Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1893, Side 3

Sameiningin - 01.01.1893, Side 3
—163— hafi verið sonur Mósesar, og að þessi góði sonur hafi ráðið hon- utn bana, þar sem hann af tilviljun varð fastur í eik nokkurri, eða að Lot hafi verið sonur Abrahams oglsmael kona hans, eins og dæmi eru til í skólum hennar hátignar Victoríu drottningar, þá er þó fáfræðin í heilagri ritningu eflaust æði mikil. Heimil- in og söfnuðirnir hafa beðið óumræðilegt andlegt tjón af því, að hafa lagt upp á hyllu heilaga ritning, orðiö, sem geymir sannleik- ann, Ijósið og lífið. það er svo hörmulega vanrækt að láta guðs- orð búa ríkulegci meðal vor. Börnin vita þetta eins og aðrir og sjá það fyrir sjer, og það er ekki að búast við, að þau taki sjer fram um það, eða taki því ástfóstri, sem aðrir hafna, og þ&ð er því miður gjört rneira úr því að komast í kristinna rnanna tölu en að vera kristinn með sál og lífi. Hversu affarasælt, æskilegt og blessað hlýtur það því að vera fyrir hina komandi kynslóð að hefja göngu sína í erindum guðs-ríkis með þeim alvarlega og einlæga ásetningi að láta guðs-orð vera sitt Ijós á veginum og fullkomnast meir og meir í skilningi og anda þess? þess vegna er það slcylda vor, að gjöra allt, sem oss getur hugsazt áhrifa- mikið og gagnlegt, til að vekja og viðhalda kristilegum áhuga meðal hiunar yngri kynslóðar. 0g má jeg spyrja: Hvað getur haft meiri árangur en að draga hina ungu saman í kristilegan f jelagsskap, með því augnamiði, að auðga anda þeirra í rjett- um skilningi á guðs-orði, auðga hann að kristilegum dyggðum, kenna þeim að hugsa og vinna í sameining að þeirra andlegu velferð, styrkja þá ár eptir ár í elskunni til frelssrans og æfa þá í að verða sjálfstæðir og fullorðnir í trúnni? Ef nú prestur- inn, forstöðumaður safnaðarins, og fræðari hinna ungu, óskar eptir að stofna slíkan fjelagsskap í söfnuðum sínum, til þess að geta haft sem bezt áhrif á börnin eptir ferminguna, sem hann annars ekki treysti sjertil aðhafa, hvað ætti maður þá að hugsa um þann söfnuð, sem eigi vildi sinna því máli? Jeg get ekki ímyndað mjer, að nokkrura kristnum söfnuöi geti blandazt hug- ur um það, að þessi fjelagsskapur væri í alla staði hinn ákjósan- legasti, ekki einungis fyrir unglingana, heldur einnig fyrir allt safnaðarlífið yfir höfuð. Jeg get ekki ímyndað mjer nokkurt kristið foreldri, sem ekki fyndi sig kailað til að hvetja barn sitt til að vera með í þessum fjelagsskap og ekki vildi sjálft fylgja þessu málefni með lííi og sál. — Áuðvitað kostar þetta prestinn

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.