Barnablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 8
8
degi, og hann lætur mig komast heim, án þess aö
einhver borgi peninga fyrir mig. Ég er 100% viss um
þaö", sagði María.
UNDIRBUNINGUR.
Daginn eftir sá María út um gluggann sinn, hvernig
sjóræningjarnir voru aö búa sig undir að yfirgefa
stóra bátinn. Viö hliðina á honum voru þrír litlir bátar.
í þá settu þeir mat og aöra hluti, sem þeir ætluðu aö
hafa meöferðis. Þeir komu oft inn til hennar og sögöu:
..Klukkan þrjú í dag förum við héöan, og þú kemur
meö, því aö þú ert mikils virði. Viö fáum eitthvað fyrir
þig“-
í hvert sinn svaraði María eins: ,,Ég er mikil virði, af
því að ég tilheyri Guöi, en þið fáið enga peninga fyrir
mig“.
STUNDIN RENNUR UPP.
Þegar klukkan fór aö nálgast þrjú, fór María aö
hugsa um, hvort hún yröi virkilega þvinguð til þess aö
fara meö sjóræningjunum. í fyrstu hafði hún verið
alveg viss um, aö eitthvað myndi hindra það, en núna
sá hún, aö klukkan var aö verða. Hana langaði síður
en svo til aö fara meö sjóræningjunum, jafnvel þó aö
hún væri viss um, aö Guö væri meö henni, og myndi
vernda hana eins og hann hafði gert allan tímann á
bátnum. Þeir myndu flýja í land einhversstaöar, og
fela sig í hellum og gjótum, eða á öörum stööum, sem
þeim dytti í hug. ,,Þetta er ekki freistandi tilboö'',
hugsaði María, ,,en ef Guö vill, þá verði hans vilji".
GUÐ TEKUR I TAUMANA.
Fyrir klukkan þrjú var búið aö ganga frá öllu í bát-
ana, og tími kominn fyrir Maríu og sjóræningjana aö
yfirgefa stóra bátinn. En á sama augnabliki kom
vinclhviöa yfir víkina. Hún var svo sterk, að litlu bát-
arnir slógust utan í stóra skipsskrokkinn, þar til þeir
voru orönir hriplekir og sumir mölbrotnir. Þeir fáu,
sem voru komnir út í bátana, skáru reipin, sem héldu
litlu bátunum viö þann stóra, og byrjuðu aö róa í átt til
lands. Púff, hvaö þaö var mikið rok! María skildi
mætavel, hver haföi sent rokið.
Um kvöldiö komu þeir til hennar einu sinni enn, og
sögöust myndu leggja í-ann á morgunn. Þá skildi
María, aö Guö myndi einnig bjarga henni á morgunn,
svo aö hún slyppi algjörlega viö aö fara meö sjó-
ræningjunum. Hvernig þaö myndi gerast, var alveg
óvitaö enn.
ÓSAMMÁLA.
Daginn eftir settu sjóræningjarnir út þá báta, sem
eftir voru. Allt var tilbúið til brottfarar, nema að þeir
áttu eftir aö sækja Maríu. Þá skall annar stormur yfir.
En í þetta skipti voru þaö ekki regn og vindar, sem létu
heyra í sér, heldur voru þaö ..Séffinn" og tveir aðrir
sjóræningjar, sem uröu ósammála. Þeir gátu ekki
ákveðið, hvert þeir ættu aö fara. „Séffinn" vildi fara í
eina áttina, en hinir í aðra, og svo rifust þeir og rifust.
María, sem heyrði alllt inn til sín, gat ekki stillt sig um
aö hlæja. Þeir rifust í marga klukkutíma, en aö síöustu
komust þeir aö þeirri niöurstööu, aö þaö væri svo
áliðið dags, að þeir kæmust hvorki út né suður,
þannig að þeir yröu að fresta ferðinni til næsta dags.
ÞEIR HLUSTA.
Þegar kvöldaði komu allir sjóræningjarnir aö
káetudyrum Maríu og settust þar niður. Þeir voru um
þaö bil sextíu. Margir þeirra höfóu áður verið inni í
káetunni hennar, en nokkra þeirra hafði hún aldrei
séö. En nú sátu þeir þarna fyrir framan dyrnar hennar,
og þá var tilvalið aö tala aöeins yfir þeim, hugsaöi
María með sér. Auövitaö vildi hún fyrst segja þeim frá
Jesú.
,,Viö erum svo slæmir og vondir. Þaö er ekki okkar
ósk, aö viö yröum svona slæmir, sögöu þeir. ,,Nei“,
sagöi María, ,,allir menn eru vondir á einn eöa annan
hátt“.
,,Nei, ekki þú, þú ert svo góð", lagöi einn þeirra til
málanna. ,,Já það getur vel veriö, en þá er þaö ekki
mitt, heldur er þaö Jesús, sem hefur gert mig svo",
hélt hún áfram. ..Jesús getur umbreytt öllum, þannig
aö þeir veröi góöir". ,,Hann getur frelsað og tekiö í
burtu allt þetta óhuggulega og óhreina, sem gerir það
aö verkum, aö viö veröum svo slæm. Jesús vill gefa
okkur nýtt hjarta, þannig að okkur langi ekki lengur til
aö gera þaö, sem er Ijótt. Ef viö trúum á Jesúm, þá
gerir hann allt sem viö óskum".
HVERNIG FER HANN AÐ ÞVl?
..Heyrðu, hvernig fer hann aö því", spuröi einn
þeirra. Nú sátu þeir allir hljóðir og hlustuðu á það,
sem hún sagöi viö þá. Þeir höföu ekki heyrt þaö fyrr,
aö manneskja gæti breyst og oröiö góð. Allt, sem þeir
vissu var, að stundum reyndu þeir aö vera ekki mjög
slæmir, en það yröi næstum ómögulegt aö breyta sér.
,,Ég hef nú líka verið óttalega heimsk, og er það
stundum enn. En ég segi Jesú, aö ég trúi á hann, og
biö hann aö fyrirgefa mér heimsku mína. Ég trúi því,
aö Jesús hafi dáið fyrir syndir mínar, og þess vegna
fyrirgefur hann mér vitleysuna. Mynduð þið ekki vilja
taka viö honum líka? Það er enginn munur á ykkur og
mér, því aö allir hafa syndgað, og allir þurfa aö fá
fyrirgefningu".
Þaö er eftir var kvöldsins sátu þau þarna og töluðu
um Jesú. Allan tímann voru þeir kyrrir og hlustuöu
meö mikilli eftirvæntingu.
SJÓRÆNINGJARNIR FLÝJA.
Næsta morgun komu sjóræningjarnir inn til Maríu
og sögöu henni, aö nú væru þeir aö fara. Ekkert
myndi hindra þá núna.
,,Og viö ætlum að taka þig meö, því aö viö fáum
peninga fyrir þig", sögðu þeir eins og venjulega. Þeir