Sólskin - 01.07.1933, Side 63
íhugar málið nákvæmlega. En hans heilaga ráðs-
ályktun verður þó ekki önnur en sú, sem hver jarð-
neskur maður myndi hafa gert í þessu máli: Það
verður að grafa nokkra brunna á þessari leið.
Trúarbrögð Forn-Egypta.
Forn-Egyptar trúðu á marga guði. Hver borg
átti sinn aðalguð og því urðu guðirnir margir.
Þegar einhver borg varð auðugri og stærri, óx líka
vald guðsins. Faraóamir voru milligöngumenn milli
g-uða og manna. Varla nokkur maður í Egyptalandi
þekkti alla guðina. Egyptar reistu guðum sínum
musteri, er voru bæði stór og fallega byggð. Stærst
var musterið í Þebu. Margir konungar skreyttu það
og stækkuðu, uns þar varð risa bygging. Aðal-salur
musterisins stendur enn í Kamak við Þebu, og
sýnir vald þess guðs, sem þar bjó og var tilbeðinn.
Nafn hans var Amos. Salurinn er 500 m. langur
■og 100 m. breiður. Forsalurinn var borinn af 12
súlum. Hæð undir loft er 23 m. sumstaðar, og
sagt er, að í sumum hlutum musterisins sé 50
m. undir loft. Smám saman breyttust guðshug-
myndir Egypta. Fyrst er við höfum sögur af þeim
trúðu þeir á ýms dýr, t. d. ketti, krókódíla, sjak-
ala og íbisfugla. Menn tilbáðu þessi dýr sem
vemdara landsins og vatnsins, og þorðu ekki að
ráða þau af dögum. Er þau dóu, voru þau smurð
og grafin líkt og menn.
61