19. júní - 19.06.1964, Page 29
Rósa GiÆmundsdóttir.
Höfundur blindraletursins var franskur maður,
Louis Braille að nafni, fæddur árið 1809. Hann
missti ungur sjónina og var sendur til náms i
blindraskóla í Paris. 1 þann tíð voru bækur fyrir
blinda ritaðar á upphleyptu venjulegu letri. Var
þetta mjög óþægilegt i notkun, fyrirferðarmikið
og stirt í vöfum og auk þess var sá galli á því, að
enginn blindur maður gat sjálfur ritað letrið.
Louis Braille fékk snemma mikinn áhuga á þvi
að bæta hér eitthvað um, og eftir að hann var
orðinn kennari við blindraskólann, frétti hann, að
höfuðsmaður í franska hernum hefði fundið upp
táknletur, er hann nefndi „næturletur“, og mátti
lesa það í myrkri; kom það sér vel, þegar skila-
boð voru send fram í fremstu víglinu. Þessa hug-
mjmd hins franska höfuðsmanns færði svo Braille
í það kerfi, sem átti eftir að valda byltingu í
bókagerð fyrir blinda og er nú notuð um allan
heim.
Framangreindar upplýsingar fáum við hjá
Rósu Guðmundsdóttur, sem hefur það starf með
höndum að rita þær bækur, sem ritaðar eru á
blindraletri hér á landi. Ritnefnd „19. júní“ taldi
tíma til kominn að vekja athygli á því starfi, sem
unnið er hér á Blindraheimilinu við Hamrahlíð,
og því truflum við Rósu við vinnu hennar og
ynnum hana eftir frekari upplýsingum um blindra-
letrið og bókagerð blindra.
Blindraletrið byggist á 6 upphleyptum punkt-
um í ferhyrning. Fjöldi þeirra, röðun og afstaða
ákveður svo táknið. Með þessu móti koma fram
yfir 60 mismunandi tákn, sem notuð eru fyrir
bókstafi, tölustafi og öll önnur lestrarmerki, nót-
ur eni einnig ritaðar á þessu táknletri, sem lesið
er með þvi, að fingurgómunum er rennt yfir let-
urlínuna. Til þess að auðvelda kerfið og gera það
fljótlesnara eru i flestum málum notuð eins kon-
ar styttingarkerfi, þar sem vissar samstöfur og
smáorð eru táknuð með sérstökum táknum.
Fjölritarinn, sem Rósa vinnur með, er sá eini
sinnar tegundar hér á landi. Letrinu er þrykkt
á tvær þunnar málmsíður, síðan er blað lagt á
milli og valsað við þrýsting; þrykkist þá letrið
á blaðið. Þannig má taka mörg eintök.
Blindraskólinn var stofnaður árið 1933. Fyrsti
kennari við skólann var Ragnheiður Kjartans-
dóttir frá Hruna. Hún lærði í Danmörku og hóf
kennslu blindraleturs strax og heim kom. Þá voru
vélritaðar bækur og annað, er skólinn þurfti til
kennslunnar, en slik vinna er seinleg, þvi á rit-
9 9 Q Q Q Q Q 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9
Q Q 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9
9 Q 9 9 9 9 9 9 9
A Á B c D Ð E á F G H 1 í J K L M N
9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9
9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9
9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9 9
0 ó P Q R s T u ú V w X Y Ý Z Þ /E ö
19. JÚNl
27