19. júní - 19.06.1951, Síða 32
jþafí rayndi kosta fyrir lijónaefni, sem líkt væri
ástatt fyrir, að láta framkvæma hjónavígslu um
leið og sambúðin liæfist. Ég valdi 10. launafl.
hjá ríki og bæ, það eru miðlungs laun eða tæp-
lega það, (launaflokkarnir eru 15 og sá 1. bæst-
ur), en ég vissi, að laun stúlkunnar voru svipuð
því sem þar er greitt. Gerði ég svo unnustan
henni jafnan að launum og geri ekki ráð fvrir
að þar hafi verið of í lagt, þar sem hann tald-
ist hafa góða stöðu. IJtreikningar þessir færðu
mér heirn sanninn um það, sem ég raunar vissi
áður, að það varðar árlega stórum fjárútlátum,
að ég ekki segi sektum, að ganga í hjónaband
á venjulegan hátt, liafi konan launuð störf. En
þó var útkoman verri en ég hafði búizt við.
Tekjuskattur lijónaefnanna, hvors um sig, yrði
1169 kr. eða samanlagt 2338 kr., en væru þau
gift og hefðu nákvæmlega sömu tekjur yrðu þær
samkvæmt gildandi skattalögum lagðar saman
og skattlagðar sem eins manns vinna og þá yrði
skatturinn 10258 kr. eða með öðrum orðurn hækk-
un á tekjuskatti vegna hjúskapar 7918 kr. Hækk-
un á útsvari af sömu orsökum yrði kringum
2200 kr. Sem sagt hjúskaparyfirlesturinn myndi
kosta þessi umtöluðu hjónaleysi hvorki meira en
minna en 10118 kr. árlega, og lái þeim aðrir en
ég þó að þeiin finnist hann dýr og umfram efna-
lega getu þeirra. Eina ráðið, sem þessi sára-
saklausu hjónaleysi hefðu svo til að losna vði
að vera féflett svo ósvífnislega, er að búa saman
ógift og láta 10 þúsund kallinn lieldur ganga
til þess að borga íbúðina.
Andstæðingar tóbaksreykinga hafa stundum gert
sér það til dundurs, að reikna út, hve miklum
verðmætum hjón, sem reyki, séu búin að svæla
á tilteknum brúðkaupsafmæhim. Eins mætti leika
sér að því að reikna út hjúskaparskattinn.
Á tíunda brúðkaupsafmælinu væru þau búin
að spara á annað hundrað þúsund krónur, það
færi langt með að borga íbúðina. Á gullbrúð-
kaupinu? ja, það yrðu svimandi háar tölur fyrir
blásnautt fólk. Og ég miðaði einungis við miðl-
ungs tekjur, en „dýr mundu Hafliði allur“. Þess
er varla nokkur von, að nokkur sætti sig við
s!íka meðferð af opinberum aðilum, og liafa
ekki annað til saka unnið en að ganga í hjóna-
band. Er þá ekki von að fólk grípi til þess ráðs,
sem handhægast er, að giftast ekki og búa bara
saman, meðan skattalöggjöfin er þannig, að það
virðlst refsivert athæfi að gift kona vinni launuð
störf. Erlendis eru orðin allmikil brögð að því
19. JÚNj
að lijón skilji til að spara sér opinber gjöld.
Ekki lief ég enn heyrt getið um slíka skilnaði
hér á landi, en verður þeirra langt að bíða að
óbreyttu ástandi?
Ymisleg andmæli hafa komið fram gegn því
að konur verði sjálfstæðir skattþegnar, t. d. það,
að sérsköttum allra kvenna sé ekki framkvæm-
anleg þar sem konan, sem vinni eingöngu á
heimilinu liafi ekki tekjur. Að vísu er ærið
umfangsmikið verk að breyta allri skattalöggjöf-
inni þannig í fljótu bragði, að allar konur telji
sérstaklega fram til skatts, en vitanlega er það
lokatakmarkið, sem stefna ber að. En sökum
aðsteðjandi vandræðaástands, sem er bein afleið-
ing skattalaganna, þarf eins fljótt og auðið er
að gera einhverja breytingu á skattaframtölum
þeirra giftu kvenna, sem vinna launuð störf.
Svo mætti til að byrja með liafa um það frjálst
val, hvort konur, sem liafa tekjur sameiginlegar
heimilisföðurnum teldu þær fram sameiginlega
eða sér. En þar til skattalöggjöfin hefur verið
endurskoðuð þarf að finna bráðabirgðalausn, svo
að þeim konum, sem vinna launuð störf, sé ekki
íþyngt óhóflega með skattaálagi.
Aðrir, sem eru andvígir sérsköttun kvenna
halda því fram, að gifti kona sig á annað borð
eigi þær eingöngu að vinna á lieimilinu, þar
sé þeirra skylda að vera og starfa. Við þá, sem
þannig liugsa, er eitt að segja, að það þýðir
ekki að „stríða gegn straumi aldar“. Og verði
ekki bráðlega gerð einbver sú breyting á skatta-
löggjöfinni, sem liamlar því að heiðarleg hjú-
skaparslofnun geti varðað fjársektum endar með
því að engin ber lengur virðingu fyrir þeirri
mjög svo virðulegu atliöfn.
Valborg Bentsdóttir.
Ein sannasta og mesta gleði, sein lífið getur
veitt þér er sú, að öðrum vegni vel.
Þá gleði getur enginn tekið frá þér.
Sannleikselsk er sú kona, sem segir satt um
allt annað en aldur sinn, þyngd sína og laun
mannsins síns.
Áður fy rr roðnuðu ungar stúlkur jiegar þær
fóru hjá sér. Nú á dögum fara þær hjá sér Jieg-
ar jiær roðna.
18