Barnablaðið - 01.12.1981, Blaðsíða 32
32
Kokkab
meb Konna
Halló þiö öll!
Hérna á þessari síöu ætla ég
aö reyna aó hafa upþskriftir og
eldhúsráö, og af því aö nú
nálgast jólin, fannst mér alveg
fyrirtak aö byrja núna, svo aö
þiö gætuö notaö ofninn heima,
— á meöan hann er enn heitur
eftir jólabaksturinn.
Fyrir jólin eru bakaöar smá-
kökur, í flestum tilfellum alveg
dísætar, en líka þrælgóöar og
fitandi. Hálfmánar, gyöinga-
kökur, piparhnotur, þórskökur
og hvaö þetta nú heitir allt
saman. Þess vegna fannst mér
líka alveg tilvaliö aö gefa ykkur
uppskriftir af ósætum kringl-
um, og svo því besta sem flestir
krakkar fá, ís!
Af því aö þetta er fyrsti þátt-
urinn minn um kökur og svo-
leióis nokkuð, þá þætti mér
gaman aó fá aö heyra frá ykk-
ur, til dæmis ef ykkur langar aö
baka einhverja sérstaka köku,
en finnið hvergi uppskriftina,
og líka ef þiö hafiö bakað eitt-
hvaö sjálf sem er bæöi gott og
auðvelt.
Gerum síöuna aö okkar síöu!
Kveðjur
Konni
Lögmál eldhússins:
1. Þeir sem hafa sítt hár,
bindi hár sitt upp.
2. Notiö svuntu.
3. Þvoið hendurnar.
g - grömm, tsk. - teskeið,
msk. — matskeið, dl. —
desilítri.
Ath. Allar mæliskeióar
sléttf ullar.
KRINGLUR
Takiö allt út úr ofninum, og
stillió hann á 200°C.
250 g hveiti, 1 '/2 tsk. lyftiduft,
1 msk. sykur, 2 tsk. kúmen.
Þessu er blandað saman í skál.
Skerið 50 g smjörlíki niður í
búta og myljiö þaö saman vió
þurrefnin.
Hellió síóan '/2 dl. mjólk saman
við, og hnoðið. Smyrjiö plötu
meö smjörlíki. Klípiö svo smá
bút af deiginu, og rúlliö þaó út
meö fingrunum. Búiö síóan til
smá gervi orm! Klípió saman í
kringlu, sem myndar hring.
Raóiö svo kringlunum meö
hæfilegu millibili á plötuna, og
penslió þær meö vatni, eóa
mjólk, svo aö þær veröi fallegri
á litinn. Setjiö plötuna inn í
miójan ofn, stillið klukkuna á 15
mínútur, og hefjist handa viö
aó fylla á næstu plötu.
Svo bara: Gangi ykkur vel, og
veröi ykkur aó góöu!
ÍS
í ísinn þurfum viö:
4 eggjarauóur,
4 msk. flórsykur,
'A lítra þeyttan rjóma,
'/2 msk. vanillusykur,
V2 msk. kakóduft.
Fyrst þeytum vió rjómann.
Svo skiljum viö hvítuna frá
rauöunni, og þeytum rauóurn-
ar og flórsykurinn þar til hrær-
an er Ijós og létt. Síóan blönd-
um viö bragóefnunum útí, og
eggjahrærunni síðan saman
viö rjómann.
Viö vonum aö til sé fallegt
form uppi í skáp, drögum þaó
niður, og bleytum þaó aóeins
aó innan meö köldu vatni, setj-
um svo hræruna í formið og
beint í frysti, og þar bíður þaö
þar til þaö erfrosió ígegn, eöa í
4—5 klukkustundir.
Gleðileg jól!
Utanáskriftin er:
Kokkað með Konna
Box 5135
125 Rvk.