Sameiningin - 01.08.1892, Síða 13
—77—
má geta þess, að þingvallanýlendusöfnuður hefur skrifað bisk-
upi íslands og beðiS hann að útvega sjer prest. Mál þetta er
komið nokkuð áleiðis, en þó eigi fullgjört. Nefndin finnur á-
stæðu til að taka það fram, að söfnuðirnir ættu að liafa forseta
kirkjufjel. í ráðum með sjer, þegar þeir ráða presta sína.
Nefndin sjer að eins eitt ráð til að bæta úr hinni brýnustu
þörf safnaöanna á prestlegri þjónustu og ráðið er þetta: að út-
vega prestunum síra F. J. Bergmann og síra Hafst. Pjeturssyni
hjálparmenn, svo að þeir geti veitt prestlega hjálp þar sem þörfin
er mest. Og nefndin leyfir sjer að benda á tvo menn, stud. theol.
J. A. Sigurðsson og stud. theol. B. B. Jónsson og ræður kirkju-
fjel. fastlega til að ráða þá þessum tveimur prestum til aðstoðar.
þetta fyrirkcmulag hefur auðvitað kostnað í för með sjer,
sem varla getur orðið minni en $200.00. Nefndin álítur að þeir
prestlausu söfnuðir, sem njóta góðs af þessu, myndu sjerstaklega
taka mikinn þátt í kostnaöinum. En ef söfnuðirnir gætu eigi
borið allan þennan kostaö, ræður nefndin til að varið sje til þess
allt að $100 úr kirkjufjel. sjóði.
Ennfremur ræður nefndin þinginu til að útvega hjá járn-
brautafjelögunum einum presti kirkjufjelagsins ókeypis ferð
frain og aptur til Kyrrahafsstrandarinnar, til þess hann, ef mögu-
legt væri, gæti heimsótt Victoriasöfnuð, B. O. og íslendinga í
Seattle.
Á kirkjuþingi 28. júní 1892.
Nefndin.
þetta nefndarálit var samþykkt.—Sömuleiðis samþykkt, að for-
seta kirkjufjelagsins sje falið á hendur að semja beiðni til járn-
brautafjelaga um að gefa einum presti þess frítt far til Victoria
B. C. til að heimsækja söfnuðinn þar.
Tillcyvning VictoriasafnacTar. í nefnd voru settir: síra
Steingr. þorláksson, B. B. Jónsson, Sigurður Sigurðsson.
Mdlið' um ferð'alcostnað' kirkjuþingsmanna. þessir 5 sett-
ir í nefnd: Jón Blöndal, Ólafur þorsteinsson, Haraldur Pjeturs-
son, H. F. Keykjalín, Ólafur Jóhannesson.
Löggilding Jcirkjufjelagsins. þessir 7 settir í nefnd: W. H.
Paulson, E. H. Bcrgman, Jón Jónsson, B. T. Björnsson, Jónas
Bergmann, Kristján Jónsson, Björn Jónsson.