19. júní


19. júní - 01.03.1995, Qupperneq 28

19. júní - 01.03.1995, Qupperneq 28
Irene Santiago framkvœmdastjóri NGO Forum dvarpar fundargesti. um fyrir kvennaþingið í haust. Á fundin- um sagði Irene m.a. að búist væri við þátt- töku 25. 000 kvenna á óopinberu ráðstefn- una í haust. Hún sagði frá undirbúningi ráðstefn- unnar og rakti það helsta sem áunnist hef- ur í kvennabaráttu undanfarin 20 ár. Kon- ur stæðu enn mjög illa hvað varðar efna- hag, fátækt hefur aukist, heilsufar kvenna er lélegt, ofbeldi er mikið gagnvart konum á ýmsum sviðum og stjórnmálaþátttaka kvenna er allt of lítil, einkum í Asíu. Und- irbúningsráðstefnur hafa verið haldnar víða um heim til að hægt sé að hafa áhrif á op- inberu ráðstefnuna í Bejing. Hún lagði áherslu á að konur fylgdust vel með þeirri hátækni sem er að ryðja sér til rúms í heiminum í dag, og verða tækninýjungar vel nýttar á ráðstefnunni. Hún lagði einnig áherslu á að virkja þyrfti karla í baráttu um jafnréttismál og sagði marga unga karl- menn í Arabalöndunum vera farna að hugsa um þessi mál. Kort ii in Iíf og slörf íslcnskra kvenna KRFÍ hefur í samvinnu við Jafnréttisráð gefið út gjafakort með myndum af lífi og störfum íslenskra kvenna. Kortin eru hönnuð af Þórhildi Jónsdóttur auglýsinga- teiknara og fást í ýmsum blóma-, bóka- og gjafavöruverslunum. Þau fást einnig á skrifstofu KRFÍ IMálþing iini fööurliliitvcrkið I maí verður haldið málþing á vegum KRFÍ um föðurhlutverkið. í undirbúningsnefnd eru Sigríður Vil- hjálmsdóttir þjóðfélagsfræðingur, Gerður Steinþórsdótdr og fleiri. Kynlíf oft barncignir KRFÍ er aðili að fræðslusamtökum um kynlíf og barneignir og hefur Ragnhildur Vigfúsdóttir verið valinn fulltrúi félagsins í þeim samtökum. frí ,4't/SÍf/ff \ 'ir/ .s fi/'/’rtrr j PUNKTA- FRÉTTIR Rithöfundar var- Kommúnistaflokkur Ví- aðÍT VÍð ctnams hcfur varað rit- höfunda við að gagn- rýna byltingarfortíð þjóðarinnar. Viðvörunina gaf aðalritari flokksins, Do Muoi, á þingi rithöf- undasambandsins, að því er fram kemur í opin- berum fjölmiðlum landsins. Færri stúlkur Fæðingum stúlkna yngri undir tvítugu cn 20 ara hcfur # h . .. um nærri því 3/4 eða fæða born n% . rúmum aldar. fjórðungi. Ritið Heilbrigðismál greinir frá því að árið 1966 hafi 828 stúlkur eignast börn á svo ungum aldri, en 237 árið 1993, „og þykir sum- um nóg um,“ segir í ritinu. Uppeldisfræðsla í Danmörku hcfur fé- fyrir nýbakaða 'agsm^ráðherrann, x i ■ o Karcn Jespersen, komið foreldra. þeirri hugmynd á flot að komið verði upp leiðbciningum fyrir nýbak- aða foreldra um líkamlcgar og sálrænar þarfir barna. Hugmynd ráðherrans gengur út á það að sett verði lög í Danmörku sem skylda fagfólk á þessu sviði til að hafa samvinnu við að aðstoða 45.000 til 50.000 dönsk börn og unglinga, sem stafi hætta af því hversu illa foreldrarnir eru að sér um ofangrcindar þarfir barna sinna. „Við verjum heilmiklum fjármunum til fæð- ingarundirbúnings, en verðum að viðurkenna að margir ungir foreldrar búa ekki við umhverfi þar sem þekking og reynsla af börnum gengur í arf. Því eru forcldrarnir án vissrar vitneskju um lík- amlegar og andlegar þarfir barna. Þann dag sem foreldrar standa mcð nýfætt afkvæmi sitt í hönd- unum, hafa þeir ekki hugmynd um hvernig þeir eiga að meðhöndla barnið. Ég álít því að leið- sögn til foreldra geti orðið til að fyrirbyggja ým- is vandamál,“ segir ráðherrann. Kynbomba rekin 25 á™ stúlka, sem í Úr löggunni íjögur ár hefur starfeð f lögreglunni í New York, fékk nýlcga reisupassann eftir að nektarmyndir birtust af henni í tímaritinu Playboy. Hún hefur nú höfðað mál gegn lögreglunni, borgarstjóran- um og borgarstjórninni og krefst 10 milljón dollara skaðabóta og þess að uppsögnin verði dregin til baka. Hún hafi ekki aðhafst neitt sem brjóti Iög og auk þess cytt fjórum árum í að vinna sig upp í lögreglunni. Allar þessar upplýsingar komu fram í cinum þessara vinsælu sjónvarpsþátta þar sem fólk upp- lýsir áhugasaman almcnning um einkahagi sína. Með fyrrvcrandi lögrcglukonunni var lögfræð- ingur hennar sem lýsti þeim framtíðarhorfum sem blöstu við skjólstæðingi hans, auglýsinga- myndatökur í Evrópu og Ástralíu, samningur við franskt nærfatafyrirtæki og jafnvel samningar um kvikmyndir, sjónvarp og bækur. Daman horfir því ekki fram á atvinnuleysi á næstunni en það cr greinilega ekki öruggt starf að komast að hjá lögrcglunni í New York! 28

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.