19. júní - 01.10.1993, Blaðsíða 24
24
3. TBL.1993
VINNIMARKAÐURINN
Velja önnur
Umræöur um stööu kvenna á vinnu-
markaönum hófust með ávörpum frá
formönnum ASÍ og VSÍ. Benedikt Davíðs-
son benti á atriði sem hamla framgangi
kvenna og taldi það misrétti einnig
bitna á körlum og börnum, þ.e.
ófremdarástandiö sem rikir í leikskóla-
og grunnskólamálum. Hann benti jafn-
framt á að í samþykktum ASÍ-þinga
væru verkalýösfélög hvött til að koma
ákvæðum sem stuðla að jafnrétti inn í
samninga sína. Magnús Gunnarsson
sagði það vera hag fyrirtækja að fá sem
hæfast starfsfólk og kæmu fjölskyldu-
hagir oft í veg fyrir að konur gætu tekið
að sér krefjandi störf því þeim fylgi mikil
yfirvinna og ábyrgö. Konur veldu einhæf
störf, gjarnan við umönnun og þjón-
ustu, og verði launaþróun því hæg hjá
þeim þar sem framleiðni ráði yfirleitt
launum. Eina leiðin til að hafa áhrif á
laun sé því aö konur sæki í karlastörf
og karlar í kvennastörf.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, félagsfræð-
ingur hélt erindi undir yfirskriftinni
„Kynskipt verkalýðsfélög - árangursrík
leiö fyrir konur?" og byggði það á rann-
sókn sinni á vkv.fél. Framsókn í Reykja-
vík og viðtölum við félagskonur þess og
félaga T Dagsbrún. í samtölum við
störf til að fá
verkafólkið kom í Ijós að samspil milli
atvinnu og fjölskyldulífs skipti konurnar
mun meira máli en karlana og sinntu
þær uppeldi barna sinna oft í gegnum
síma. Þær töldu því að samfelldur
skóladagur yrði mjög til bóta. Guðbjörg
taldi það ekki vera aðalatriði hvort fé-
lögin væru blönduð eða kynskipt hvaö
varðar árangur í jafnréttismálum. Þar
skipti mestu að markmiöin væru skýr
og leiðirnar að þeim en samkvæmt
rannsókn hennar á Framsókn hefur
kynskiptinging ekki skilað betri árangri í
jafnréttismálum.
Elínbjörg Magnúsdóttir, formaður fisk-
vinnsludeildar Verkalýðsfélags Akraness,
sagöi blönduö verkalýðsfélög skila góö-
um árangri og taldi deildaskiptingu já-
kvæða lausn. Ættu stóru verkalýðsfé-
lögin á höfuðborgarsvæðinu að byrja á
því að sameina þjónustu sína og sam-
eina félögin síðan í kjölfariö. „Við meg-
um þó passa að láta strákana ekki eina
um þetta," sagði Elínbjörg.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þingkona
sagði að konur væru varanlegt vinnuafl
en ekki varavinnuafl og þyrftu að haga
baráttu sinni eftir því. „Við erum að
falla á tíma," sagði hún og nefndi stöð-
una undanfarna áratugi kyrr kjör kvenna.
hærri laun?
Sagan, hefðin og menningin vinna með
körlum og konum hættir til að kenna
sjálfum sér um ástandið og fyllast sorg
í stað reiði. Konur eiga að berjast fyrir
þátttöku í litlum og meðalstórum fyrir-
tækjum. Þær hafa nægar hugmyndir,
eins og fram kom í 150 umsóknum um
300 milljón króna framlag til atvinnu-
sköpunar kvenna. En það er ósamræmi
í sjóðamálum kvenna og karla. Karlar
með stórar hugmyndir sækja T stóra
sjóði en fyrir konur eru aðeins litlir sjóð-
ir fyrir litlar hugmyndir. Á sama tíma
hefur þurft að afskrifa 7 milljarða vegna
gjaldþrota fyrirtækja karla.
Fjörugar umræður spunnust að fram-
söguerindum loknum og voru konur í
Framsókn varaðar við að tapa áhrifum
ef þær sameinuöust Dagsbrún. Sagði
Ragna Bergmann Formaöur félagsins aö
ef til sameiningar kæmi yrði það á jafn-
réttisgrunni og stofnað yrði nýtt félag
með nýju nafni. Var bent á ýmis teikn á
lofti T atvinnumálum þar sem verkafólk
gæti oröið sterkara meö því að starfa
saman T félögum en þá mættu konur
ekki láta sinn hlut eins og reyndin hafi
orðið I Bretlandi þegar kvenna- og karla-
félög sameinuðust.
ÁLYKTLN:
Jafnréttisþingið skorar á stjórnvöld
að aðstoða markvisst þær konur
sem eru T fyrirtækjarekstri og þær
sem hafa áhuga á því að hrinda at-
vinnuskapandi hugmyndum T fram-
kvæmd. í þessu tilliti beiti stjórnvöld
sér fyrir því að komið verði upp upp-
lýsingamiðstöð fyrir konur þar sem
hægt verður aö veita upplýsingar,
hvatningu og faglega ráögjöf í
tengslum við smærri atvinnurekstur.
• „Ýmis tregðulögmál vinna gegn fram-
förum kvenna á vinnumarkaði, t.d.
dagvistar-, mennta- og skólamál."
Benedikt Davíðsson forseti ASÍ.
• „Við viljum gjarnan fá fleiri konur til
aö vinna með samtökum atvinnurek-
enda," Magnús Gunnarsson, formaður
VSÍ.
• Skv. síöustu samningum átti ríkis-
sjóður aö setja 1 milljarö í atvinnu-
skapandi verkefni. 60 milljónum var
varið til að skapa störf fyrir konur -
hinum 940 í störf fyrir karla.
Benedikt Davíðsson forseti ASÍ, Össur Skarphéðinsson starfandi félagsmála-
ráðherra, Lára V. Júlíusdóttir formaður Jafnréttisráðs, Hrafnhildur Stefánsdóttir
lögfræðingur VSÍ og Magnús Gunnarsson formaður VSÍ.