19. júní


19. júní - 01.03.1995, Síða 30

19. júní - 01.03.1995, Síða 30
segist hafa tekið eftir því að minna sé gert úr störfum kvenna en karla hvað sem þær fást við. Þannig voru það eingöngu karlmenn sem unnu við vélritun á skrifstofum í Epypta- landi og starfið var mjög vel launað. Þegar hann fór að vinna í Genf var þessu öfugt farið, þar unnu konur við vélritun og voru illa iaunaðar. Þegar hann fór svo til Búlgar- íu komst hann að því að 95% lyfjafræð- inga voru konur og þær voru illa launaðar. Sömu sögu má segja um lækna í Rússlandi, þar er það láglaunastarf að vera læknir, enda flestir læknar konur.“ - Hvað gerðuð þið svo í Turku? „Við vorum með lista- og hugvitssmiðju þar sem unnið var út frá einkunnarorðum kvennaþingsins. Það eru mikil tengsl milli lista og hugvits, allt skapandi starf getur verið kveikja að nýjungum. Við vorum einnig með í fyrirlestraröð um arðbæra sköpun kvenna, en þar sýndu íslenskar hugvitskonur afurðir sínar, svo sem húð- krem sem unnin eru úr íslenskum jurtum, töskur og veski unnin úr steinbítsroði og hvernig ensím eru notuð til að losa himnu af fisklifur. Við vorum einnig með í sýn- ingu á hönnun kvenna og hagnýtum hug- myndum í vest-norrænu smiðjunni og að- stoðuðum hugvitskonur við umræður. Og svo vorum við nteð landkynningarátak og seldum töskur sem innihéldu upplýsinga- bæklinga um ísland til að auglýsa landið.“ Frá sýningu hugvitskvenna á Nordisk For- um - Hvert eiga hugmyndaríkar konur sem lesa þetta að snúa sér ef þær vilja koma uppfinningu eða hugmynd á framfieri? „Félag íslenskra hugvitsmanna er með skrifstofu að Lindargötu 46 og hún er opin daglega frá klukkan 13-17, þangað eru allar konur velkomnar." IÐIMLÁNASJÓÐUR fyrir íslenskt atvinnulíf PUNKTA- FRÉTTIR Gefast konum Rökstuddar grunscmdir illa karlalyf“? ^a^a nn va^na^ um það að verulega verri bata- horfur kvenna en karla eftir hjartaaðgerðir kunni að stafa af því að framleiðsla hjartalyfja byggist á lyfjarannsóknum scm að mestu einangrast við karlkynið, en rannsóknir benda til að kynbund- inn munur sé á verkun Iyfja. Nú cru ævilíkur íslenskra kvenna, sem áður urðu þær elstu í hciminum, farnar að styttast og heilsufari þeirra að hraka cn íslenskir karlar verða nú langlífastir allra karla. Þar er þó ekki eingöngu við að sakast ófullkomnar lyfjarann- sóknir heldur hafa konur í auknum mæli til- einkað sér óholla lifnaðarhætti sem karlar voru áður iðnari við, t.d. eru reykingar kvenna al- gengari en karla hér á landi. NÓg var SOfíð „Ég álít, að umbótaleys- 1892 ^ staF| frá Þv*’að menn ganga kengbognir undir oki gamallar, óhæfilegrar vcnju, scm hcfur legið scm martröð á þjóðinni í margar aldir. En það er komið meir en mál, að velta slíku fargi af sér, nóg er sofið. Ég segi því enn: Veitum kvcnfólkinu fullkom- ið jafnrétti við oss karlmennina í menntun, framförum og frelsi.“ Svo fórust séra Ólafi Ólafssyni, presti í Gutt- ormshaga, orð í fyrirlestri 1892 þar sem hann rekur það hvernig kvenþjóðin í landinu er með- höndluð sem olnbogabarn. Áhyggjur vegna Fiórða heimsþi'ng kvennaþingsins í kven"a f.v,efum Sam' D , . einuðu þjóðanna vcrður ® haldið í Peking í haust og þegar eru margar konur farnar að hafa áhyggjur af því að þingið verði máttlaust og leiði ckki til neins. Lokaályktunin er svo loðin og útvötnuð að margar konur, einkum vcst- rænar, vildu helst henda henni beint í ruslakörf- una og scmja nýja. En það tæki mörg ár og kemur ekki til greina. Það sem vakti því fyrir sendincfndunum frá aðildarlöndunum 184, þeg- ar þær komu saman í New York um miðjan mars til að laga til textann, var að bjarga því sem bjargað yrði. Þegar voru mættar í New York 1.400 svokall- aðir NGO-arar, konur og örfáir karlar, frá hin- um og þcssum grasrótarsamtökum frá öllum heimshornum. Við undirleik afrísks trumbuslátt- ar safnaðist þessi hópur saman til að leggja fram eigin ályktun sem á að reyna að hafa áhrif á fulltrúana á þinginu. Þessir 1.400 eru kjarni þess 50.000 til 60.000 manna hóps NGO-ara sem búist er við að mæti í Peking. í ályktuninni er varla minnst á fóstureyðingar og getnaðarvarnir og vilja margir meina að rekja megi það til þess að aðalritari þingsins í Peking er katólsk kona frá Tansaníu. Ágrciningsefnin eru mörg þcgar konur frá ólíkum menningarsvæðum eru saman komnar og mikilvægt er að sigla milli skcrs og báru og að ekki skerist alvarlega í odda milli ríkra og fá- tækra, ólíkra trúarhópa o.s.frv. Sænskar konur búast t.d. ekki við að fá miklar undirtcktir við þá skoðun sína að karlar þurfi að cndurskoða stöðu sína og hlutverk, nema frá kynsystrum sínum á öðrum Norðurlöndum. 30

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.