Barnablaðið - 01.04.1981, Side 17
Barnablaöib
Hann réttir þeim brauösneiðar meö fleski og
klappar þeim á kollinn. ,,Jæja þá leggum vió af
stað í Jesú nafni.“ Mamma situr á milli Gústa og
Grétu og þrýstir þeim þétt upp aó sér, rétt eins
og hún ætlaði aldrei aó sleppa þeim.
Gráni töltir af stað, en skógarvörðurinn lætur
svipuna ganga óspart á lendar hestsins. Líf
konunnar og barnanna liggur viö.
„Mamma, hvað varstu aó gera uppi á lofti áð-
an?“ spyr Gréta nú forvitnislega. ,,Ég er með
Jesúbarnið handa þér. Geymdu það vel í pok-
anum þínum, Gréta mín. Þaó er dýrmætasta
eign okkar.“ Gréta lítur glöö á mömmu. Hún er
líka hissa, því aö hún hefur aldrei fengiö aó
snerta á því, svo viðkvæmt er þaó, og nú má hún
bera þaö í poka sínum. „Eru þá jól í dag?“
„Nei, en bráðum.“
„Hvaö ertu annars meó í hinni höndinni?“
Mamma er búin aó rétta Grétu öskjuna, sem
Jesúbarnið er í. Telpan tekur varlega við þess-
um dýrmæta hlut. „Þaó er von, að ykkur langi
líka til að fá eitthvað fallegt í pokana ykkar,
drengir." Þeir horfa eftirvæntingarfullir á
mömmu. Hún tekur lok af annari öskju og sýnir
þeim postulínsenglana. Einn er með fiðlu, annar
meö lúður, þriðji með gígju.
Tungliö kastar birtu sinni á gylltu kirtlana, sem
englarnir eru í.
13. Óskin hennar Grétu og hvíld
Alltaf áfram, áfram, endalaus skógur þorp og
akrar! Hvaö skyldu þau vera búin að feróast
lengi? Austanvindurinn þýtur í trjákrónunum og
kuldinn læsir sig um merg og bein. Börnin geta
ekki sofnaó. Þau verða óþolinmóð og Gréta er
næstum farin að gráta. Ætlar nóttin aldrei aö
taka enda?
Mamma getur varla haldiö augunum opnum.
Framundan þeim blasir endalaus snjóbreióan
viö. Mamma má ekki bugast. Hún verður aó vera
börnunum stoð og stytta. Þess vegna réttir hún
úr sér og klappar Grétu blítt á kollinn. Mamma
hvíslar að Grétu sem er hálfkjökrandi: „Elsku
litla stúlkan mín, ósk þín frá því í sumar mun nú
senn rætast.“
„Hvaða ósk?“ spyr Gréta og lifnar öll við.
„Manstu ekki, þegar þú baðst storkinn, sem
flaug yfir þakið um lítið barn?“
„Jú, hvort ég man, lifandi barn.“
„Nú á ég von á litlu barni. Finnst þér það ekki
gaman?“
Gréta getur varla trúað því og er ákaflega
glöð.
Drengirnir taka nú eftir fyrstu morgunskím-
unni. Hvaó skyldi klukkan vera orðin? Þeir þora
ekki að tala upphátt, en hvísla og benda í átt að
litlu húsi. Hesturinn nemur staóar við lítió kot við
skógarjaðarinn. Hann er alveg uppgefinn.
Skógarvörðurinn segir lágt: „Hér verðum við að
dvelja í dag. Systir mín á heima hér og skýtur
áreióanlega skjólshúsi yfir okkur.“ Hann fer fyrst
einn og knýr dyra. Eftir dálitla stund kemur hann
aftur. Fullorðin kona stendur í dyrunum. Hún er
alúðleg og býður þessa ókunnu gesti velkomna.
Hér er allt mjög vistlegt. Á aöventukransinum
loga þrjú kerti. Mamma fær heitt te, en börnin
stóra mola af skrýtnu óhreinsuðu súkkulaði. Nú
á tímum þykir það hnossgæti, því annað er ekki
að hafa.
Velgerðarmaðurinn þeirra kveikir upp í ofnin-
um með sprekum og kolum. Brátt hitnar í litla
húsinu, og öllum finnst notalegt þarna inni.
Systir hans leggur nokkur epli í hólf sem er í
ofninum. Á meóan þau eru aó steikjast, hefur
skógarvörðurinn upp raust sína og syngur:
Ég opna hlió míns hjarta þér,
ó, herra Jesú bú hjá mér,
að fái hjálparhönd þín sterk
þar heilagt unnið máttarverk.
Þau taka öll undir. Eplin skorpna í ofninum og
eru ákaflega Ijúffeng á bragðið.
„Jæja, nú veróið þið aö halla ykkur. í kvöld
höldum vió feröinni áfram,“ segir skógarvörð-
urinn. Þau fara öll upp á háaloft. Mamma fær aö
sofa í rúmi. Gamla konan býr um börnin í ferða-
tösku og tveim stæröar skúffum. Svo læðist hún
niöur og lætur lúguna aftur.
Enginn má sjá gesti hennar í dag. Um kvöldið
kveðja þau gömlu konuna og þakka góðar mót-
tökur. „En hvaö við sváfum vel þarna uppi í
skúffunum," segja drengirnir, um leið og þeir
koma sér fyrir í sætum sínum í vagninum.
Mamma horfir áhyggjufull á börnin en segir svo:
„Verið nú dugleg, börnin mín, ég ætla aó fara
ein til ömmu. En þið verðió í nokkrar vikur á
barnaheimili.
Þar eru góöar fóstrur, sem hugsa vel um ykk-
ur.“
Gréta fer að gráta. Hún hefur aldrei farið fyrr
að heiman. En þaö er svo langt til ömmu, og
mamma getur ekki tekið börnin með þangað.