19. júní - 01.03.1995, Blaðsíða 8
En það er ekki allt satt sem sagt er. Eitt
af því sem oft er haldið fram er að 80%
eiginmanna skilji við alkóhólistakonurnar
sínar meðan 80% eiginkvenna haldi áfram
að vera í hjónabandi með alkóhólista-
mönnunum sínum. Þetta er helber endi-
leysa. Hjúskaparstaða sjúklinganna hefur
verið könnuð og hún er ósköp áþekk. Þar
má sjá að vandamál karlanna er að þeir eru
ekki í sambúð, annað hvort ógiftir eða frá-
skildir. Þeir eru einangraðir og þeir eiga oft
erfiðara með að mynda sér heimili heldur
en einstæð kona.
Sérineðferðin
Sérmeðferð kvenna hefst strax á Vogi.
Þær taka þátt í sammeðferð með körlunum
á meðferðarstofnunum. Síðan eru sérstakir
kvennahópar sem fá ákveðna fræðslu og
verkefni en þær hlusta á fræðsluerindin
með körlunum. Endurkoma er ekki skil-
yrði til að konur komist í kvennameðferð.
Konur eru valdar þarna inn fyrst og fremst
á þeim forsendum að fyrir hendi sé ákveð-
inn samstarfsvilji og að konurnar séu vissar
um að þær séu alkóhólistar svo að við get-
um snúið okkur að því að kenna þeim að
fást við fíkn.
Hugsunin á bak við þetta er kannski sú
að konur hafa aðrar varnir uppi en karlar
og það þarf að komast í gegnum varnirnar,
ná tengslum við þær í einkaviðtölum og
hópmeðferð. Þær aðferðir sem hafa verið
notaðar við karla eru kannski heldur harð-
ar. Það þarf að fara öðruvísi að konunum
út af þessari miklu skömm. Einnig hafa
margar konur orðið fyrir ofbeldi og eiga
þess vegna erfitt, þær eiga í sögu sinni erf-
iða lífsreynslu og það passar kannski ekki
að fara að konunni umbúðalaust og krefj-
ast þess að hún segi allan sannleikann
strax. Það verður að skapa konunum betra
umhverfi til þess tala um viðkvæm mál
sem erfitt er að fást við.
Sérmeðferðin er byggð á reynslu af með-
ferðinni sem við höfum verið að byggja
upp hérna og ýmsum upplýsingum um ár-
angur. Við erum fyrst og fremst að reyna
að rjúfa einangrun kvennanna með þessu
meðferðarráði og fá þeim betri stuðning
eftir meðferðina.
Stuðningur eftir meðferð
Við reynum að mynda sterkan og sam-
heldinn hóp meðal kvennanna. Það tekst
betur á þennan hátt en þegar konurnar eru
dreifðar, tvær og þrjár og fjórar í hóp. Við
getum eflt samstöðuna og þær halda áfram
að halda hópinn, mæta á göngudeildunum
okkar, í Síðumúla og á Akureyri, þær sem
fara þangað. Við reynum að halda hópinn
þar í þrjá mánuði og þá viljum við að fjöl-
skyldan taki þátt í meðferðinni. Síðan eiga
þær að koma og sækja göngudeildina einu
sinni í viku út árið, eftir að hafa lokið fyrstu
þremur mánuðunum. A þann hátt erum við
að reyna að rjúfa einangrun, þær hafa styrk
hver af annarri á göngudeildinni og þannig
reynum við að hjálpa þeim sem best eftir
meðferð. Síðan erum við að auka stuðning
að heiman með því að fá aðstandendur og
eiginmenn til að taka þátt í meðferðinni.
Kennt að fást við fíkn
Hugmyndin að kvennameðferðinni er
sem sagt þessi, að það þurfi að fara örlítið
öðruvísi að konum en körlum og búa þeim
annað umhverfi til að tala um viðkvæm
mál. Það erum við að reyna að gera í þess-
um kvennahópum. Þær eru félagslega ein-
angraðri og njóta oft minni stuðnings eftir
meðferð en karlarnir. Við erum að koma
örlítið á mód þessum þörfum þeirra með
meðferðinni.
Síðan þarf að ítreka að aðalatriðið í þess-
ari meðferð, eins og í allri áfengismeðferð,
er það að fólk sem fer að drekka eftir með-
ferð gerir það fyrst og fremst vegna þess að
það kann ekki að ráða við fíkn. Það veit
ekki hvað það á að gera þegar það fær vín-
löngun, hvernig það á að bregðast við. Þess
vegna er náttúrlega meginþunginn í með-
ferðinni á að kenna konum að fást við
áfengisfíkn og þá félagslegu, sálfræðilegu
og líkamlegu þætti sem geta komið fíkn-
inni af stað.
Réttumegin
við strikið með
Reglubundnum
spamaði
W9/ Regiuliundinn
JL/éspamaður
Reglubundinn sparnaður -
RS - er einfalt og sveigjan-
legt sparnadarkerfi sem
hentar öllum þeim sem hafa áhuga á að vera réttu megin
við strikið í fjármálum. Ávinningurinn er margfaldur: Þú
eignast sparifé og ávaxtar það með öruggum og arðbærum
hætti, átt greiðari aðgang að lánsfé, kemst í hóp bestu
viðskiptavina bankans og nærð betri tökum á fjármálum
þínum en nokkru sinni fyrr. Allt sem til þarf er að semja við
bankann um að millifæra ákveðna upphæð
reglulega inn á Grunn, Landsbók, Kjörbók
eða Spariveltu sem saman mynda RS.
Við inngöngu i RS
færðu þægilega
fjárhagsáætlunar-
möppu fyrir heirnilið
og fjölskylduna.
M Landsbanki
^ íslands
Bankl allra landsmanna
Allar nánari upplýsingar fóst I ítarlegum bæklingi sem liggur frammi i næstu afgreiðslu Landsbankans
8