Barnablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 18
18
ÞaÖ sem Tommi
læröi af Lappa
Tommi sat á tröppunum við fagra gulmálaða
húsið sitt. Hann var með samanbitnar varir.
Hann nuggaði öðrum hælnum svo fast við eina
tröppuna, aó hann sárkenndi til. Allir gátu séð
að Tommi var reiður.
,,Hvað er að?“ spurði rödd. Tommi leit upp.
Röddin tilheyrði Söllu sem var ein af telpunum í
bekknum hans. Salla var að fara í gönguferð
meó hundinn sinn Lappa, sem var lítill kjöltu-
rakki. ÞegarTommi svaraði ekki tók Salla Lappa
í fangið, og settist niður við hlið hans.
„Hvað er að?“ spurði hún aftur. Tommi hætti
aö nugga hælnum viö tröppurnar. Hann tók að
sér Ijósrauða jakkann sinn og kastaði honum á
jörðina. ,,Ég er bálreiður," sagði hann. „Við
hvað ertu svona bálreiður?1' spurði Salla og
hagræddi Lappa í kjöltu sinni. „Við mömmu,"
svaraði Tommi. „Hvað gerði hún?“ „Hún flengdi
mig og ég gerði bara alls ekkert sem var voóa
Ijótt."
Salla flissaöi. „Hvers vegna gerði hún það
þá?“
„Ég var íboltaleik, kastaði boltanum uþp í loftið
og greip hann þegar hann kom niður." Salla
kinkaði kolli. „Einu sinni missti ég boltann og
hann skoþpaði út á götuna, og ég hljóp á eftir
honum. Ég stansaði ekki til aö aðgæta hvort
bílar væru að koma.“
„Og hvað þá?“ spurði Salla. „Jæja, rétt í því
kom bíll fyrir hornið. Þegar bílstjórinn sá mig
snarhemlaði hann. Hann stakk höfðinu út um
gluggann og hrópaði á mig. Þegar mamma