun-
um og þar sáu þeir að maður vildi
þetta alveg og í framhaldinu fóru
mínúturnar upp,“ segir Haukur.
„Ég vissi þegar ég kom hing-
að að ég myndi ekki fá að spila
eins mikið og ég vildi. Þetta eru
samt viðbrigði því ég er vanur að
spila 30 mínútur í leik. Ég reyni
að nýta þær mínútur sem ég fæ
sem best því ef ég geri það fæ
ég alltaf fleiri og fleiri mínútur,“
segir Haukur sem fékk 17 mín-
útur í síðasta leik á móti Wake
Forrest þar sem hann var með 9
stig, 3 fráköst, 1 stoðsendingu og
1 stolinn bolta.
Þjálfari liðsins Gary Williams
er mjög hrifinn af hugarfari og
vinnusemi stráksins. „Vanalega
er mitt hlutverk að koma inn
á og reyna að rífa menn upp ef
við erum orðnir eitthvað flatir.
Þá reyni ég að koma með orku
inn í okkar lið. Ég finn traust
frá þjálfaranum. Hann er svona
þjálfari sem er hrifinn af leik-
mönnum sem leggja hart að sér
og vita hvernig á að spila körfu-
bolta,“ segir Haukur en Williams
er búinn að þjálfa Maryland-liðið
í 22 ár.
„Einn strákurinn í liðinu sagði
að eini maðurinn sem hræddi
hann væri þjálfarinn okkar.
Hann er grimmur en samt sann-
gjarn. Mér finnst að allir þjálfar-
ar eigi að vera svoleiðis, strang-
ir en samt sanngjarnir. Ef maður
er að gera eitthvað rétt hrósar
hann manni en ef maður er að
gera eitthvað vitlaust segir hann
manni það og tekur mann útaf,“
segir Haukur.
Haukur segist hafa fengið
skemmtileg viðbrögð frá þjálf-
aranum þegar blæddi úr honum
í fyrsta leik ársins 2011 á móti
Colgate. „Ég man eftir því að
þegar ég fékk skurð á hausinn
spurði hann mig hvort það væri
ekki allt í lagi. Ég sagði bara jú
og svo fór hann bara að brosa og
þótti mikils til þess koma að
ég væri til í að spila áfram
þótt það blæddi aðeins,“
segir Haukur, en hann sér
líka framfarir hjá sér.
„Ég er orðinn betri varnar-
maður og ég er líka orðinn
sneggri og hoppa hærra. Mér
finnst ég vera búinn að bæta mig
mest líkamlega og þá sérstak-
lega varnarlega. Svo finnst mér
ég líka vera orðinn aðeins betri
skotmaður,“ segir Haukur.
Haukur þarf oft að eiga við
menn sem eru miklu stærri og
þyngri en hann. „Maður verður
alltaf fyrir einhverjum höggum
og svo stíga þeir alltaf almenni-
lega út. Þeir henda manni í burtu
ef maður er ekki tilbúinn. Mér
finnst bara gaman að vera að
slást þarna undir,“ segir Hauk-
ur.
Haukur hefur fengið krefjandi
verkefni í vörninni og eitt af því
var að dekka Kyle Singler, aðal-
skorara Duke-háskólans.
„Á móti Duke á útivelli hélt ég
Singler í núll stigum á meðan ég
var að dekka hann. Hann endaði
samt með einhver 18 stig. Þjálfar-
inn setti mig inn á og hann vissi
að ég myndi hlaupa á eftir honum
og láta hann hafa fyrir öllu. Hann
átti ekki að fá neitt auðvelt,“ sagði
Haukur og bætti við: „Mér finnst
mjög skemmtilegt að dekka svona
góða leikmenn. Það er líka nóg
af þeim hérna,“ segir Haukur í
léttum tón.
Það er einstök stemmn-
ing á leikjum Maryland-liðs-
ins enda komast tæplega 18
þúsund manns í Comcast
Center. „Ég hef ekki spilað
í svona miklum hávaða áður
og mér finnst það alveg geð-
veikt að spila í svona stemmn-
ingu. Ef maður gerir eitthvað
rétt verða allir brjálaðir í stúk-
unni. Það er einstakt að spila
fyrir svoleiðis stuðningsmenn,“
segir Haukur, sem á orðið aðdá-
endur í hópa skólafélaga sinna.
