19. júní


19. júní - 19.06.1964, Síða 17

19. júní - 19.06.1964, Síða 17
Rústir Hvalseyjarkirkju á Grœnlandi. Þetta timabil tryggir Þorsteinn enn betur sess sinn í þjóðfélaginu. Árið 1417 er hann tilnefndur sem vitni að eigna- afhendingu til biskupsins að Hólum og Skálholti, Árna Ólafssonar hins milda, sem sums staðar í gömlum heimildum er álitinn vera bróðir hans. 1420 er hann settur dómari i öðru þýðingarmiklu eignamáli. Árið eftir — 1421 — er hann gerður að lög- manni fyrir sunnan og austan, og í krafti þess embættis staðfestir hann dóma á alþingi að Þing- völlum tveim árum síðar. Það er því stórmenni, sem árið 1424 finnur sig knúðan til að krefja frænda konu sinnar, Sæmund Oddsson, sem nú er kominn til Islands, um vitn- isburð varðandi brúðkaupið, sem haldið var á Grænlandi fyrir 16 árum. Engar heimildir eru til um það, hvernig eða hvenær Sæmundur kom til Akra, en sennilegt er, að hann hafi farið frá Grænlandi í kringum 1418, þegar eskimóar gerðu innrásina miklu i byggðir Islendinga. Liklegt er, að hann hafi fyrir tilviljun eina komizt á skip, sem flutti hann til Islands, og að hann hafi þá setzt að hjá frænku sinni, Sigriði. Þorsteinn Ólafsson hefur því haft hið ákjósanleg- asta vitni við hendina. Vitnisburður Sæmundar Oddssonar kemur í einu og öllu heim við þá tvo fyrri frá árunum 1409 og 1414. Hann skrifar: ,.Eg, Sœmundur Oddsson, kennist méS þessu mínu bréfi, dS eg var nœr í Hvalsey í Grœnlandi, sá og heyrSi uppá aS SigriSur Björnsdóttir frænd- kona min gifti sig Þorsteini Ólafssyni til eigin- kvinnu, meS mínu ráSi og samþykki, bæSi méS já og handabandi. Svo var eg og nœr, aS nefndur Þorsteinn Ólafsson festi SigríSi Björnsdóttur sér til eiginkvinnu méS guSs lögum og heilagrar kirkju aS lýsingum gengnum, sem vottar þaS bréf, sem hér er méS fest á áSur sögSum staS. Og til meiri sanninda og fulls vitnisburSar hér um settu Þor- grimur Sölvason, Brandur Halldórsson, ÞórSur Jör- undarson og Jón Jónsson sín innsigli méS mínu innsigli fyrir þetta bréf, gjört aS ökrum í Skaga- firSi mánudaginn næsta fyrir Maríumessu síSari, anno domine 1424. Vorum vér fyrrnefndir menn nær fyrrsagSri gifting og festing“ Það verður ekki lengur séð, af hvaða tilefni þetta þriðja vottorð, varðandi brúðkaup Þorsteins lögmanns og Sigriðar konu hans, er skrifað; en sérhvert vottorðanna hefur verið varðveitt af kost- gæfni. 19. JÚNl 15

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.