Barnablaðið - 01.04.1981, Síða 12
12
Nágratv
drengur
Cornell Davis hélt á mjólkurglasinu sínu inn í
stofu. Hann ýtti gluggatjöldunum til hliðar og
horfði á sendiferðabílinn á götunni. ,,Hver ætli
vilji búa í þessu hreysi?“ hugsaói hann með sér.
Eigendur húsanna í nágrenninu héldu þeim vel
viö, en húsið handan götunnar var í mesta
ólestri.
„Kannski hefur einhver keypt það vegna lóö-
arinnar“, svaraöi faóir hans. En það var samt
greinilegt að einhver ætlaði aö setjast að í hús-
inu. Og af gömlum húsgögnum að dæma hlaut
að vera knappt um peninga, hugsaði Cornell. En
húsið hélt ekki lengi athygli hans. Hann átti
annasama helgi í vændum.
,,Ekki veit ég hvernig þau komast af“, sagöi
móöir hans.“ Það hefur ekki verið búið í þessu
húsi árum saman“.
„Hvers vegna flutti fólkið í húsið ef það er
svona lélegt?“ spurði Cornell forvitinn. Foreldr-
ar hans litu á hann eins og þau væru aö vega
með sér, hve mikið þau ættu að segja honum.
Þaö var augljóst að þau höfðu ákveðiö aó segja
honum ekki allt, því faðir hans sagði aöeins að
nýju nágrannarnir væru félitlir. Síðan breytti
hann um umræðuefni. En á næstu dögum varö
Cornell Ijóst að eitthvað var að.
Nýju nágrannarnir áttu dreng sem var ári yngri
en Cornell. Roosevelt Summers var grannvax-
inn, ólundarlegur drengur sem virtist ekki eiga
neina vini. Dag einn varö Cornell samferða
honum í skólann. Það var hundleiðinleg feró.
Roosevelt gekk alla leiöina meö niöurlútnu höfði
og með hendur í vösum. Cornell varð dauðfeg-
inn þegar kennslan byrjaði. En nú var hann
orðinn forvitinn í meira lagi um hagi nýju fjöl-
skyldunnar. Hví bjó Summersfólkið í þessu
gamla húsi? Hvað gekk að Roosevelt? Hvers
vegan átti hann enga vini? En enginn virtist
kunna svar við þessum spurningum.
Hlutirnir gengu sinn vanagang í skólanum. En
svo fór allt í háaloft. Einhver haföi orðið var við
þjóf í skólanum! Góðvinur Cornells, Mark sagði
honum alla söguna.
„Það var stolið peningum frá einni stúlku og
íþróttaskórnir hans Leroy Parker hurfu“. í meira
en þrjár vikur héldu peningar og persónulegir
munir áfram að hverfa. En svo hætti þjófnaður-
inn jafn skyndilega og hann byrjaði. Sá orðróm-
ur var á kreiki að þjófurinn hefði verið gómaöur,
en Cornell var engu nær. „Það hefur sennilega
verið nýji strákurinn Roosevelt Summers", sagði
Mark.