„Það er alltaf fólk í stúkunni með
íslenska fánann og ég spurði þau
einu sinni hvar þau hefðu fengið
fánann. Þau sögðust hafa pantað
hann á netinu,“ segir Haukur að
lokum.
ooj@frettabladid.is
Skemmtilegt að fá að
dekka svona góða menn
Haukur Helgi Pálsson er að stimpla sig inn í hið fræga körfuboltalið Maryland-
skólans og hefur fengið að spila meira og meira eftir því sem liðið hefur á tíma-
bilið. Gary Williams, þjálfari liðsins, hefur mikla trú á honum.
DEKKAR GÓÐA LEIKMENN Haukur fær
mjög fjölbreytt verkefni í vörninni og er
að dekka allt frá leikstjórnendum í það
að dekka stóra framherja. MYND/AP
BLÓÐUGUR Í LEIK Haukur Helgi Pálsson fórnar öllu í leikinn og hér hefur hann fengið
vænt höfuðhögg. Þjálfari Maryland er mjög hrifinn af dugnaði Íslendingsins. MYND/AP
Mér finnst það alveg
geðveikt að spila í
svona stemmningu. Ef maður
gerir eitthvað rétt verða allir
brjálaðir í stúkunni. Það er
einstakt að spila fyrir svoleið-
is stuðningsmenn.
HAUKUR HELGI PÁLSSON
LEIKMAÐUR MARYLAND
Iceland Express deild kvenna
Fjölnir-Njarðvík 79-88 (35-30)
Stig Fjölnis: Inga Buzoka 26, Birna Eiríksdóttir 15,
Natasha Harris 14, Bergþóra Holton Tómasdóttir
11, Erla Sif Kristinsdóttir 6, Bergdís Ragnarsdóttir
4, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 2, Eva María
Emilsdóttir 1.
Stig Njarðvíkur: Dita Liepkalne 31 (13 frák.), Ólöf
Helga Pálsdóttir 18, Shayla Fields 17, Julia Dem
irer 10 (11 frák.), Ína María Einarsdóttir 6, Emelía
Ósk Grétarsdóttir 4, Anna María Ævarsdóttir 2.
STAÐAN Í B-DEILDINNI
1. Snæfell 15 7 8 994-1098 14
2. Njarðvík 16 6 10 1152-1198 12
3. Grindavík 15 3 12 905-1020 6
4. Fjölnir 16 3 13 1015-1273 6
Í kvöld mætast KR-Hamar og Haukar-Keflavík í
A-deildinni og Grindavík-Snæfell í B-deildinni.
Sænski körfuboltinn
Sundsvall Dragons-08 Stockholm 100-67
Jakob Örn Sigurðsson skoraði 19 stig á 25
mínúturm og Hlynur Bæringsson var með 9
stig á 15 mínútum. Hlynur, Jakob og Logi
Gunnarsson hjá Solna voru allir valdir í
Stjörnuleikinn sem fer fram 21. febrúar.
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI Það verða flottir lands-
leikir spilaðir í kvöld en þá fara
fram fjölmargir vináttulandsleik-
ir. Það eru sex vikur í að undan-
keppni EM 2012 fari aftur af stað
á nýjan leik og er Ísland aðeins
ein af fjórum Evrópuþjóðum sem
eru ekki að spila í þessari viku.
Portúgal (Cristiano Ronaldo)
mætir Argentínu (Lionel Messi),
Þjóðverjar og Ítalir mætast í
Dortmund þar sem
Ítalir unnu undan-
úrslitaleik þjóðanna á
HM 2006, Frakkar og
Brasilíumenn mætast á
Saint-Denis í París þar
sem Frakkar unnu 3-0
sigur þegar þjóðirnar
mættustu í úrslita-
leiknum á HM 1998
og Danir taka á
móti Englending-
um á Parken. - óój
Vináttulandsleikir í kvöld:
Risar mætast