19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1960, Qupperneq 8

19. júní - 19.06.1960, Qupperneq 8
húsfreyju á Reykjum. Gekk henni jafnan illa að fæða börn sín, og dóu flest þeirra. 1 þetta sinn eignaðist hún tvíbura, og tók madama Þóra annan þeirra heim með sér. Báðir tvíburarnir dóu. Skrif- aði þá madama Þóra móður þeirra svo fallegt huggunarbréf, að ógleymanlegt var þeim, er sáu það. Þetta bréf mun nú því miður vera glatað, en talað hefi ég við fólk, sem lesið hafði bréfið og dáðist mjög að þvi. Frú Þóra skrifaði fallega rithönd. Einnig sagði mér fyrrnefnd Una á Kálfsstöðum, að hún myndi það lengst, af hve mikilli blíðu madama Þóra hefði huggað Rannveigu móður sína, þegar hún stóð harmi lostin við gröf dóttur sinnar í Hólakirkjugarði. Hún hafði dáið á barns- sæng. Eftir jarðarförina kom madama Þóra til þeirra, vafði Rannveigu að sér og bauð henni inn til sín. Leiddi hún hana inn, og fylgdist Una með þeim, þá 15 ára að aldri. Þóra gaf þeim mæðgum kaffi í herbergi sinu. Þar inni var fremur fátæklegt, tvö rúm, annað við suðurvegg, en hitt að norðan. Borð var undir glugg- anum milli rúmanna og stóll með sessu fyrir framan það. Aftan við annað rúmið var koffort eða kista. Meira leyfði ekki lengd herbergisins. Sigga Tóta. Tökubarn madömu Þóru, Sigríði Pétursdóttur, sem ávallt var nefnd Sigga Tóta, þekkti ég og tal- aði við hana um „ljósu“ hennar og það, sem gerð- ist á Hólum um hennar daga. Hún fæddist á Heiði á Langanesi á gamlaárs- dag 1857, og hafði madama Þóra tekið á móti henni. Hét hún í höfuðið á þeim mæðgum: Þóra Sigríður. Mun hún að einhverju leyti hafa alizt upp á Sauðanesi til tólf ára aldurs. Þá flyzt hún í Hóla með frú Þóru, en réðst strax til Hóla- Jóns og var hjá þeim hjónum úr því til fullorð- insára. Kallaði hún madömu Þóru ljósu sína, en Sigríði fóstru. Þóra Gunnarsdóttir kenndi henni sjálf undir fermingu, enda var Sigga Tóta vel að sér eftir þeirrar tíðar hætti. Urðu henni þau fræði minnis- föst, sem frú Þóra kenndi henni, því að í bana- legu sinni las hún fjöldann allan af bænum og versum, er hún hafði numið af henni endur fyrir löngu. „Það var ekki ljósu minni að kenna, hvernig fór fyrir mér“, sagði þessi aumingi. Þvi að Sigga Tóta varð ekki lángefin í lífinu. Hún var ákaflega léttúðug að eðlisfari, og ekki mun heimilisbragurinn á Hólum hafa bætt neitt um. En söngrödd hafði hún mikla og fagra, svo sem haft hafði Pétur faðir hennar, og hélt henni fram í háa elli. Heyrði ég hana syngja á níræðis- aldri, og hafði hún þá enn undraskæra og mikla rödd. Hún var fremur lagleg og létt á fæti, og glað- lyndi sínu hélt hún til æviloka. Ekki var hún vinnugefin og tolldi illa í vistum. En hefði hún fæðzt nokkrum áratugum seinna, mundi hún senni- lega hafa orðið mikil söngkona og þótt fagnaðar- bót á skemmtistöðum. Á miðjum aldri fékk hún svo illkynjað fingurmein, að henni varð liöndin næstum ónýt. Upp frá því fór hún á sveitina og var á ýmsum bæjum í Hjaltadal, lengst á Kálfs- stöðum. Mjög unni hún ljósu sinni og sagði mér ýmis- legt um hana. Til dæmis taldi hún, að madama Þóra hefði verið trúkona mikil, og hefði hún ævin- lega farið í kirkju, þegar messað var. Mælti hún þá jafnan fyrir munni sér versið úr Passíusálm- unum: „Þá þú gengur í Guðs hús inn“. Eitt sinn fundu þær Sigga Tóta og Þóra, dóttur- dóttir madömu Þóru, upp á því að kaupa sér krínó- línur, sem þá voru í tízku, og ætluðu sér að skarta í þeim í Hólakirkju. Gamla konan komst að þessu og varð ekki blíð á manninn. Braut hún krínólín- urnar við kné sér ungu stúlkunum til mikillar hrellingar og sagði, að „þær skyldu ekki skemmta skrattanum með þessu“. Siggu Tótu gaf hún vel úti látinn löðrung, en Þóra, sem var yngri, slapp með harðar ávítur. Sést af þessu, að hún átti það til að vera skaphörð. Þegar madama Þóra var til altaris, klæddist hún viðhafnarbúningi. Var það svört herðaslá úr mjög vönduðu klæði, fóðruð gráu þykksilki, og svartur stráhattur með stórum börðum, af þeirri gerð, sem nefndur var „skugg“-hattur. Ég get ekki stillt mig um að segja frá útför Siggu Tótu. Hún var orðin háöldruð, hafði legið lengi og þjáðst mikið undir það síðasta. Oft og innilega óskaði hún þess, að hún mætti hljóta hinzta hvílustað nálægt ljósu sinni. En hvorki henni né öðrum datt í hug, að það gæti orðið, því að þröngt er í Hólakirkjugarði. Árni bóndi á Kálfsstöðum fór að taka gröfina. Hann var meðhjálpari í Hólakirkju og því kunn- ugur garðinum. Reyndi hann fyrst að fá leg- stað á tveim eða þrem stöðum, en þar var jafnan 6 19. JÚNl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.