Barnablaðið - 01.12.1992, Page 22

Barnablaðið - 01.12.1992, Page 22
22 BARNABLAÐIÐ H alló krakkar, hér kemur lítið bréf frá okkur. íkirkjunniokkar semheitirHvíta sunnukirkjanFíladelfíaerstarfræktursunnudagaskóli sem við köllum “Barnasamkomur”. Þær eru haldnar á sama tíma og fullorðna fólkið heldur sínar samkomur, eða klukkan 16:30 á sunnudögum. A þessum barnasamkomum lærum við að þekkja Jesú sem persónulegan vin, og við lærum líka hvernig við eigum að tala við hann. Einnig lærum við ýmislegt annað sem allt er afar spennandi, og það sem best er, beint upp úr Biblíunni. A bamasamkomum kennir ýmissa grasa. A hverri samkomu koma brúður í heimsókn, þær syngja fyrir okkur og eru með skemmtilegar uppákomur. Svo eru líka kirkjumýs sem koma í heimsókn, en það eru brúður sem líta út eins og mýs. Þær vita um allt sem gerist í kirkjunni og þess vegna koma þær alltaf með tilkynningar um hvað er á döfinni næstu sunnudaga. Svo er það auðvitað Frændi Fríður, fréttamaður frá Guði, en hann veit allt. Það segir hann að minnsta kosti sjálfur. Á hverri barnasamkomu fá krakkarnir verðlaun fyrir að koma með vini með sér, en hana fá þau úr sérstöku vinaboxi. Einnig er leyndarmálabox þriðja hvem sunnudag í mánuði og er það leyndarmál hvað krakkarnir fá úr því boxi. I hverjum mánuði eru svo veitt verðlaun fyrir þá sem hafa alltaf mætt og alltaf komið með biblíur og önnur verðlaun fy rir þá sem hafa alltaf mætt en hafa gleymt að koma með biblíurnar sínar með sér. Þetta gerist á síðustu barnasamkomu hvers mánaðar. Það er hann Tóti trúður sem heimsækir okkur þá og gefur okkur verðlaunin. Venjulega mæta um það bil 50 til 60 böm á bamasamkomurnar, sem eru ætlaðar börnum á aldrinum 3 til 12 ára.Okkur langar afar mikið til þess að það komi enn þá fleiri á barnasamkomumar okkar þess vegna ert þú velkominn . Við erum alveg eldhress því það er svo gaman að læra um Jesú. Bless krakkar Bréf frá sunnudagaskóla KataogBenný.

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.