Sólskin - 01.07.1933, Blaðsíða 41
mjög ófullkomin jarðhús. Þeir bjuggn til ílát úr
brenndum leir. Þeir höfðu húsdýr og ræktuðu kom.
Þeir eru forfeður þeirra þjóða, sem nú byggja Ev-
rópu. Sennilega hafa þeir blandast hreinaveiður-
unum.
Ekki er kunnugt um uppruna þessara nýju
manna, annað en það, að þeir komu að sunnan.
Þar hefir verið hlýrra en í Evrópu og auðveld-
ara að afla fæðu. Þeir hafa haft tíma til að hugaa
um fleira en matinn. Þeir reyndu að bæta kjör
Bín, en lét ekki eingöngu stjórnast af tilviljun-
um og gömlum venjum. Þeir höfðu lært að skefta
axir og hamra og eetja odd úr steini á spjótin.
Fyrst bundu þeir steinana með ólum við trjágrein-
ar. ólamar fengu þeir, með því að rista dýrahúðir
niður í lengjur. En það var ekki traust samsetn-
íng. Einnig reyndu þeir að bora gat á skaftið og
stinga hamarshausnum eða axarblaðinu þar í. En
steinarnir vildu losna. Þá datt einhverjum í hug
að bora gat á steinana og skefta hamra og axir á
sama hátt og við gerum nú. Enginn veit um nafnið
á manninum, sem fyrst reyndi að skefta steinana,
en mikið á mannkynið honum að þakka. Hann
hefir gert eða unnið að einhverri stærstu uppgötv-
un mannkynsins. Hann fann ekki upp á sama hátt
og kisa, sem var lokuð inni í kassanum. Hún lærði
af tilviljun. En nú var maðurinn farinn að hugsa
— eins og maður. Hann leitaði og íhugaði, rann-
sakaði og gerði tilraunir.
39