19. júní - 01.03.1995, Page 2
RITSTJÓRASPJALL:
Kona verður heilbrigðisráðherra
á eru alþingiskosningarnar aistaðnar eftir
spennandi kosninganótt þar sem við lá að
Kvennalistinn þurrkaðist út af þingi.
Ekki þó vegna þess að hann væri búinn
að gegna hlutverki sínu og skila inn kon-
um í helming þingsæta, nei, þær eru áfram um fjórð-
ungur þingmanna, ein kona hefúr bæst í hópinn frá
síðustu kosningum. Betur má því ef duga skal. 19.
júní óskar þeim konum sem nú taka sæti á Alþingi til
hamingju með nýtt starf og vonar að þær vinni heils-
hugar að því að auka jafnrétti kynjanna. Það vekur athygli að í nýrri
ríkisstjórn sest kona á stól heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir.
Ragnhildur Helgadóttir var fyrst kvenna til að gegna þessu ráðherra-
embætti, en hún var heilbrigðisráðherra 1985-87.
Það er skemmdleg tilviljun að 19. júní skuli í þetta sinn vera helg-
aður umfjöllun um heilsufar kvenna. 1 blaðinu eru viðtöl við nokkra
fýrirlesara sem fluttu erindi á málþingi KRFÍ í febrúar. Málþingið var
vel sótt, og til að koma því efni sem þar var sett fram til skila til
þeirra sem ekki voru á þinginu var ákveðið að helga fyrsta tölublað
19. júní á þessu ári heilbrigðismálum. Það er einnig ánægjulegt að
heilbrigðisyfirvöld brugðust vel við þeirri umræðu sem fram fór á
málþinginu því settur hefúr verið á fót vinnuhópur sem á að gera
frekari athuganir á heilsufari kvenna og koma með dllögur um hvern-
ig hægt sé að auka hreysti íslenskra kvenna.
Ein þeirra kvenna sem nú sest á þing er Bryndís Hlöðvers-
dóttir, nýkjörinn formaður Kvenréttindafélags Islands. Kven-
réttindafélagið er þverpólitiskt félag og því góður vettvangur fýr-
ir konur sem áltuga hafa á jafnréttismálum til að taka höndum
saman og bæta stöðu kvenna í íslensku samfélagi. Mig langar að
bjóða Bryndísi velkomna í starf formanns og þakka Ingu Jónu
Þórðardóttur, fýrrverandi formanni, ntjög góða samvinnu.
Eins og fram kemur annars staðar í blaðinu hefúr Jafnréttis-
ráð ákveðið að auka útgáfústarf sitt og sjá hér eftir um útgáfú á
Voginni sem undanfarin tvö ár hefúr verið gefin út í samstarfi
við 19. júní. Jafnréttisráði er þakkað gott samstarf við blaðið.
Mig langar að endingu að þakka Ellen Ingvadóttur, fráfarandi rit-
stjóra, mjög gott og ánægjulegt samstarf þau undanfarin tvö ár sem
ég hef sedð í ritstjórninni og óska henni alls hins besta í þeim verk-
efnum sem hún tekur sér fýrir hendur og til hamingju með að vera
nýkjörinn varaformaður KRFÍ. Ég býð einnig ritstjórnina velkomna
til Ieiks á ný en hún er skipuð sömu konum og setið hafa í henni
undanfarin tvö ár. Afram stelpur!
Steinunn Sigrún Inga Dóra Kristin Bryndis
Jóhannesdóttir. Sigurðardóttir. Sigfúsdóttir. Leifsdóttir. Kristjánsdóttir.
EFNISYFIRLIT:
3 Ritstjóraspjall
4 „Á ég að trúa þér stelpa?“ Valgerður
Katrín Jónsdóttir fjallar um helstu heilsu-
vandamál íslenskra kvenna.
6 Konur eru síður hvattar í meðferð. Krist-
ín Leifsdóttir ræðir við Þórarinn Tyrfmgs-
son yfirlækni hjá SÁÁ um áfengis- og
lyfjaneyslu íslenskra kvenna og sérstaka
kvennameðferð sem hleypt var af stokk-
unum um síðustu áramót.
9 Ertu ímyndunarveik? Sjúkdómshugtakið
hystería á sér langa sögu. Sigrún Sigurðar-
dóttir ræðir við Sæunni Kjartansdóttur
hjúkrunarfræðing og sálgreini um sjúk-
dómshugtakið og hvernig konur beina oft
eyðileggingu að sjálfum sér.
1 1 Eru „karlasjúkdómar“ farnir að hrjá kon-
ur? Bryndís Kristjánsdóttir ræðir við Lilju
Sigrúnu Jónsdóttur lækni um konur og
kransæðasjúkdóma og Sigurð Árnason
lækni um konur og krabbamein.
14 „Kvíðaröskun, kynlífsörðugleikar og
fælni eru helstu geðheilsuvandamál ís-
lenskra kvenna," segir Helga Hannesdótt-
ir geðlæknir í viðtali við Valgerði Katrínu
Jónsdóttur.
17 Vog Skrifstofu jafnréttismála:
Nýtt starfsfólk ráðið á Skrifstofu jafnrétt-
ismála
Karlar gegn ofbeldi
Norræn starfsáætlun
Launajafnrétti kynjanna
Útgáfa
Nokkrar vangaveltur um kynferðislega
áreitni
23 Hvernig eiga konur að ná árangri á
vinnustað? Lilja Ólafsdóttir, forstjóri
Strætisvagna Reykjavíkur, fjallar um nýj-
ustu bók Deboru Tannen, Talking 9 to 5,
en þar er sagt frá mismunandi samskipta-
háttum kynjanna á vinnustað.
25 „Hef hug á að starfa að stjórnmálum,“
segir Ellen Ingvadóttir, fráfarandi ritstjóri
í viðtali við Ingu Dóru Sigfúsdóttur.
26 Heilmikil starfsemi hefur verið á vegum
Kvenréttindafélagsins að undanförnu eins
og lesa má um í samantekt um fréttir af
starfi KRFÍ.
29 „Hvers vegna eru þeir ekki búnir að
finna það upp?“ Valgerður K. Jónsdóttir
segir frá íslenskum uppfinningakonum og
þáttöku þeirra í Nordisk Forum í íýrra.
Punktafréttir eru á sínum stað en þær hafa
vakið verðskuldaða athygli og heldur blaðið
áfram að líta ýmsa atburði innanlands og utan
misalvarlegum augum.
19. jútli
1. tbl. 45. árgangur 1995
Utgefandi:
Kvenréttindafélag Islands
Ritstjóri og ábyrgðarmaSur:
Valgerður Katrín Jónsdóttir
Prófarkalesari:
Þórdís Kristleifsdóttir
Ljósmyndir:
Rut Hallgrímsdóttir og fl.
Fo rsíð u mynd:
Sérstakar þakkir fá Bedco og Mathiesen hf,
Hafnarfirði, lyfjafýrirtækið Delta, starfsfólk á
slysadeild Borgarspítala og Anna Sigurveig
Ragnarsdóttir. Ljósmyndina tók Rut Hall-
grímsdóttir.
Utlit, setning, prentun og bókband:
Prentsmiðjan Oddi
2