19. júní - 19.06.1951, Side 34
Höfii’rnynd eftir Tove Ölafsson.
þrándur í götu annarra þjóða, sem kappkosta
að gera lijá sér umbætur í þessu efni.
Hinir háu samninf'saðilar liafa því í nafni
réttlætis o!í; mannúðar of; í því skyni <ið koma
á þeim umbótum, er að framan greinir, til |>ess
að tryfífija varanlegan frið, samþykkt stofnskrá
þcssa“.
Eins og að líkum lætur starfa margar fasta-
nefndir á vfcgum stofnunarinnar að hinum marg-
víslegu viðfangsefnum, sem hún hefur til með-
ferðar.
Alþjóðavinnumálaskrifstofan hefur fjölmennu
starfsliði á að skipa, enda annast hún í raun
og veru allar framkvæmdir fyrir stofnunina.
Störf liennar eru mikil og víðtæk. Meðal annars
hefur hún með höndum mikla útgáfustarfsemi
og gefur út fjölda bóka á liverju ári. Merkasta
ritið, sem hún gefur út, er Alþjóðavinnumála-
tímaritið (International Lahour Review). Einnig
gefur hún að sjálfsögðu út rkýrslur um svo að
19. J Ú N I
segja hvert einasta mál, er stofnunin liefur með
höndum.
Ég hef hér í þessu stutta yfirliti um skipan
og störf I. L. 0. leitast við að gefa ofurlitla
hugmynd um, liversu mikil og víðtæk álirif stofn-
un þessi getur haft og því mikilsvert fyrir fram-
gang sérlivers máls, að hún taki það til með-
ferðar. Eins og ég gat um áður hefur I. L. 0.
nú uin nokkurl skeið liaft með höndum málið:
Sömu laun til karla og kvenna fyrir störf af
sama verðmæti. Hefur mál þetta nú verið a 11-
rækilega undirbúið og í ráði er, að það verði
tekið til afgreiðslu á Alþjóðavinnumálaþinginu,
sem haldið verður nú í sumar. Alþjóðavinnu-
málaskrifstofan liefur samið um þetta tvenns-
konar frumvörp. Annarsvegar frumvarp að al-
þjóðasamþykkt ásamt álitsgerð, en hinsvegar frum-
varp að álitsgerð einni saman. Þessi frumvörp
verða lögð fyrir þingið í sumar til lokaafgreiðslu.
Ekki er hér rúm til þess að rekja efni þeirra í
einstökum atriðum, en það skal tekið fram, að
þau gera ráð fyrir fullkomnu jafnrétti karla
og kvenna á sviði atvinnulífsins. Alþjóðasam-
þykkt um málið er að sjálfsögðu }>að æskilega,
og hefur ríkisstjórn íslands lýst sig samþykka
því, að sá afgreiðsluháttur verði hafður. En ]»ó
að allt þetta fari nú að óskum og aðildarríki
t. d. ísland, staðfesti samþykkl Alþjóðavinnu-
málaþingsins, þá eru samt ótal vandamál óleyst,
sem koma til greina við framkvæmd málsins.
Eitt höfuðskilyrði þess að umrædd regla komi
að fullu gagni virðist mér vera, að hún sé fram-
kvæmd ineð lagasetningn. Auðvitað hlýtur það
að taka alllangan tíma að koma svo stóru máli
sem hér ræðir um til fulls í framkvæmd, slíkt
gerist ekki í einni svipan. Eitt inesta vandamálið
verður sennilega vinnumatið, því auðvitað verður
að meta flest störf að nýju og er mikils um
vert, að það takist vel. Mjög mikilsvert er, að
konur og karlar hafi nákvæmlega sömu aðstöðu
til þátttöku í öllum hugsanlegum störfum, einn-
ig til launaliækkana og hvers konar frama í starfi.
Sú kona, sem hefur húsmóðurskyldum og þó
einkum móðurskyldum að gegna, hlýtur að liafa
sérstöðu, þegar um það er að ræða að taka
þátl í atvinnu lífinu. Að útiloka hana frá því,
sökum þessarar sérstöðu liennar, er sama og að
meina henni að njóta sjálfsagðra mannréttinda.
Skilningur á l»essu fer nú óðum vaxandi hjá
þeim þjóðúm, sem náð hafa mestum félagsleg-
um þroska, enda hafa þar verið gerðar ýmsar
20