Sólskin - 01.07.1937, Blaðsíða 63
Finna: Þær afla næringar úr móidu á nóttu
og clegi, en loftfæðu aðeins í ljósi dagsins.
Teitur: Þurfa jurtirnar að anda?
Finna: Já, allar lífverur þurfa að anda. Jurt-
ir anda að sér súrefni, en frá sér kolsýru. Það
gera dýrin líka! En dýrin hafa sérstök öndun-
arfæri, en það hafa jurtirnar ekki. Þær anda
með öllum líkamanum og á öllum tímum.
í»ór: Það ætti að safna saman öllum jurtateg-
undum á landinu í einn garð, og setja merki-
spjald með nafni hverrar tegundar hjá henni.
Gæti þá hver, sem vildi, lært að þekkja þær.
Þá skyldi ég læra að þekkja margar jurtir.
Gaman væri að læra grasafræði, ef við gætum
tekið lifandi jurtir inn í kennslustofurnar.
Ása: Já, það væri skemmtilegt. Þá myndum
við læra helmingi meira.
I>ór: Þá sæjum við það sjálf, sem við ættum
að læra um. Við færum út í vermihús og sækt-
um laufblöð, rætur og stöngla, blóm og ann-
að, sem við þyrftum. Og ef við hefðum stækk-
unargler, sæjum við smæstu hárin og fínustu
taugarnar, og ef við skærum jurtina sundur,
sæjum við alveg, hvernig hún væri að innan.
Finna: Smásjá þarf að vera til í hverjum
skóla. Sjá má í henni, hvernig jurtin, eins og
61