19. júní


19. júní - 19.06.1964, Side 22

19. júní - 19.06.1964, Side 22
onu Nú er þó komið sumar í orðsins fyllstu merk- ingu. Sólin skín og ilmur af birki, ösp og út- sprungnum reyniviði berst inn um gluggann. Þröstur situr í toppnum á hæstu öspinni og syng- ur hástöfum fyrir „elskuna sína“. Ég sé hann úr rúmi mínu, hvar hann setur sig í stellingar, dint- ar sér til, belgir brjóstið, gapir feikilega og við- hefur alla söngmanns tilburði. Morgnar eins og þessi koma svo fáir á hverju sumri, að mér finnst synd að sofa þá af mér. Klukkan er rúmlega 5, í þetta skipti þarf ég ekki í fjós og nú ætla ég að helga hugðarefnum fyrstu stund dagsins. Úti í garðinum bíða ótal verkefni, sem kalla að. Tré og skrautjurtir hafa blátt áfram þotið upp síðastliðna daga, en það hefur illgresið gert líka, í hverju blómabeði vefur arfinn sig utan um plönt- umar — og reynir að kæfa þær. Það þarf ná- kvæmni og þolinmæði til að hreinsa burtu ill- gresið, svo að hvorki blöð né blómknappa saki. Þama í öðm rósabeðinu er fyrsti blómknappur- inn að opnast móti morgunsólinni, og ótal knapp- ar stórir og smáir á hverri rós. Þetta em allt inni- rósir, sem eru alfluttar út í garðinn. Á vetuma blunda þær í hinni mjúku myrku mold, sem er upphaf og endir alls, sem lifir. Seint í marz eða snemma í apríl líta þær aftur ljós dagsins, en gista í kössum inni fyrstu vikumar. Ég krýp við beðið og teyga ilminn af hálfútspmngnu blóminu. Þó að kristalstær döggin glitri á hverju strái, er mold- in í beðunum þurr. Ég sæki garðkönnuna og svala „þyrstri rós í þurrk“. Svo setzt ég á hraunstein undir hæstu trjánum og hugsa mér, að ég sé stödd í stórum skógi; ég ætla að njóta sem bezt morgun- loftsins, áður en eldhússtörfin hefjast. Ég læt augun líða yfir sveitina. Hann er fagur og traustur fjallahringurinn, sem heldur vörð um fjörðinn. Sveitin er að vakna, hundar gelta og kýr baula. Það er verið að reka þær heim til mjalta. En ég sakna reykjanna, sem hér áður stigu upp frá hverju býli á morgnana og gáfu til kynna, hvenær húsmóðirin tók til starfa, en nú er Eyja- fjörður orðinn „reyklaus" sveit. Ótrúleg og ævintýri líkust er sú breyting, sem orðin er hér á 30—40 árum. Þá voru víðast hvar lágreistir torfbæir og umhverfis þá kargaþýfðir túnkragar, sem ekki fóðmðu nema 2—4 kýr. Flest- ir bjuggu á leigujörðum og oftast voru þær óhóf- lega dýrt leigðar. Það var erfið og vonlítil bar- átta, sem einyrkjarnir urðu að heyja á þýfðum og graslausum túnum og engjum með handverkfæri ein að vopni. Og ekkert stoðaði, þótt nótt væri lögð við dag. Skyldi ekki margur stórbóndinn nxi til dags heykjast við, ef aftur væri horfið til þess sem þá var? En nú hafa flest kotin risið úr öskustónni og storka stórbýlunum, sem áður báru langt af, en hafa tiltölulega tekið miklu minni breyting- um.------- Ég lít á úrið, það er mál að hefja morgunverk. Ég geng inn í eldhúsið og læt vatn í hraðsuðu- ketilinn. Nú þarf húsmóðirin ekki að byrja á því að sækja vatn í lækinn og bera inn eldivið, moka ösku úr hlóðum og lífga við falinn eld. Eftir nokkr- ar mínútur sýður í katlinum og brátt fyllir kaffi- ilmurinn eldhúsið. Og dagurinn líður við eril og önn úti og inni. Hey á ýmsum stigum liggur um mestallt túnið. Sumt í stórum beðjum, sumt hálf- þurrt, sumt nýslegið. Það er verið að þurrka og flytja heim. Tveir stórir vagnar ganga stanzlaust, það er mokað á þá með uppmoksturstækjum. Það eina, sem þarf að snerta á heyinu, er að moka því af vögnum í blásarann, en hann þeytir þvi horn- anna á milli í hlöðunni, sem fyllist ótrúlega fljótt. Frá hverju heimili vélagnýr og vagnaskrölt. Grótta- kvarnir tækninnar mala nú gull í garð Fróða — svo lengi sem malað er af forsjá. Rétt fyrir hádegi gefst mér stund til að skreppa út í garð og grípa í að slá, og ég er svo áköf, að ég veit ekki, hvað tímanum líður, fyrr en klukk- an er rétt að verða 12. Ég reisi vélina upp við tré og hraða mér inn; ég á eftir að flysja kartöfl- urnar. Þegar ég kem inn, eru vinnuskilyrði væg- 20 19. JÚNl

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.