19. júní


19. júní - 19.06.1964, Side 41

19. júní - 19.06.1964, Side 41
Guðlaug Pétursdóttir er fædd 12. nóv. 1879 að Grund í Skorradal. Hún er yngst af 12 börnum foreldra sinna, en þau voru Pétur hreppstjóri Þorsteinsson og Kristín Vigfúsdóttir Gunn- arssonar. Var Kristín flutt (í hripi) ársgömul austan frá Fellsmúla á Landi, er Vigdís móðir hennar erfði Grund. Frú Guðlaug lærði teikningu í þrjá vetur hjá Stefáni Eirikssyni, einnig lærði liún handavinnu bæði í Reykjavík og Kaupmannahöfn og kenndi lengi við Flensborgarskóla hannyrðir og teikningu. Gamli hrafninn. Yfir eyðiholt og hæðir hrafninn flýgur lágt frá jörð. Héla tekur hraun og börð. Augum döprum oft hann lítur allt um kring er snærinn hvítur enga lífsbjörg er að sjá allt vill gamla hrafninn hrjá. Heim í kalda klettaskoru krummi svangur leitar einn. Hann er orðinn svifaseinn gamall fauskur, fiðri rúinn fyrrum var hann betur búinn fljótur þá í förum var flughraður og veiðisnar. Enginn sér þó útaf velti eða þó að deyi úr svelti krummi einn í klettagjá. Mánaskinið blæju breiðir blástjarnan frá auga greiðir skýið, sem að skyggði á. GuSlaug Pétursdóttir frá Grund. Hún giftist 1913 Friðrik Bjarnasyni tónskáldi og organleikara. Nú dvelst hún á Sólvangi í Hafn- arfirði. Frú Guðlaug er vel skáldmælt, þótt hún hafi farið frekar dult með. Þekktust er hún fyrir „þjóð- söng Hafnarfjarðar“: „Þú hýri Hafnarfjörður". Einnig hefur hún ort mjög fallegt kvæði um Hell- isgerði. Aðspurð, hvort hún hafi ekki ort neitt um Skorradalinn, svarar hún neitandi, hún hafi að- eins farið að bera þetta við, þegar manninn henn- ar vantaði texta við lög sín. Og hvort hún hafi virkilega ekki tekið með sér sína fögru bernskusveit? Nei, svarar hún hiklaust, ég fór þaðan alfarin þegar ég giftist manninum mínum. H. B. B. Hraunið. Hraunið var áður með hallir og torg og huldufólk bjó þar í hverri borg. Nú er allt breytt þar í mold og maðk og mannatraðk því engu má hlífa öllu á að breyta í garða og reita. Og huldufólk sem í hrauni bjó er horfið á burt því að engin er ró. En hvar á að leita að litlum álfum? Þeir lifa þó ekki í steinunum sjálfum sem kastað er fram í fjöruborð til að fylla víkur og breikka storð. Og bærinn hann breikkar og stækkar en búendum fækkar. Þótt hraunið sé reytt og rúið og renni það allt í búið það nægir ei nútímaþörfum ef ei nóg er af þarflegum störfum. Ég sakna vkkar hraundrangar háu. GuSlaug Pétursdóttir frá Grurtd. mark á þeim þar. En nú hefðu þær ekki aðeins fengið að láta sjá sig, heldur einnig að láta heyra til sín. Næsti Alþjóðafundurinn verður haldinn í sum- ar 19. ágúst til 2. sept. í Italíu. Það er tuttugasti fundur félagsins, og er Kvenréttindafélagi Islands heimilt að senda tólf fulltrúa á hann. Félagið á 60 ára afmæli í ár. Fundur Norrænu kvenréttindasamtakanna verð- ur haldinn í Kaupmannahöfn eða nágrenni í sept- ember næstkomandi. Dansk kvindesamfund hefur oft haldið nám- skeið fyrir konur frá Asíu og Afríku og nú sein- ast fyrir grænlenzkar konur. Norsk kvindesaksforening á 80 ára afmæli í ár og verður það haldið hátíðlegt 5. og 6. júní. 19. JONl 39

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.