Sólskin - 01.07.1937, Blaðsíða 15
þau lyftist upp úr sjónum. Fyrst sést aðeins
efsti siglutoppurinn, svo smám saman meira
og meira, þangað til allt er komið í ljós, sem
ofansjávar er. En þegar þau sigla frá landi,
er eins og þau sökkvi í sæ.
Teitur: Það er þá satt, að Snæfellsjökull sé
mikið hærri en Esjan?
Fínna: Já, miklu hærri. Esjan er ekki nema
um 900 metrar, eins og ég sagði áðan, en Snæ-
fellsjökull er 1446 metrar.
Ása: Er Snæfellsjökull í norðvestri?
Finna: Já, hann er í norðvestri.
Ósk: Hvað er jökull?
Finna: Það er kallaður jökull, þegar ís og
snjór safnast fyrir á háum fjöllum ár frá ári,
en þiðnar ekki að sumrinu.
Teitur: Hvers vegna þiðnar snjórinn ekki af
þeim, eins og öðrum fjöllum?
Finna: Það er vegna þess, hvað þau eru há.
Því lengra, sem upp í loftið kemur, þess kald-
ara er.
Ása: Hvers vegna er svona stór lægð ofan í
Snæfellsjökul?
Finna: Það er vegna þess, að hann er gamalt
eldfjall. Eldgos hafa orðið þar fyrir þúsund-
um ára. Gígurinn er í lægðinni, sem þið sjá-
ið. Hann er nú fullur af snjó.
13