19. júní


19. júní - 01.03.1995, Blaðsíða 6

19. júní - 01.03.1995, Blaðsíða 6
Konur síður hvattar í meðferð Framfarir í meðferð kvenna í þrem slökkuni Meðferð SÁÁ hófst í desember 1977 í Reykjadal og fólst fyrst bara í stuttri dvöl og fræðslu, aðallega afeitrun. Þaðan fóru sjúklingarnir áfram til Bandaríkjanna ef með þurfti. En í ágúst 1978 var Sogn sett á laggirnar og þangað fóru fljótlega tæplega 30 sjúklingar í áframhaldandi dvöl, eftir Reykjadalsvistina. Reykjadalsvistin var síð- an flutt að Silungapolli 1979. Það var svo í árslok 1983 sem sjúkrastöðin var flutt að Vogi og má segja að starfsemin þar hafi far- ið í fullan gang í ársbyrjun 1984. Fyrir daga SÁA var hlutfall kvenna á áfengisdeildum ríkisspítalanna fremur lágt, rétt rúm 10%, en strax og SÁA byrjaði fór þetta hlutfall í yfir 20%. Síðan hefur það smám saman verið að hækka og er nú ein- hvers staðar á bilinu 25 til 30%. Það má segja að framfarir í meðferð fyrir konur hafi komið í þrem stökkum, það fyrsta á árunum '11 og ’78. Þá kemur tvennt til, bæði er SÁA að byrja og endur- skipulagning er gerð á Landspítalanum með tilkomu Vífilsstaða. Þá fór hlutfall kvenna strax upp um ákveðna prósentu- tölu, konur áttu auðveldara með að koma í meðferð. Síðan er það aftur 1985-86 að greinilega er meira komið til móts við kon- urnar. Þá var t.d. farið að taka meira tillit til þeirra hjá SÁA í fyrirlestri, settir upp sérstakir hópar fyrir konur í eftirmeðferð- inni og sérstökum stuðningshópum fyrir endurkomukonur var komið á fót. Ur þessum hópum og viðtölum við konurnar fengust auðvitað sérstakar upplýsingar um konur, sem við erum að nýta okkur. En það var ekki fyrr en í upphafi ársins 1995 sem við ýttum af stað sérstakri meðferð fyrir konur, alveg frá upphafi til enda, og hún tekur eitt ár með göngudeildarstuðn- ingi. Meginþorri kvennanna kemur hingað fyrst og fremst vegna áfengisneyslu. En það eru 25% af konunum sem hingað koma, eða fjórð- Á málþingi Kveméttindafélagsins hélt Þórarinn Tyrfingsson, yfir- læknir hjá SÁA, erindi um mis- notkun kvenna á vímugjöfum og þar sem sérstakri kvennameðferð fyrir vímuefnasjúkar konur var hleypt af stokkunum um síðustu áramót þótti 19. júní ærin ástæða til að fræðast um stöðu kvenna í meðferðarmálunum. Við gefum Þórarni orðið: SAA Texti: Kristín Leifsdóttir Mynd: Rut Hallgrímsdóttir ungur, sem líka eru háðar, eða eingöngu háðar, róandi lyfjum. Hjá karlmönnum eru ekki nema 15% sem hafa misnotað eða eru háðir róandi lyfjum. Konur síður livattar lil að fara í meðferð Það er ólíkt hvernig kynin koma að þessu. Það eru konurnar sem hvetja karl- ana til að fara í meðferð, eða atvinnurek- andinn. Konurnar fá yfirleitt ekki hvatn- ingu frá eiginmönnum sínum eða heimilis- fólki til þess að fara í áfengismeðferð. í 80% tilfella drekka mennirnir líka svo að þær fá ekki hvatningu þar. Og þær fá ekki, því miður, hvatningu frá heilsugæslunni. Konur eru sjaldan greindar með áfengis- sýki þó að þær komi á heilsugæslustöð eða miklu sjaldnar en karlarnir. Og þessi við- horf finnst mér satt að segja lítið hafa breyst á undanförnum 10 árum. Það er talsvert erfiðara fyrir eldri kon- urnar að fara í meðferð, yngra fólkið er mildu opnara. Konur eru líka auðvitað ólíkar körlum líkamlega. Það hefur reynd- ar allt fram á þennan dag lítið verið rann- sakað þó að núna séu að koma vandaðar rannsóknir sem byggjast á því að skoða þá hliðina sem að konum snýr. Áður fyrr rannsökuðu menn bara karla og gengu út frá því að þau lögmál giltu líka um kon- urnar. Núna vitum við meira um þetta. Sérslaða kvenlíkamaiis lílið rannsökuð Það eru t.d. til erfðarannsóknir sem sýna að það eru sömu lögmál sem gilda um konur og karla hvað erfðir snertir, þ.e.a.s. það erfist sú hætta að fara illa með áfengi og veikleikinn að verða alkóhólisti erfist. Annað sem menn hafa séð er það að áfeng- ismagn í blóði eftir að fólk tekur einn áfengissjúss er hærra hjá konum en karlmönnum og það stafar af líkamleg- um orsökum. Það eru 6

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.