Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1892, Blaðsíða 27

Sameiningin - 01.08.1892, Blaðsíða 27
—91— vorrar hefur af oss, börnunum sínum, hjer í þessu fjarlæga lantli. Og þó fósturjörö vor sje fátæk, erum vjer sannfærðir um að' hjálpin, sem vjer fáum að heiman, getur munað oss miklu. Vjer niunum taka við henni með þeim hug, að sýna að minsta kosti jafnmikið drenglyndi, þegar talað verður um að styrkja eitt- hvert velferðarmál á föðurlandi voru og þetta ætlunarverk vort e.r af hendi leyst. Hafið því hjartans þökk vora fyrir tillögur yðar. Guð blessi árangurinn, því málið er hans. Hann blessi hina kirkju- Jegu starfsemi yðar og láti hana bera blessunarríka ávexti fyrir kirkju þjóðar vorrar. Guð blessi vora ástkæru fósturjörð og blási sínum heilaga anda í hjörtun. Hann láti oss, sem tölum sömu tungu í tveimur heimsálfum, hjálpast að til að vinna eitt- hvað sameiginlega hans heilaga nafni til lofs og dýrðar. f umboði kirkjuþingsins. F. J. Bergmann, varaforseti kirkjufjelagsins. SÍRA MAGNÚSOG ÚNÍTARAR. það þóttu nokkuð djarfar getgátur, þegar þess var gelið til utn þær mundir, að sjera Magnús Skaptason í Nýja íslandi reis upp með hina nýju kenning sína og sagði sig úr kirkjufjelaginu, að haun mundi áður iangt liöi ganga í liö með Únítörum. En nú er það augljóst orðið', að sú getgáta hefuv við góð' rök að styðjast. Órækar sannanir eru nú fram komnar fyrir því, að hann hefur þegar frá byrjuu leitað liðs hjá Unítörum og iýst því yfir við þá, að hann hafi horfið frá lútersku kirkjunni til þess að verða Únítar og ganga inn í þá kirkjudeild. í októher í fyrra (1891) veita þeir honum $200.00 styrrk, sem hann auðvitað sjálfur hefur sótt um og feginsamlega tekið á móti. Únitarar austur í Bandaríkjum telja söfnuði þá, sem sira Magnúsi hafa hingað til að nafninu fylgt, mjög hróðuglega sem eina deild í sínu kirkjufjelagi (Unitarian Conference), og hlýtur það að vera samkvæmt fyrimælum síra Magnúsar. En í Nýja fslandi er öllu þessu haldið leyndu. þar er fólki talin trú um, að það sje eins lúterskt og áður, þó það segi sig úr kirkjufjelaginu. Síra

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.