19. júní - 01.03.1995, Blaðsíða 5
fór að afla upplýsinga
um heilsufar kvenna að
svo virðist sem konur
séu almennt við verri
heilsu en karlar þótt
þær lifi lengur. Reyndar
er það forskot sem kon-
ur hafa haft varðandi
meðalaldur að minnka í
kjölfar breyttra lífs-
hátta. I Svíþjóð t.d. eru
konur veikari en karlar í
öllum aldurshópum og
stéttum. Mismunurinn
hvað varðar líkamlega
sjúkleika er 33% kon-
um í óhag, en þegar um
er að ræða geðheilsu eru
um tvöfalt meiri líkur á
því að konur séu
greindar með sjúkdóma
af geðrænu tagi en karl-
ar. Svipaða sögu er að
segja frá Bandaríkjun-
um.
Konur eru neytendur
70% róandi lyfja og
lyfja sem gefin eru við
þunglyndi. Þó konur
neyti mun meiri lyfja
en karlar þá heyrir það
til undantekninga að
rannsóknir fari fram á
þeim.
Þannig eru konur
um 90% neytenda
megrunarlyfja en rann-
sóknir fara svo til ein-
göngu fram á körlum.
Konur eru oftar en
karlar afgreiddar með
lyfjum og það þyrfti því
að athuga hvernig á
þessu stendur. Er ef til
vill á einhvern hátt erfiðara að sjúkdóms-
greina konur en karla? Sumir segja, að svo
sé, þar sem of lítið tillit sé tekið til horm-
ónabúskapar kvenna og of lítið vitað al-
mennt um hvaða áhrif mismunandi horm-
ónabúskapur hefur á kynin. Kveikjan að
þessari umræðu var reyndar á Nordisk For-
um sl. sumar. Þar kom m.a. í ljós að oft
væri erfitt að sjúkdómsgreina konur þar
sem tilraunir færu oftast fram á karlkynstil-
raunadýrum og því oft erfitt að yfirfæra
sjúkdómsgreininguna á konur þar sem
hormónabúskapur þeirra væri öðruvísi en
karlanna og því fái þær ekki „réttu“ sjúk-
dómseinkennin. En hvers vegna skyldu til-
raunirnar fara fram á karlkynstilraunadýr-
um að mestu leyti? Jú, það er vegna þess að
hormónabúskapur kvendýranna er talinn
of „flókinn“.
Þá má einnig velta því fyrir sér hvers
vegna konur eru tilbúnar að taka inn þessi
mál sem áður þjökuðu
aðallega karla farið að
herja á konur í auknum
mæli. Má þar nefna
lungnakrabbamein, sem
nú er annað algengasta
dánarmein þeirra
kvenna sem látast úr
krabbameini hér á
landi, kransæðasjúk-
dóma, en 19% kvenna
látast af þeirra orsökum
auk þess sem mun
stærri hópur verður fyr-
ir alvarlegum heilsu-
bresti, og aukna tíðni
kvenna sem eru áfengis-
ofneytendur og misnota
lyf.
Konur eru oftar en
ekki beittar órétti innan
veggja heimilanna og
úti í samfélaginu en það
getur komið fram sem
heilsuvandamál síðar á
ævinni. Atvinna hefur
einnig áhrif á heilsufar
kvenna, en útivinnandi
konur eru almennt við
betri heilsu en heima-
vinnandi. Rannsóknir
sem gerðar hafa verið í
Bandaríkjunum sýna að
konur sem eru í störf-
um þar sem þeim finnst
þær ekki nota hæfileika
sína til fullnustu eru við
verri heilsu en konur
sem eru ánægðar í
starfi.
Nú er nýútkomin
skýrsla sem Jafnréttisráð
lét vinna um launamun
kynjanna þar sem kem-
ur m.a. í ljós að launamunur eykst með
aukinni menntun kvenna. Konur eru
þannig órétti beittar og það kann að vera
að það hafi áhrif á heilsufar þeirra.
Til að bæta heilsufar þurfa konur því að
taka aukna ábyrgð á eigin lífi og hafa áhrif
á þá þætti í umhverfmu sem geta hjálpað í
þá veru. Konur þurfa því að leita að rétti
sínum á þessu sviði sem öðrum. Aðalefni
19. jiíní að þessu sinni er umfjöllun um
heilsufar kvenna, greinar unnar upp úr fýr-
irlestrum sem fluttir voru á málþingi KRFÍ
í febrúar s.l. um geðheilsu kvenna, lyfja- og
áfengismisnotkun, kransæðasjúkdóma og
lungnakrabbamein, sjúkdómshugtakið
hysteríu og afleiðingar áfalla. Og það er
ánægjulegt að heilbrigðisyfirvöld hafa
brugðist skjótt við þessari umræðu með því
að setja á laggirnar starfshóp sem ætlað er
að koma með tillögur til umbóta á þessu
sviði.
Myndin er í eigu Ljósmyndasafhs Reykjavíkurborgar og er tekm á Landakoti 1928.
lyf. Eiga læknarnir ef til vill að „lækna“
ýmislegt sem þær eru ósáttar við í lífi sínu,
eitthvað sem þær búa við en vilja ekki segja
frá?
Konur hafa oft tilhneigingu til að kenna
sjálfum sér um allt sem miður fer og beina
oft reiði sinni inn á við, að sjálfum sér. Og
þunglyndi hefur verið skýrt sem reiði sem
beinist inn á við. Konur beina þannig reiði
sinni að sjálfum sér ef þær búa við áfengis-
sýki, heimilisofbeldi eða hafa jafnvel orðið
fyrir alvarlegum áföllum, svo sem nauðgun
eða kynferðislegri misnotkun. Og í stað
þess að fá útrás fyrir reiðina taka þær ró-
andi lyf.
Full ástæða er því að velta fyrir sér ýms-
um öðrum þáttum sem geta haft áhrif á
heilsufar svo sem ýmsa félagslega og sál-
fræðilega þætti, breytingar á lífsháttum og
hlutverkum. Með breyttum lífsstíl kvenna í
hinum vestræna heimi hafa heilsuvanda-
5