Sólskin - 01.07.1937, Blaðsíða 27
Finna: Þú átt líklega við nesið sunnan við
Bakkatjörnina?
Ósk: Já, ég á við það.
Finna: Það heitir Suðurnes. Þar er enginn bær.
Nesið er þó nokkurn veginn grasi gróið. En
bæir þessir eru fyrir norðan og austan Bakka-
tjörn: Ráðagerði, Bygggarður, Nýibær, Bolla-
garðar og Pálsbær, og svo Nes. Þao er gam-
alt höfuðból, og var lengi aðalbærinn úti á Sel-
tjarnarnesinu. Kirkja var þar áður. Steinstof-
an gamla stendur enn í Nesi, er byggð var
handa fyrsta. landlækni okkar.
Þór: Ekkert man ég, hvað ég hefi heyrt, að
hæðin héti þarna úti á nesinu.
Firnia: Valhúshæð er hún kölluð. Þar er nes-
ið hæst fyrir vestan bæinn, og útsýn fögur.
Ferðafélag Islands ætlar að setja útsýnis-
skífu á hæðina. Nöfn þeirra fjalla og annara
helstu staða, er af hæðinni sjást, á að grafa
í skífuna og sýna stefnur til þeirra.
Teiíur: Það verður gaman. Ferðafélagið ger-
ir svo margt skemmtilegt.
Ása: Hvers vegna heitir hún Valhúshæð? Það
þætti mér fróðlegt að vita.
Fimia: Fálkaveiðar tíðkuðust fyrrum. Valir
voru geymdir í húsi þar á hæðinni, og af því
er nafnið.
25