Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1892, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.08.1892, Blaðsíða 30
þar guðsþjónustu og vann önnur prestsverk. Dagmn eptii' fórjeg aptur til Þingvallanýlendu og næsta dag iieimleiðis til Winnipeg. Þar var jeg svo um helgina 31. júlí, prjedikaði þar í kirkjunni á sunnudaginn og vann ýms prestsverk. Á miðvikudaginn 3. ágúst fórjegsvo aptur til heimilis míns í Argyle. Meðan jeg var hjá söfnuðunum í Þingvallanýlendu og LögbergsDý- lendt, gjörði jeg mjög mikið af prestsverkum. Jeg skírði 11 börn og staðfesti skíru á 15 börnum. Las með börnum undir ferming og fermdi 2 börn. Jeg gipti tvenn brúðhjón. Önnur brúðhjónin voru úr Vatnsdals- nýlendu, Dongola P. O. Nýlenda sú liggur 20—30 mílur suður frá Þing- vallanýlendunni. Ennfremur kastaði jeg mold á 8 grafir og talaði nokkur orð yfir hverri gröf. Eins og kunnugt er, þá eru tveir söfnuðir þar vestur frá meðal ianda vorra. Það er Þingvallanýlenchi-söfmiður í Þingvallanýlendu. Ilann er stofnaður árið 1888. Það er orðinn allstór og blómlegnr söfnuður. Hou- um hefur farið mikið fram þau 4 ár, sem hann hefur staðið. Og þó liefur hann átt við mjög mikil vandræði að etja að því, er alla prestþjónustu snertir. Kirkjufjelagið hefur eigi getað sökum fjarlægðar og prestsfæðar veitt söfnuði þessum nema sárlitla prestsþjónustu einu sinni á ári. Lýters- söfnuður heitir annsr söfnuður þar vestur frá. Hann er í Lögbergsnýlendu. Nýlenda sú liggur skammt fyrir norðan Þingvallanýlendu og eru þær nær því áfastar. Söfnuður þessi var myndaður í júiímánuði í fyrra. Mr. Kle- mens Jónasson og jeg gengumst fyrir þeirri safnaðarmyndun. Söfruður þessi er þannig að eins ársgamall. Á þessu eina ári hefur hanntekið tals- verðum framförum. Og það er öll ástæða til að gjöra sjer góðar vonir um framtíð hans. Hvergi í kirkjufjelaginu er eins mikil og brýn nauðsyn á stöðugri prestþjónustu eins og í Þingvalla- ogLögbergsnýlendum. Nýlendur þessar eru mjög fjölmennar og víðlendar. Þar verður meir en nóg að starfa fyrir einn prest. Auk þess mundi prestur, sem settist a3 í þessurn nýlendum, þurfa að gegna prestsverkum í Vatnsdals nýlendunni og þeim nýlendum, sem kynnu að myndast norður frá Þingvalla- og Lögbergsnýlendum. Allt þetta er meir en nóg starf handa einum presti. Og það er vonandi, að þessar nýlendur þurfi eigi lengur að vera prestlausar. Það eru allar líkur til, að >ær fái prest, áður en langt um liður. Allt bendir á, að þær verði búnar að fá prest fýrir næsta kirkjuþing annaðhvort heiman frá íslandi eða af þeim Islendingum, sein nú eru að stunda guðfræðisnám hjer vestanhafs. Því miður er útlitið í Þingvalla- og Lögbergs-nýlendum eigi gott að því, er uppskeru snertir í haust. Allt bendir á, að þar verði aimennur upp- skerubrestur. Það er mest ofþurk að kenna. Ilveitið liefur skrælnað upp á ökrunum. En það er óskaDdi og vonandi, að þessi óáran standi ekki lengi. Það er óskandi, að næsta ár verði þolanlegt uppskeruár fyrir ný- iendur þessar. Undir því virðist framtíð þeirra að miklu leyti komin. Meðan jeg dvaldi í Þingvallanýlendunni, var jeg til húsa hjá Mr. Thomas Paulson. Hann er einhver helzti leiðandi maðurinn í nýlendunni. Mr. Paulson keyrði mig fram og aptur um nýlenduna og gjörði allt, sem í hans valdi stóð, til þess að allir gætu haft gagn af komu minni. Mr. Björn

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.