Barnablaðið - 01.12.1992, Page 30
30 BARNABLAÐIÐ
Fuglar
Sumir setja litla
skrautfugla á jólatréð.
Þeir tákna heilagan anda.
Stjarnan
Stjarnan á toppi trésins
táknar
Betlehemstjörnuna.
Aðventustjarna sem sett
er í gluggann táknar það
sama.
Hjörtu
Hjörtun minna okkur á
kærleika Guðs.
Bjöllur
Jólabjöllurnar hringja jólin
inn.
Körfur
Litlu jólapokarnir minna
okkur á það að Jesús
mettaði 5000 manns.
Jólasveinarnir
Ja, þeir tákna ekki neitt.
Þeir eru bara gömul hjátrú.
Aðventukransinn
Hann þarf að vera til-
búinn fyrsta sunnudag í
aðventu. Aðventukertin
fjögur eru stundum höfð
hvít eða rauð. Sumir hafa
þau fjólublá, því það er
litur aðventunnar.
Kransinn er hringur, án
byrjunar og endis.
Hringurinn minnir okkur á
eilífðina.
Gjafirnar
Við gefum hvort öðru
gjafir vegna þess að við
minnumst fæðingar Jesú.
Þegar við gleðjum aðra,
gleðjum við Jesú.
Vitringarnir þrír gáfu Jesú
gjafir. Það var gull,
reykelsi og myrra.
Gullið táknar konungdóm.
Reykelsi táknar
heilagleika og myrran
táknar þjáningu og dauða.
Englar
Englarnir minna okkur á
fagnaðarboðskapinn sem
englarnir fluttu hirðunum á
jólanótt.