Barnablaðið - 01.12.1981, Page 18
i
3. Frá því snemma morguns og langt fram á
nótt sáu drengirnir mömmu sitja við vefstólinn.
Mamma hugsaði margt, en um það vissu dreng-
irnir ekki. Ef til vill bað hún mamma til Guðs í neyð
sinni? Fékk hún ekki bænasvar?
5. Skömmu fyrir jól tók mamma vefstólinn
saman. Hún fór með voðina, sem hún hafði ofið, til
kaupmannsins og hann greiddi henni peninga
fyrir. Það varpaði örlítilli birtu yfir hátiðina, sem í
vændum var.
4. Þegar erfiðleikarnir voru að verða mömmu
um megn, kallaði hún á drengina sína og sagði:
„Strákar, nú skulum við syngja:
Ein lítil stund meö Jesú færir allt í lag.
Ef sorgmæddur ég er, hann svölun veitir mér.
Ein lítil stund meö Jesú færir allt í lag."
Söngurinn auðveldaði mömmu lífsbaráttuna.
6. í litla húsinu við skógarjaðarinn var jóla-
undirbúningurinn ekki tilkomumikill. Vissulega
var sérstaklega vandað til hreingerningarinnar.
Einnig þurfti að höggva brennivið. Þaö sáu
drengirnir um. Ekki voru til miklir peningar fyrir
mat og bökunarvörum.